Lesbók Morgunblaðsins - 08.01.1950, Síða 5
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
5
og fylgdarlið þeirra ætlaði að
drekka te hjá okkur klukkan 5.
Við tókum á móti konungshjónun-
um við hliðið, um leið og þau stigu
á danska grund....
Kl. 7 var miðdegisverður hjá
Jóni Magnússyni forsætisráðherra.
Þangað voru ekki boðnir aðrir en
konungshjónin og föruneyti þeirra
og við Sveinn Björnsson ásamt
konum okkar. Fyrir svolítið óhapp
settist fólk heldur seint að borð-
um.
28. júní: — Farið til Þingvalla.
Skemtilegur morgunverður í sól-
stöfuðu tjaldi. Samkoma á Lög-
bergi, Jón Magnússon helt ræðu.
Sungið var „Eldgamla ísafold“
undir hornamúsik. Svaf ekkert um
nóttina.
29. júní: Leið illa imi morgun-
inn, en afrjeð þó að halda áfram
til Geysis. Hrestist. við morgun-
kaffi og egg. Fekk góðan hest, en
komst seint á stað. Reið næstur á
eftir Gamst forstjóra Ritzaus Bure-
au og hann var síkvartandi um það
hvað hann hefði fengið vondan
hest. Þess vegna hafði Helga hesta-
skifti við hann og losnaði þar við
lala tnmtu, sem hún var á. Bráð-
skemtilegt ferðalag meðfram Þinj'-
vallavatni. Varð ljettur í skapi og
þreytan hvarf. Komum við í bvgð-
um hclli, það var mjög gaman.
Ágætur morgunverður og ó-
áfengt öl hjá Laugarvatni. Vegna
þess að fólkið ruddist að borðum
og allir vildu verða fyrstir, biðum
við Helga og Sveinn Björnsson til
seinni umferðar og sátum þá gegnt
þjónustnfólki konungs, en það dró
livorki úr matarlyst okkar nje glað-
værð.
Eftir það skoðuðum við hverina
og svo var lagt á stað í glaða sól-
skini á eftir hátignunum. — Við
Svcinn Björnsson sungum og nut-
uni þessa skemtilega ferðalags. Víð
nðum Iiratt og náðum föruneyti
konungs, og siðan var greitt farið
og komið að Geysi kl. 6 um kvöld-
ið. Eftir kvöldverð var reynt að
fá nokkra smáhveri til að gjósa, en
það tókst misjafnlega. Þar var
skrítið náttból í „kojum“.
30. júní: Skoðaði umhverfi Geys-
is um morguninn. Kl. 1 var lagt á
stað til Gullfoss. Þá var drumb-
ungsveður. Við sátum lengi í brekk
unni og horfðum á fossinn fyrir
neðan okkur. Seinna gengum við
alveg niður að honum. Þar var svo
margt um manninn, mikil ókyrð og
mikill úði úr fossinum, að jeg naut
þess ekki eins vel nú og fyrir 21
ári að horfa á fossinn. Fæstir hugs-
uðu víst um þann reginmun, sem
er á hinum voldugu náttúruöflum,
sem byltast sí og æ í freyðandi
holskeflum Gullfoss, og í hinum
sjóðandi, marglitu hverum hjá
Geysi — og svo annars vegar hin-
um litlu manneskjum, sem lifa svo
stutt og' orka svo litlu. En sem
skikkanlegir ferðalangar gengum
vjer um kring og enginn haíði tíma
til þess að sökkva sjer niður í þau
hughrif, sem þessi fögru náttúru-
undur geta seitt frarn.
Um kvöldið var afhjúpaður
minningarsteinn — til minningar
um komu konungshjónanna — og
konungur helt hjartnæma ræðu á
íslensku.
1. júlí: Farið yfir Hvítá. Það var
skemtilegt ferðalag. Þegar leið á
daginn fór að rigna og vjer fórum
í olíuföt. Um kl. 4 síðdegis var far-
ið yfir Laxá og það var gaman,
cinkum að horfa á 5 menn sem
sundriðu hana. Svo var farið á bíl-
um að Ölfusá. Þar fengum vjer
inni í bankahúsinu, ásamt kon-
ungshjónunum og fylgdarliði.
Daginn eftir vildu þeir Sveinn
Björnsson og Jón Magnússon halda
þarna samkomu fyrir mannfjöld-
ann. sem kominn var úr nærsveit-
unum, og jeg lofaði að tala fyrir
minni Islands, Nu var fólkx stefnt
að bruxmx. Fyrst var sungxð, svo
mælti jeg fyrir minni íslands og
Sveinn Björnsson fyrír’Hiinni Dan-
merkur. Jón Magnússon ávarpaði
hjeraðsbúa. Svo kom drotningin
þangað og þá fengurfl vjer Benedikt
Sveinsson til þess að tala fyrir
minni hennar. Svo talaði Svenn
Poulsen fyrir minni íslenskra
bænda. Þessi samkóma fór mjög
vel fram og hið eina Sém fyrir kom
á ferðalaginu er getur haft þýð-
ingu lengur en fyrií augnablikið.
2. júlí: Ókum í skínandi veðri og
sólskinsskapi upp að Sogsbrú. Þar
reyndi konungur að veiða, en tókst
ekki. Svo var stigið á hestbak og
riðið upp að Sogsfossum. Skemti-
leg leið, en mikið mýbit. Erfið
ganga niður að írufossi, sem er
fallegur að horfa á ofan frá. Svo
í gegn um mývarginn þangað sém
hestarnir biðu, og riðið aftur uiður
að Sogsbrú. Þar biðu bílarnir. Nú
var ekið upp Kamba og fram hjá
Kolviðarhóli til Reykjavíkur og
þangað komið kl. 7. Bob kom á
móti okkur við Elliðaárnar.
3- júlí: Fórum út á íþróttavöll
og sátum þar í brennándi sólskini
í þrjár klukkustundir, og urðum
að berjast við að sofna ekki. Kven-
leikfimi, knattspyrna ög hlauparar
frá Álafossi. Kl. 8 helt bæjarstjórn
veislu í íþróttahúsinu og þar helt
Jón Þorláksson verkfræðingur
hollystufulla ræðu. Daíis á eftir.
Fórum heim í dynjándi regúi.
4. júlí: Gekk fyrir kónúrig um
morguninn. Hans liátign ‘Ijet pá í
Ijós ánægju sína út áf þVí áð iiú
sæist fleiri danskir fánái á stöng-
um heldur en þegar h'diiii kom. Kl.
10 kvaddi konungur á Stcinbryggj-
unni.---------
ííxqa go muio'
Áramótaliátíð í scudihcrra-
hústaðnum.
arnsn iááa,
Áramótin voru hátíðiég íiáidin í
bustað danska sendiherrans og
boðið þangað exns möigUm gestum
og husið rurnaði. — Meðal bláða
■j ■. 5i.'