Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1950, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1950, Qupperneq 16
134 LESBÖK MORGÖNBLAÐSINS Landkynning í London I’jNDANFARIN ár hefur mikil og góð landkynning orðið að ferðum íslenskra flugvjela milli flughafna víða um heim. Hefur það vakið feikna athygli, að svo fámenn þjóð og íslendingar skuli vera jafn framarlega á sviði flugmálanna og raun ber vitni um. Sjerstaklega hefur það þótt til fyrirmyndar, að áhafnir milli landaflugvjelanna skuli vera íslenskar, en þess eru mörg dæmi um aðrar og stærri þjóðir, að flugvjelum þeirra er stjórnað af erlendum mönnum. Einn þáttur þessa landkynningarstar's íslensku flugfjelaganna er gluggasýning, sem flugfjelagið Loftleiðir hafði í s.l. des. og jan. mánuðum í stórum sýningar- glugga Kensington flugstöðvarinnar í London. Umboðsmaður Loftleiða í Lond- on, Björn Björnsson, stórkaupmaður, átti frumkvæði að sýningu þessari, sem vakti mikla athygli, bæði sökum þess hve smekkleg hún var og eigi síður vegna hins, að hjer var um að ræða fyrstu gluggasýningu íslensks fyrirtækis i London og markar hún að því leyti timamót. Myndin. sem hjer birtist var tekin af Foul Henning, ljósmýndara í London, en hann var á ferð hjer heima seinnipartinn í fyrrasumar og tók þá margar og einkennilegar Ijósmyndir af landi og þjóð. telsen í rauðu pilsi og hafði sófl mikinn reiddan um öxl og danglaði með honum í tunnuna, eða bá í Rauð, en hann jós við hvert högg og vakti riddarinn og klárinn mik- inn hlátur áhorfenda. Veður var gott þennan dag og hjarn lá yfir ísnum á tjörninni. Var því gott að spretta úr spori þarna og riðu kapparnir á spretti að tunn- unni og börðu hana með lurk eða refði, sem þeir höfðu í höndum, en hljóðfærasláttur kvað við á undan hverri atlögu og á eftir. Flestir þeir Reykvíkingar, er vetlingi gátu vald -ið, voru komnir til að horfa á og skemtu sjer ágætlega. Stóð bessi skemtun nær tvær klukkustundir. Kattarkóngur varð Jón Þórðarson frá Vigfúsarkoti (bróðir Þorgríms læknis sem seinast var í Kefla- vík). Reið Jón á leirljósum hesti, hinum mesta gæðing og fallegum, og vakti það almennan fögnuð er Jón sló hausinn af hrafninum, eftir að tunnan var fallin í stafi.* FLENGINGAR tíðkuðust þá einn- ig á mánudaginn í föstuinngang og meðal hinna efnaðri var það venja að gefa öllu fólkinu bollur þann dag. Enginn fór þá út úr húsi til flenginga, heldur ljetu menn sjer nægja að flengja heimafólk. En þegar „marcheringunum" ljetti tóku flengingar að fara í vöxt og var þá jafnvel farið að ganga húsa á milii til flenginga þangað til þetta var orðinn allsherjar siður og tekju lind fyrir bakara og þá sem búa til blómavendi. Helst þetta enn og hef- ur dagurinn fengið nafnið „bollu- dagur.“ * í endurminningum sínum segir Daniel Danielsson frá þessum atburði og er frásögn hans nokkuð á annan veg, en það stafar af misminni. „ísa- fold“ segir einnig frá þessu og kallar þetta „danska þjóðskemtufi.... sem mátti segja að væri góðra gjalda verð, heldur en ekki neitt, þótt veglegra mætti að hafast til íþrótta." Frækinn stökkmaður Þeir Guðbrandur og Hljóða-Bjarni synir Prjóna-Pjeturs voru stökkmenn miklir, einkum Guðbrandur. Þeir voru látnir prjóna duggarapeysur í ungdæmi sínu, eins og þá var títt. Stjaki stóð á hlaðinu á Heiði (á Langanesi) tveggja alna hár, og var höggvinn stallur í rniðjan stjakann. Það var leikur þeirra bræðra að bregða sjer út með prjón- ana, hlaupa upp á stjakann og fóta sig eíst á honum, og fella þó ekki niður lykkjuna. Guðbrandi tókst það, en Bjarna ekki. Einu sinni kom Guðbrand- ur gangandi til Sauðaneskirkju og stóð margt fólk úti á hlaði. Þar stóðu líka fjórir hestar, bundnir hver aftan í ann- an. Stóð sá ysti við stjaka en stjakinn við for. Guðbrandur bregður á skeið og hleypur yfir hestana og forina. — Hlaupið var mælt og var meira en fimtán alnir. (Ól. Daviðsson).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.