Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1948, Síða 4
208
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
,J'7ýiklúbburinner fyrir enda götunnar.— Næst til hægri sölubúö Tærgesens
(Ipgolfs Apotek).
——i■
í svonefndu Scheels-húsi, þar sem lit-
unarhús innrjettinganna hafði staðið.
Henrich Scheel, fyrrum tugthúsráðs-
maður, keypti Litunarstofuna 1791,
reif hana og bygði þetta hús í stað-
inn. Það var selt á uppboði 1827 og
stóðu þá ýmsir fyrir veitingum bar
eftir það, og gekk það nú venjulega
undir nafninu „Klúbbhúsið", og var
þá hætt að kalla Aðalstræti, en gatan
jafnan nefnd Klúbbgata (1820-1845).
Meðal þeirra, sem stóðu fyrir veit-
ingum þarna, var maddama Sire Otte-
sen. Þar komst hún í kynni við Arthur
Dillon, síðar lávarð, er dvaldist hjer á
landi 1834—35. Hann lýsir klúbbnum
svo í bók, sem hann skrifaði um ts-
land:
„Um veturinn komu um 12 kaup-
menn þar saman á hverju Kvöldi og
spiluðu L’hombre frá kl. 6—12 og oft
lengur. Þeir höfðu aldrei augun af
spilunum nema þegar þeir kveiktu
sjer í vindlingi eða dreyptu á púns-
glasi, og mæltu ekki orð frá vörym“.
Dillon varð það á að eignast barn
með mad. Ottesen. Var það dóttir og
hjet Henriette og varð seinna kona
Levinsens kaupmanns. Sagt var, að
Dillon hefði viljað giftast mad. Otte-
sen, en ekki fengið því ráðið fyrir
voldugum frændum sínum í Eng-
landi. En hann reyndist henni vel,
ljet byggja hjer hús og gaf þeim
mæðgum það. Þetta hús var löngum
kallað Dillons hús og stendur enn
(Suðurgata 2).
Um 1840 var farið að halda barna-
dansleika eftir nýár að tilhlutan
Kllblisins, en þá voru stjórncndur
hans Jón asse'ssor Johnson og Hannes
Ct. Johnren, kaupmaður. En jafn-
framt var það stranglega bannað að
þjónustustúlkur tæki pátt í barna-
dansinum. En þær átfu sína sjer-
stöku danslcika, sem neíndir voru
„píuböll”. Var þar víst oft glatt á
hjalJa, eftir því sem ráða má af vísu
Pjeturs hattara, sem seinastur alira
bjó í Örfirisey:
Þetta kvöid er mje*- í minni,
man jeg varla þvílíkt rall.
Það skal vera í síðsta sinni
sem jeg fer á píuball.
Stefáni Gunnlaugssyni bæjarfógeta
var líka lítið um píuböllin gefið, og
var tregur að veita leyfi til þess að
þau væri haldin. Og er hann veitti
leyfi, var það ætíð með því skilyrði,
að dansinn hætti kl. 2 um nótt „til
þess að enginn skyldi vera ófær til
vinnu næsta dag“. Oft neitaði hann
um leyíi, en þá var leitað til stipt-
amtmanns og veitti hann oftast leyfið.
Um þessar mundir kom fyrir sögu-
legur atburðir á þeirra tíma mæli-
kvarða. Eftir miðri Klúbbgötunni
(Aðalstræti) endilangri hafði lengi
verið opin skolprenna. Nú þótti þetta
LJDSM. MBL: DL. K. MAGNUSSDN.
Dillons-hús (Suöurgata 2), litla húsiö á horninu.