Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1948, Blaðsíða 1
V
Arní Óla:
Hneykslið
dmkirkjunni
Saga írá bernskuárum
blaðamensku á íslandi
VORIÐ 1835 ljest Gunnlaugur
Oddsson dóm'kirkjuprestur í Rvík.
Hann bjó á Lambastöðum og varð
aðeins 49 ára að aldri Varð hann
harmdauði öllum Revkvíkingum og
þeim öðrum, sem honum höfðu
kynst. Var það mál manna að langt
mundi þangað til annar eins af-
bragðs maður yrði sálusorgari
Reykvíkinga og prestur í dóm-
kirkju landsins.
Sjera Ásmundur Jónsson, sem þá
var nývígður prestur til Breiða-
bólstaðar á Skógarströnd, var þá
fenginn til að gegna embætti dóm-
kirkjuprests frá miðjum júlí til
næsta vors. En þá um haustið var
embættið veitt sjera Helga G.
Thordarsen presti í Odda á Rang-
árvöllum, og tók hann við því í
næstu fardögum, en sjera Ásmund-
ur fekk þá Odda.
Árið 1846 var Helgi G. Thordar-
sen kosinn biskup. Tók hann við
því embætti 2. september um háust
ið og settist að í Laugarnesi. Urðu
nú miklar umræður um það, hver
verða mundi eftirmaður hans. sem
dómkirkjuprestur í Reykjavík —
Tveir menn sóttu um embættið og
mátti vart á milli sjá hvor þeirra
teldist hæfari til að hljóta það. —
Annar þeirra var sjera Ásmundur
í Odda, sem hafði þjónað því áður,
en hinn var dr. Pjetur Pjetursson,
síðar biskup, er þá var prestur á
Staðastað. Báðir höfðu þeir lokið
guðfræðiprófi með ágætiseinkunn
við Kaupmannahafnar háskóla og
Ásmundur verið hálfu ári á urxdan.
En Pjetur hafði það aftur á mótí
fram yfir, að hann hafði varið
doktorsritgerð í guðfræði.
Hinn nýi biskup var ráðríkur
maður og fyrir fylgi hans var sjera
Ásmundi veitt embættið. Fanst dr.
Sveinbjörn Hallgrímsson
Pjetri þá fram hjá sjer gengið og
sjer sýnd svo mikil lítilsvirðing
með þessu, að hann afrjeð að
hverfa af landi brott. Sótti hann þá
um prestakall á Sjálandi, en fekk
það ekki. Árið eftir fekk hann svo
sárabætur. Þá var prestaskólinn
stofnaður og. hann skipaður for-
stöðumaður hans, óg varð þess
vegna ekkert úr því að dr. Pjetur
flýði land.
Meðan Helgi Thordarsen var dóm
kirkjuprestur hafði hann látið