Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1950, Side 1
w JEtitöimií
11. tölublað. Sunnudagur 19. mars 1950. XXV. árgangur.
FAÐIR ÞJÓÐSKÁLDSINS
AFI minn Jochum í Skógum hefur
látið eftir sig nokkrar ritgerðir
skrifaðar á árunum 1875—78, sem
hafa að geyma ýmsan fróðleik um
búnaðarhætti á Breiðafirði á fyrri
helmingi nítjándu aldarinnar, æfi-
atriði presta í Vestfirðingafjórð-
ungi á sama tímabili og bænda-
tal í Reykhólasveit o. fl. Sonarson-
ur hans Samúel Eggertsson, skraut-
ritari, varðveitti þessar ritgerðir,
en bróðir Samúels, síra Matthías
Eggertsson, hefur síðan hreinskrif-
að þær og lánað mjer.
Þótt í þessum eftirlátnu blöðum
finnist ekki mikið um höfundinn
sjálfan, þá hef jeg þó við lestur
þeifra fengið hvöt til að fara nokkr-
um orðum um Jochum og ættingja
hans, sem jeg annars hefði látið
ógert, og styðst jeg nokkuð við það,
sem sonur hans, síra Matthías Joc-
humsson hefur skrifað um föður
sinn, og einnig upplýsingar þær,
er jeg hef getað fengið af blöðum
þessum.
Ein af þeim ritgerðum, sem hjer
ræðir um, er „Ágrip af æfiatriðum
með lýsingu á prestinum síra Jóni
Ólafssyni, er þjónaði Staðarpresta-