Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1948, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1948, Page 11
1 það borist út, þótt árla dags væri, að Monty væri væntanlegur til klettavígisins. Sir Ralph beið okkar í stjórnar- byggingunni. — Umhverfis hann stóðu foringjar og forvitið þjón- ustufóik, sem langaði til að sjá Monty. „Halló Rusty“, sagði jeg bros- andi, því að mjer hafði verið sagt að kalla hann þcssu gælunafni. — „Ilvernig líður þjer?“ „Monty, það cr gaman að fá að sjá þig,“ sagði hann og tók inni- lega í iiönd mína. „Komdu inn með mjer, svo að við getum spjallað saman.“ Hann opnaði dyr að emkaskrif- stofu sinni, og við gengum þar inn. Þegar hann hafði lokað hurðinni virti hann mig fyrir sjer, og virt- ist harðánægður. „Þetta er hræðilegt, James“, sagði hann. „Hvernig ljek jeg’“ Jeg fullvissaði hann um að það hefði ekki mátt marka á mæli hans að þetta var leikur, og þá var eins og þungu fargi væri ljett af honum. Svo var matur á borð borinn. Jeg var orðinn svangur eftir ferða- lagið og mig blóðlangaði í steikt flesk og egg — en þá mundi jeg eftir þv,í að Monty borðar aldrei egg og engan mat af svíni. Jeg gerði mjer svo gott af öðrum rjettum og eftir mat gengum við landstjór- inn út í garðinn. Jeg tók þegar eftir 'því að „eitt1- hvað lá í loftinu“. Verkamenn voru að gera við húsið, en þótt þeir heldi áfram að vinna og ljetust ekki sjá okkur, heyrði jeg að þeir voru að hvíslast á og var mikið niðri fyrir. Svo ókum við landstjóri út til flugvallarins. Frjettin um komu Montys hafði borist eins og eldur í sinu um alla borgina, og nú var þreföld mannþröng á götunum móts við það sem áður var Fagn- aðarlæti hermanna og borgara fJSSBOK MORGUNBI-AÐSTNfl voru mikil og jeg varð að veifa og heilsa hvað eftir annað. Úti á flug- vellinum var hópur foringja og alt um kring fjöldi hermanna og borg- ara. Fáum klukkustundum síðar kom um við til Algier og þar komst jeg í fyrsta skifti í kynni við amerískar móttökur. Bíllinn, sem mjer var fenginn til umráða, var „lúxusbíll", og bílstjórinn var falleg amerísk yngismey. — Varðiið á bifhjólum fylgdi okkur frá flugvellinum, og þeytti horn bifhjólanna án afláts. Mjer fanst jeg vera orðinn höfuð- paurinn í einhverri „gangster“- kvikmynd. Aldrei hef jeg sjeð jafn ógæti- legan akstur. Vagnar landsmanna, flutningabílar hersins og einkabíl- ar urðu að hröklast út af veginum. Það skifti engu hvernig um þá fór, þótt þeir hefðu oltið um koll Því að nú var Montgomery hershöfð- ingi kominn til Algier! Og enginn hefur efast um það, að hann var þarna á ferð, er hin háværa fylking þeysti beint til aðalstöðva Sir Henry Maitland-Wilson hershöfð- ingja. Skyndilega var ævintýri mínu lokið. Montgomery hershöfðingi gufaði upp. Enginn maður veitti hina minstu athygli hinum grann- leita liðsforingja, sem kom út frá hershöfðingjanum, með tösku í hendi og fór um borð í flugvjel, sem ætlaði til Kairo. Þar átti jeg að bíða rólegur. Jeg þurfti ekki lengi að bíða. — Morguninn 6. júní kom liðsforingi sá, sem mjer hafði verið komið fyrir hjá, æðandi inn til mín og sagði: „Hefurðu heyrt frjettirnar? Her- sveitir okkar gengu á land í Frakk- landi í morgun.“ NOVEMBER Geislum hallar glaöa lól. , grundir varla hlýna, hnúka alla og heiðarbó. liyhir mjallardýna. Sljörnu falla .r sloröu mjallar Ijósir, háll til fjalla'hrrhuir gljá hrunkrysluHu ró:<;/1. BEN EDl KT !3INARSSON, fliðengi. ^ 4/ V KONA nokkur kom upp í stræt- isvagn í Adelaide í Ástralíu Hún litaðist um eftir sæti. Þá stóð mað- ur á fætur og bauð henni sæti sitt. Henni varð litið á hann, og í sama bili hrópaði hún hástöfum: ,Georg , og fell svo í ómegin. Þarna var þá eiginmaður hennar kominn, en henni hafði verið tilkynnt að hann hefði fallið í stríðinu. Georg hafði særst hættulega og misst minnið svo algjörlega að hann mundi ekki neitt af sinni fyrri ævi og hafði ekki hugmynd um hver hann var nje hvað hann hjet. En við þennan atburð varð honum ákaflega bylt. Hann starði lengi á konuna og smám saman for að rofa til í svartnætti minnisleys- isins. Augu hans skýrðust, óljósar endurminningar vöknuðu og innan stundar þekkti hann konu sína. 4/ 4/ 4/ Þegar kona lækkar róminn, er það merki þess að hún vill fá eitthvað. Þegar hún hækkar róminn er það merki þess, að hún hefir.-ekki fengið það. I

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.