Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1948, Blaðsíða 16
76
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
SIGURÐUR SKÁLD Á JÖRFA
(d. I£70' vur gerður að dannebrógs-
manr i eftir miðja 19. öld. Eilt sinn var
hann stacidur 1 Reykjavík, eít:r að hann
var nýbúinn að íá dannebrogskrossinn.
Var honum þá nýtt um varninginn og
bar hann krossinn framan á sjer um
göturnar, utan á litt sjálegum fötum.
Á Hlíðarhúsastíg (Vesturgötu) mætir
honum Eirikur meistari Magnússon,
sem þá var skrifari hjá bæjarfógetan-
um í Reykjavík. Verður Eiríki litið á
krossinn og víkur hann sjer hvatskeyt-
lega að Sigurði og segir, því að hon-
um hefur líklega þótt hvað öðru hjá-
leitt, reiðingurinn á Sigurði ðg kross-
inn: „Hver andsk.... hefur hrækt
þessu á þig, maður?“ Þá varð Sigurði
orðfall í eina skiftið á ævinni.
BRÚÐKAUPSVEISLUR
Á HORNSTRÖNDUM
Þorvaldur Thoroddsen segir að ná-
kuhnugur bóndi á Hornströndum hafi
.lýst svo fyrir sjer brúðkaupsveislum
þar fyrir 60 árum: — Um morguninn
fyrra veisludaginn fá boðsmenn kaffi,
lummur og brennivín; nokkru seinna er
morgunverður borinn á borð, smurt
brauð og brennivín; þá er sunginn borð-
sálmur. Önnur máltíð um miðjan dag
er steik, kaffi og lummur. Þriðja mál-
tíð undir kvöld, rúsínugrautur eða vín-
súpa og síðan er sest að drykkju og
sungið og kveðið sjer til skemtunar.
Veislan sjálf stendur oftast hjá efnaðri
bændum tvo daga og fer fram seinni
daginn, sem hinn fyrri. Borð|estirnir
borga fyrir sig, þegar þeir fara, 2—10
krónur eftir efnum og ástæðum.
SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ
lenti í málaferlum út af tvíkvæni.
Þóttist hann laus við fyrri konu sína,
er hann gekk að eiga Kristínu Illuga-
dóttur, en löglegur hafði sá skilnaður
ekki verið. Fór og svo að Sigurður var
fundinn sekur og með hæstarjettardómi
1839 var refsing hans ákveðin 20 vand-
arhögg. Þegar Sigurði var birtur dóm-
urinn, varð honum þetta að orði: „Þess
hef jeg oft heyrt getið, að skáld hafi
verið dæmd til dauða, en aldrei til hýð-
ingar“. — Árið eftir var hann leystur
frá dóminum með konungsbrjefi, gegn
því að hann greiddi 20 ríkisdala sekt.
Á Reykjavíkurflugvelli. Hjer sjest ein af hinum stóru frönsku farþegaflugvjel-
um, sem eru í förum milli Parísar og New York, vera að taka bensín á flugvell-
inUm í Reykjavík. Til hægri handar á myndinni sjest stjórnturninn, sem hefur
eftirlit með flugi á norðanverðu Atlantshafi og fylgist með hverri einustu flug-
vjel, sem þar er á ferð. Frá þessum turni fá flugvjelarnar veðurfregnir og hvers
konar upplýsingar, sem þær þarfnast. (Ljósm. Ólafur K. Magnússon).
GUÐMUNDUR BERGÞÓRSSON
skáld var aumingi til heilsu mestan
hluta ævi sinnar, máttlaus í báðum fót-
um og hægri handlegg. En vinstri hönd-
in var heil upp að alnboga og gat hann
skrifað með henni. — Guðmundur átti
heima á Arnarstapa á Snæfellsnesi árið
1701. Þá fór Jón biskup Vídalín eftir
htsferð um Vesturland og kom að
Stapa. Talaði hann lengi við Guðmund
og fanst mjög til um gáfur hans. Þegar
biskup fór þaðan kastaði hann fram
þessari stöku um Guðmund:
Heiðarlegur hjörvagrjer,
hlaðinr. ment og sóma;
yfir hann jeg ekkert ber
utan hempu tóma.
SKÚLI MAGNÚSSON
landfógeti var fremur grannur og
kraftalílill, en sjera Jón bróðir hans var
heljarmenni. Eitt sinn sátu þeir yfir
borðum bræðurnir, og varð þeim þá
eitthvað sundurorða, því að Skúli hafði
gaman af að stríða bróður sínum. Um
þær mundir átu heldri menn af tin-
diskum og tinfötum. Þegar rimman fór
að harðna sá Skúli að Jón var orðinn
dreyrrauður í framan, en hafði tekið
tinfat og hnoðaði það saman milli
handa sjer. Þá stóð Skúli upp í snatri
og hraðaði sjer út.
HREINT MÁL
og óspjallað stendur tvímælalaust í
nánu sambandi við lífsvenjúr og hætti
hverrar þjóðar. Þegar málið breytist,
þá taka og siðirnir venjulega að spill-
ast (E. Ól.).
%
TRÖLLKONURÚM
er mælt að höggvið sje í klöpp í Víði-
dalsá. Það er 15 álna breitt og 8 álna
langt. En þró þessa hefur vatn grafið.
ÁLÖG Á MÁLMEY
Þau eru álög á Málmey á Skagafirði,
að þar má enginn búa lengur en 20 ár.
Aldrei má hestur koma þangað, því að
þá verður húsfreyjan brjáluð. Mýs þríf-
ast þar ekki, hvað sem til þess kemur.