Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1950, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS +~'
165
Alfred Karlsson:
ÞRÓUN ULLARIÐNAÐAR
Spunalistin.
FYRIR nokkru gerðu fornfræðing-
ar allmiklar fornleifarannsóknir í
Egyptalandi á háslettu nokkurri,
sem heitir Sakkarra, 25 kíló-
metrum fyrir sunnan Cairo. Kom
brátt í Ijós að þarna haíði verið
grafreitur hinnar ævagömlu Memp-
his-borgar, sem um 600 árum fyrir
Krists fæðingu hafði sömu þýð-
ingu fyrir Egyptaland sem heims-
borgirnar París, London og New
York hafa í dag fyrir umheiminn.
Þarna fanst margt, sem benti á
menningu og listir Egypta á sviði
vefnaðar. Loftslag í Egyptalandi er
mjög þurt og milt, og því hafa
gripirnir geymst alveg óskemmdir.
Meðal annars fannst þarna „múm-
ía“ af hinni fögru Nanes Bastes
í skrautlegum klæðum. Hún mun
hafa verið gift musterisskrifaran-
um Ka-Nefers. Fyrir ca. 2560 árum
lifði Nanes við auð og allsnægtir,
og þykir mjer ekki óhugsandi, að
hún hati spunnið og ofið klæði sín
sjálf. í þá tíð var spunnið með teini
eða grófu hjóli, og þannig var
spunataugin spunnin í fínan þráð.
Margar sögurnar eru til um
leyndarmál kínversku keisara-
drotningarinnar Si-Tii>g-Chi, sem
fann silkiorminn. Sagt er að hún
hafi verið gift hinum mikla keisara
Hwang-Ti, sem fyrir ca. 4500 árum
hafi stofnað silkiiðnaðinn, sem Kín-
verjunum tókst að halda leyndum
í 3000 ár.
Margar sagnir eru einnig til um
það, hvernig silkiormurinn hafi
flust til Evrópu. Ein sagan segir,
að fyrir ca. 500 árum hafi tveir
l'ulikumui uvtisku ullarversmiója i Udeuseu a Fjoui.