Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1950, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1950, Page 2
hans tveir menn, er voru á gangi þar skamt frá, en annar þeirra mun hafa verið Þórður Geirsson, þá næt urvörður. Brugðu þeir þegar við og gerðu slökkviliðimi aðvart með svo kölluðum „brunakallara“ eða það sem nú er nefnt brunaboði. Eggert hljóp nú áfram að hótel- inu og inn í veislusalinn á fyrstu hæð, en þar var fólkið statt, sem fyr segir frá. Kallaði hann upp að kviknað væri í húsinu, en ekkert þeirra virtist trúa því. Hljóp Egg- ert áfram upp stigann og upp á loftið. Kom fólkið á eftir honum þrátt fyrir vantrú sína. Margrjet opnaði nú hurðina að herbergi sínu, er var nr. 29 og sást þar ekkert athugavert. Reyndi hún því næst dyrnar að nr. 28, en tókst ekki að opna þær, sem ekki var von, því þær voru læstar. Kom nú Guð- jón Jónsson, sneri lyklinum í skránni og opnaði dymar. Var her- bergið þá alelda að innan, þó mest að ofan, eftir því, sem þeim segist frá. Var myrkur niðri við gólfið og gátu þau sjer þess öll til að þar hefði safnast saman reykur og gas. Eldurinn magnaðist nú strax er hurðin var opnuð og ætlaði Guð- jón því að skella henni aftur, en tókst ekki. Virðist hún því hafa verið skilin eftir opin. Margrjet ætlaði nú inn í herbergi sitt til að ná i einhverja muni, er hún hugð- ist bjarga, en Guðjón varnaði henni þess og þaut fólkið nú út á götu, enda mátti ekki seinna vera, því nú kváðu við sprengingar, hver eftir aðra og varð húsið alelda á einu augabragði. Vinnustúlkur komust þó út úr kjallaranum um glugga. Guðjón braust einnig inn í kjall- arann til að loka fyrir gasið, en húsið var lýst með gasljósum. Eggert hljóp nú að þinghúsinu og braut bmnaboða, og var það annað kaliið. cr kom frarn á slökkvistöð- inni Þorður Geirsson hafðr þeg- ai gert aðvait. — Áfram hljóp LESBÓK MORGUiNBLAÐSINS Eggert og niður að slökkvistöð í Tjarnargötunni. Þar var Gísli Hall- dórsson varðmaður ásamt öðrum manni. Voru þeir þegar komnir út með slönguvagn og á leið að eld- stað. Eggert tók nú við vagninum og fór með hann ásamt Kolbeini Þorsteinssyni, trjesmíðameistara, er var í slökkviliðinu, en Gísli fór að vekja slökkviliðsstjóra og slökkviliðið, en það var gert með hringingu heim til þeirra. Slökkviliðsstjóri var þá Guð- mundur Olsen, kaupmaður, en vara slökkviliðsstjóri Pjetur Ingimund- arson, síðar slökkviliðsstjóri. Sögðu þeir síðar að hringt hefði verið til sín eðlilega snemma, eða um kl. 3.15. Var slökkviliðsstjóri kominn á eldstað um 8 mínútum síðar, að því er hann segir sjálfur frá. Þess ber að geta, að einhverju örlitlu getur munað um tímaákvörð un í þessu sambandi eins og sjest á eftirfarandi bókun í dagbók slökkvistöðvarinnar frá þeim tíma: „Ár 1915 hinn 25. apríl kl. 3,18 árdegis, kom fram brunaboð frá 10 á 3. línu og frá 12 á 3. línu og 4 á 1. línu og var eldur í Hótel Reykja- vík í fyrstunni og breiddist hann út. Miðbæjarliðið var kvatt til og Austurbæjar- og Vesturbæjarliðið. Miðbæjarmenn mættu seint og voru 3 menn sem komu á stöðina eftir 4 mínútur en hinir komu ekki, en fóru að eldinum. 39 slöngur voru notaðar við eldinn. Slökkviliðs- menn mættu allir nema Jónas H. Jónsson og Kristinn Árnason, sem höfðu gildar ástæður, voru fjar- verandi. 26. apríl Rvík 1915. G. Olsen." Stutt og laggott. í þá daga voru 36 menn í aðal- slökkviliðinu. Var þeim skipt nið- ur í þrjár tólf manna sveitir, Vest- urbæjav, Miðbaejar og Austurbæj- arlið. Þessir menn höfðu bjölhxr heima hjá sjer og voru hringdir ut er eld bar að hönduin. Auk þessa voru allir verkfærir menn í bæn- um skyldir til að mæta á eldstað og gengu þá menn um bæinn (bruna- kallarar) með lúður einn mikinn og framleiddu með honum ámát- legt hljóð. „Brandlúður“ þessi var borinn á brjósti og snúið þar hand- íangi. Tæki stöðvarinnar voru frekar fábreytt. Þrjár handslökkvidælur, þrír björgunarstigar, einn sjálf- heldustigi og átta slönguvagnar. Þótti það víst nóg íyrír ekki stærri bæ en Reykjavík. Þrem árum áð- ur hafði Ágúst Flygenring í Hafn- arfirði útvegað vjeldælu frá Sví- þjóð, en umboðsmaður var kap- teinn Carl Trolle (Trolle & Rothe). Dæla þessi var á fjórum hjólum, sem óalgengt var þá og dældi um 480 lítrum á mínútu hverri. Þáver- andi borgarstjóri, Páll Einarsson, taldi dæluna of stórvirka fyrir Reykjavík og vildi ekki kaupa. Var og álitið að ekki þyrl'ti dælur eftir að valnsveitan kom 1912. Þessi dæla var síðan geymd hjer, og síð- asta árið í vörslu 'slökkviliðsins. Til gamans má geta þess, að nú mundi jafn afkastalítil dæla sem þcssi ekki þykja nothæf við slökkvistarf. Sæmileg slökkvidæla nú á dögum dælir um tveim tonnum vatns á mínútu. — Þessi umdeilda dæla var nú tekin traustataki um kl. i'jögur um nóttina og stjórnaði henni hr. Jessen frá Stýrimanna- skólanum. Er það álit margra að dælan haíi átt sinn stóra þátt í að takast skyldi að stöðva útbreiðslu eldsins þar sem raun varð á. Slökkviliðsstjóra mun hafa fundist að mcnn mættu ekki nægj- anlega fljótt og vel, því hann bað nú menn að fara til brunakallar- anna, en þeir voru Magnús Guð- mundsson á Bergsstöðum í Aust- urbænum og Bjarni Pjetursson, blikksmiður i Vesturbænum. Ann ar þeirra manna, er um þetta voru beðmr vrar Þórður Geirsson og fór

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.