Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1948, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1948, Blaðsíða 12
488 LESBOK MORGUM BLAÐSLNS Þóroddur Guðmundsson: FERÐ Á INGJALDSSAND SUNNANROSINN haíði lengi ráð- ið ríkjum. Allar götur voru með pollum og auri, mýrarnar eins og svampur. Jeg vaknaði á miðjum morgni og reis þegar úr rekkju *Ólafur kennari drap að dyrum, ferðbúinn. „Veðrið er gott,“ sagði hann, „skýjað loft og úrkomulaust“ Hest- urinn beið úti fyrir, með# reiðtygj- um. Árbitui' stóð á borðinu. Jeg var ekki lengi að gera honum skil. Og svo lögðum við af stað. Förinni var heitið út á Ingjalds- sand. Sjera Eiríkur á Núpi og Guð- mundur Bernhardsson, bóndi og kennari á Ingjaldssandi, höfðu vak- ið áhuga minn á þossari bygð og longun txi að sjá liana, og .var jeg ekki í rónni íyr en þeirri ósk varð iullnægt. Leiðin lá fra Núpi út með Dýra- firði, fram hjá Gerðhömrum. upp Gerðhamradal og yfir Sandheiði. í dalnum er sums staðar talsverður gróður, en heiðin grýtt mjög eða melar einir, svo sem flestar heiðar eru á Vestfjörðum. Veður er þurt frarn um dagmál, hressandi suðlægur þeyr. skýja- bólstrar á íjoilum, en grisjar þo í loft stöku sinnum. Við stígum af hestunum í efstu geirum, áður en lagt er á heiðina, og lofum þeim að bíta kjarngresið. Svo er haldið áfram viðstöðulaust. Mjer er hin mesta nautn að ferðalaginu Hjer er svo ijett að draga andann, alt svo ferskt og nýtt fyrir þann, sem hefur alið manninn niðri á jáfn- sljettu og laglendi missirum sam- an. Líkaminn verður Ijettur, hug- urinn fleygur eins cg fugl Vellíð- an minni og gleði verður eigi með orðum lýst. Þegar við komum á norðuibrún Sandsheiðar, er byrjað að úða úr lofti smáfeldu regni. Það er aðeins enn meira hressandi. Ennþá er skygni sæmilegt. Við okkur blasir ákaíiega sjerstæð bygð. Fáir eru bæirnir að vísu, en reisulegir að sjá, með stórum túnum umhverfis. Ingjaldssandur heyrir til Mýra- hreppi eða Dýrafirði að sveitar- stjórn og fjelagsmáium, þó að Sand urinn liggi inn af Önundarfirði, utanverðum, sunnan fjarðarins. Á Sæbóli að Ingjaldssandi er útkirkja frá Núpi í Dýrafirði, og fer prest- urinn á Núpi þangað til að messa, ósjaldan gangandi, einkum á vetr- um. Meginhluti bygðarlagsins er dal- ur, sem liggur frá norð-norðvestri til suð-suðausturs. Hann er grösug- ur vel og með dýpri jarðvegi en víðast á Vestfjörðum. Eftir dalnum i'ennur Þverá. Hlíðar hans eru brattar og háar með bröttum tind- um. Segja munnmælin, að þar liafi menn hrapað til bana. Og borið hefur víð, að skriður hafi tekíð af bæi, sem ekki hafa bygst aftur. Meðfram sjónum er sendin strönd með hárri baru ofan við flæðar- málið. Dregur hverfið alt ásamt dalnum nafn sitt af sandinum Ná- lægt sjónurn stendur kirkjan, sem áður er nefnd, og jörðin Sæból kunnasta bújörð þarna og þótt víð- ar sje leitað. Við Ólafur kennari ríðum nú oí- an í dahnn, fram hjá bæjunum Halsi, Hrauni, Brekku cg Alfadal. Farið er að þyngia meira að í lofti; droparnir stækka og þjettast æ því meira sem við nálgumst húsaskjól- ið. Þegar við kornum til bústaðar Guðmundar starfsbróður okkar, er • dropakastið orðið að hellirigningu, sem linnir ekld minnstu vitund, á meðan við sitjum hjá Guðmundi í besta yfirlæti að miðdegisverði og kaffidrykkju frá því fyrir hádegi og íram undir nón. Okkur líður alveg frábærlega vel eftir heiðar- íörina á góðum hestunx, fjallaloftið lireint og örvandi, vöknaðir, en ckki votir til skaða af síðsumars- regninu. Alt hjálpast að til að gera okkur vistina notalega: ósvilún kjarnamáltíð, ilnxandi kaffi á eftir, fjörugar samræður og öryggiskend sú, að vita sig undir þaki Guð- mundar, þar sem regnið buldi án afláts. Urkomunni ljetti í bxli fyrir nón- leytið. Þá gengum við Ólaíur ofan að Sæbóli, og fylgdi Guðmundur okkur þangað. Fengum við að skoða þar kirkjuna og önnur mann virki. Eftir að hafa setið í góðu yfirlæti um stund á Sæbóli, hjeldum við til baka, tókum hesta okkar og bjuggumst til brottfarar af Sand- inum. Áður en við yfirgæfum þetta ein- kennilega bygðarlag, ljek okkur þó hugur á að koma að Brekku, þar sem Guðmmidur refaskytta á lieima. Var þar mikið hús að rísa frá grunni, og búið í fjárhusum, á ineðan það var í smiðum. Er bkkur boðið inn og gætt a þeim Ijúffeng- ustu berjum, sem jeg minnist að h.aía nokkurn tíma bragðað. Gleym um v' o okkur v.3 skemtilegar vtð- I

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.