Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1950, Page 7
LESBÓK MORGUNBL MDSINS
51
Þessi eðlisfræðingur var nú þegar
tekinn og sendur rakleitt til
Moskva. Síðan hefur. ekkert til
hans spurst. En skömmu eftir hvarf
hans komu rússneskir malmleitar-
menn, verkfræðingar og herlið til
Oberschlema og Aue. Jafnframt
var lýst yfir því að landinu væri
lokað, þarna væri bannsvæði.
Þetta bannsvæði er nú orðið
stærra en Ruhrhjeraðið. Það er
eins og þríhyrningur í laginu,
grunnflöturinn milli Zwickau og
Chemnitz í Saxlandi, en totan nær
alla leið suður að Karlsbad í Tjekkó
slóvakíu. Það skiftir engu máli fyr-
ir Rússa, að nokkur hluti þessa
bannsvæðis er í Þýskalandi, en
nokkur hlutinn í Tjekkóslóvakíu,
því að landamæri eru ekki lengur
til þarna nema í orði kveðnu, held-
ur eru Rússar jafn einráðir í Tjekkó
slóvakíu eins og þeir eru í eystra
hernámshluta Þýskalands.
Þegar rússnesku byltingarinnar
var minst í Prag hinn 6. nóv. s.l.
mintist Zapotocky forsætisráðherra
á það, að Tjekkar hjálpuðu Rússum
um úraníum, og að þeir væri stoltir
af því að geta þannig hjálpað stóra
bróður. Hitt mintist hann ekki á,
að þúsundir frjálshuga Tjekka hafa
verið sendar til þrælkunarvinnu í
úraníumnámunum.
RÚSSAR hafa kastað eign sinni á
allar námur á bannsvæðinu, og
einnig á öll fyrirtæki Þýskalands
megin, sem á einhvern hátt stóðu
í sambandi við námagröft. Hafa
þeir sameinað þetta í eitt allsherjar
fyrirtæki, sem þeir nefna „Wis-
muth A. G.“ en er ekki annað en
deild úr malmiðjuhring sovjets. —
Undir þessu nafni reyna þeir að
skýla því hver tilgangurinn er.
„Wismuth A. G.“ var stofnað í
maí 1947 og hefur nú undir 20 nám-
ur, þar sem úranium er unnið. Eru
námur þessar, eða námasvæði á víð
og dreif, en aðallega þó hjá Ober-
schlema, Niederschlema, Aue,
Annaberg, Marienberg, Schwarzen
berg og Johann-Georgenstadt. Að-
albækistöð fyrirtækisins er í Aue.
Forstjóri þess er Maltsev, hershöfð
ingi í Rauða hernum, og hefur hann
undir sjer ýmsa rússneska verk-
fræðinga og hagfræðinga, sem all-
ir hafa nafnbætur í Rauða hernum.
Framkvæmdastjóri er Baranjok
majór og hann hefur yfirráð 87.000
verkamanna.
í Tjekkóslóvakíu er fjelag með
sama nafni, en það er ekki annað
en grein af þessu rússneska fyrir-
tæki. Það sjer um námareksturinn
í Bæheimi, en Rússar hafa ná-
kvæmt eftirlit með öllu, sem fram-
leitt er þar.
ÞEGAR námugröfturinn í Sax-
landi hófst árið 1946, var vinnuafl-
ið ekki mikið, líklega 15—20,000
manna. Voru það aðallega fylgis-
menn Hitlers, SS-menn og SA-
menn, sem teknir voru í þræla-
vinnu. Það var nú samt ekki farið
jafn illa með þá og við mátti bú-
ast, enda eru nú margir þeirra
orðnir helstu ráðunautar Rússa og
verkstjórar í námunum.
Brátt var vinnuaflið aukið þarna
með því að senda þangað „annars-
konar glæpamenn", sem sje jafn-
aðarmenn, sem ekki vildu eiga
samneyti við kommúnista, kristi-
lega jafnaðarmenn og frjálslynda,
sem voru ákærðir fyrir skemdar-
verk og makk við Vesturveldin og
loks kommúnista, sem talið var að
hefði svikist undan merkjum, eða
ekki fylgt línunni frá Moskva. Enn
fremur voru sendir þangað her-
menn úr Rauða hernum, sem dæmd
ir höfðu verið fyrir allskyns yfir-
sjónir. Það var því misjafn sauður
í mörgu fje þarna í þrælavinn-
unni.
Þegar reksturinn fór að færast í
aukana, kom í Ijós að ekki var hægt
að fá nægan vinnukraft á þennan
hátt. Varð því að leita nýrra
bragða. Voru nú gerðir út leiðangr-
ar til þess að ræna mönnum. Þeir,
sem stóðu fyrir þessu þokkalega
atferli voru kallaðir „Kopfjáger“
— eins og mannætur og villimenn
— og þeim tókst að smala álitlegum
fjölda manna til þrælkunar á ár-
unum 1947—48. Aðallega var rænt
þeim mönnum, sem áttu heima á
hernámssvæðum Vesturveldanna,
en voru staddir á hernámssvæði
Rússa. Voru svo mikil brögð að
þessu að hernámsyfirvöld Breta,
Frakka og Bandaríkjanna mót-
mæltu harðlega mannránunum.
Síðan í ársbyrjun 1949 hafa Rúss-
ar beitt allskonar brögðum til þess
að ná í nægilegt vinnuafl. Bæði er
nú það, að þeir þurfa á vaxandi
vinnuafli að halda og svo verða
mikil vanhöld meðal verkamann-
anna, því að þeir hrynja niður og
margir strjúka. Hefur nú verið tek-
inn sá kostur að skylda menn um
alt Austur-Þýskaland til þess að
vinna í námunum. Harðast hefur
þetta komið niður á Saxlandi og
Thúringen, sem næst liggja náma-
svæðinu, en það bitnar einnig all-
þungt á Sachsen-Anhalt, Branden-
burg og Mecklenburg. Ef verka-
menn vilja ekki hlýðnast því að
fara til námanna, taka Rússar af
þeim alla skömtunarmiða, svo að
þeim eru allar bjargir bannaðar.
Svo er látið heita, að þessi skyldu
vinna sje aðeins eins árs skylda,
og eftir árið sje verkamennirnir
lausir. En þeir hafa komist að raun
um, að ekki er auðið að sleppa aft-
ur fyr en Rússum þóknast. Þessi
árssamningur, sem þeir gera við
rússnesku yfirvöldin, framlengist
sem sje af sjálfu sjer alveg óendan-
lega. Enginn getur losnað, nema því
aðeins að hann fái mann í staðinn
fyrir sig, og það er ekki hlaupið að
því, þar eð enginn fer af frjálsum
vilja í námavinnuna.
Frh. á bls. 55.