Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1948, Blaðsíða 7
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
HT '.r Tf-*.’ - m
1
451
Gísli Brynjólfsson:
FJÁRLEITIR Á SÍÐUMANNAAFRJETTI
• !
Síðumannaafrjettur
ÞAÐ mun ekki þykja í frásögur
færandi þótt venjulegur sveitamað
ur fari á afrjettir í fjallasafn — í
göngur eða fjárleitir — eða hvað
það er nú kallað í ýmsum landshlut
um — þetta að smala fjenu til rjetta
á haustin. En fyrir þann sem fer
þetta í fyrsta sinn hvort sem hann
er ungur eða gamall, er þetta tals-
verður viðburður, enda þótt fjár-
leitin sje ekki löng og ekkert sjer-
stakt komi fyrir í ferðinni. En ein
mitt þeirrar tegundar er sú ferða-
saga, sem hjer verður sögð af því,
þegar farið var í fyrsta safn á af-
rjett Síðumanna s.l. haust — þ. e.
a. s. þeim hluta hans sem nefndur
er Miðafrjettur.
Það svæði, sem fjenaður Síðu-
manna og Landbrytinga gengur á,
liggur að baki Síðubyggðarinnar
sjálfrar og heiðunum upp af henni.
Það takmarkast í stórum dráttum
af sjálfum Vatnajökli að norðaust
an og tveimur stórfljótum, sem
undan honum renna um þessar slóð
ir, Hverfisfljóti að austan og Skaftá
að norðan og vestan. Allskammt er
frá upptökum þessara fljóta við
sjálfan jökulinn, en af því að þau
stefna sitt 1 hvora áttina breikkar
það fljótt og verður af mikil víð-
átta. Nyrsti hluti þessa svæðis er
þó yfirleitt ekki smalaður. Það er
víðáttumikil hraunsljetta beggja
megin við gígaröðina norðaustur
af Laka, gróðurlaus með öllu og
er þar engra kinda von.
Fjöll á afrjettinum.
Það lengsta, sem farið er til fjár
leita er í Stakafell — f jall innarlega
á öræfunum við Skaftá, þar sem
hún fellnr í ótal kvíslum um breið
ar leirur. Á Síðumannaafrjetti eru
ótal fjöll og hnúkar upp úr hálend-
inu og skulu hjer talin þau helstu,
þótt sú upptalning sje þurr og hafi
lítið gildi fyrir þá sem ekki þekkja
til af eigin sjón og raun. Að baki
Austur-Síðu gnæfir fjallið Kald-
bakur — yfir 700 m. hár — einkar
fagur og tignarlegur, sjeður úr
byggð og er þaðan einkar víðsýnt.
Til norðurs rennur Kaldbakur sam
an við hálendið að baki. Þar eru
ótal hjallar og bungur, holt og sker,
mikil víðátta og gróðurlítil. Aust-
an við hana rís fjallið Miklafell.
Sunnan undir því er sæluhús. Þar
gista gangnamenn af Austur-Síðu
í fjárleitum sínum. Annað sæluhús
er allmiklu innar á afrjettinum.
Það stendur sunnanvert við fjallið