Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1950, Síða 1
Cjucfm. -JCarhson Irunauödur:
Bruninn mikli 1915
Hótel Reykjavík aS brenna. Yst til vinstri sjest á Herdísarhúsið.
LAUGARDAGINN 24. apríl 1915
voru gefin saman í hjónaband
jungfrú Jósefína Zoéga og Mr.
Hobbs fiskkaupmaður. Helgi Zoéga
hjelt brúðkaupsveislu dóttur sinn-
ar og fór hún fram að Hótel Reykja
vík, en það var timburhús, tvær
hæðir og ris og stóð þar sem nú
er versl. Júlíusar Björnssonar og
Skóversl. Stefáns Gunnarssonar við
Austurstræti. Eigandi hótelsins var
Margrjet Zoéga, systir Helga.
Segist Helga svo frá, að kl. um
tvö hafi veislugestir flestir farið, en
brúðhjónin kl. um hálf þrjú um
nóttina. — Klukkan lauslega þrjú
voru þau að fara, Helgi og fólk
hans, voru um það bil að kveðja
Margrjeti. Annað fólk statt í hús-
inu, voru tvö börn Einars Bene-
diktssonar, en hann var tengda-
sonur Margrjetar, Guðjón Jónsson
dyravörður, nú kaupm., Englend-
ingur nokkur er þar bjó og nokkr-
ar þjónustustúlkur. Runólfur Stef-
ánsson, vinnumaður hjá frú Mar-
grjeti var genginn til náða á her-
bergi sínu er var á kvisti hússins.
í Ingólfshvoli, sem enn stendur
á horni Pósthússtrætis og Hafnar-
strætis, bjó ásamt konu sinni, Egg-
ert Briem bóndi frá Viðey. Hjá
honum voru gestir þetta kvöld,
Guðjón Sigurðsson úrsmiður, Ólaf-
ur Björnsson ritstj. og Hannes Haf-
stein þá bankastj. — Kl. tæplega
þrjú fóru gestirnir og fylgdu þau
hjónin gestunum heim á leið eða
suður að apótekinu, en það var þá
á horni Thorvaldsensstrætis og
Kirkjustrætis. Kvöddu þau þar gest
ina og sneru heim á leið. Varð
Eggert þá litið á Hótel Reykjavík,
en það blasti nú við þeim hjón-
um handan við Austurvöll. Sá hann
þá eldbjarma í glugga á annari
hæð. Hljóp Eggert þegar af stað
sem fætur toguðu og kallaði um
leið: „Eldur! Eldur!“. Heyrðu til