Lesbók Morgunblaðsins - 07.05.1950, Page 1
17. tölublað.
Sunnudagur 7. maí 1950.
XXV. árgangim
Ölaíur Þorvaldsson:
Fólk glápti hissa á fyrsta vagn»
inn sem fór Hafnarfjarðarveg
Kynni mín af Hr. Pike Ward
FYRIR skömmu barst Þjóðminjasafninu dýrmæt og merkileg- gjöf frá
Englandi, margir þjóðlegir íslenskir munir, sem enski fiskkaupmaður-
inn Pike Ward hafði safnað hjer á þeim tveimur árum, sem hann dvald-
ist í Hafnarfirði. Munu því margir íslendingar hafa gaman af að vita
nokkur deili á þessum manni.
PIKE WARD var Englendingur.
Hann var útgerðarmaður og fisk-
kaupmaður. Til íslands mun hann
hafa komið nokkru fyrir síðustu
aldamót, í útgerðar- og fiskkaupa-
erindum. Til Hafnarfjarðar kom
hann árið 1899. Tók hann þar á
leigu af Þorsteini Egilson, kaup-
manni, allmörg hús og fiskverkun-
arland, gerði út á saltfiskveiðar
einn togara, keypti máske eitthvað
af fiski og verkaði hann allan í
Hafnarfirði. Vorið eftir kom hann
aftur til Hafnarfjarðar, en hafði þar
þá enga útgerð, en keypti allmikið
af fiski upp úr salti, og verkaði.
Mr. Ward, en svo var hann venju
-lega nefndur hjer á landi, og með
því ávarpi minnist jeg hans ávalt
síðan, þegar mjer kemur hann ?
hug, var þegar hjer var komið
sögu, um fimtugsaldur, vörpuleg-
ur að vallarsýn, sviphreint andlit,
og gáfulegt yfirbragð, hversdags-
gæfur og góðlyndur. Hann var, eins
og Englendingar segja, sannur
gentlemaður. Hann var því vel lát-
inn af öllum þeim, sem hjá honum
unnu, eða kyntust honum á annan
hátt.
Merkasta nýung, sem Ward flutti
íslendingum, var meðferð og verk-
un á smáfiski, sem síðar gekk vndir
nafninu Labri, Wardari eða Ward-
fiskur.
Nýung var það í Hafnarfirði og
sennilega einstök hjer á landi, að
hann merkti með tölustöfum öll
vörugeymsluhús, sem hann hafði á
leigu og svo auðvitað lykil að
/
Pike Ward.
hverju húsi með sömu tölu. Á sama
hátt merkti hann uppskipunarbáta
sína, því að þá var engin stórskipa-
bryggja í Hafnarfirði, og fór því
allur flutningur milli skips og
lands fram á þessum svonefndu
uppskipunarbátum.
Fyrstu kynni mín af Ward urðu
ekki fyrr en seinna sumarið, sem
hann var í Hafnarfirði, eða árið
1900. Að vísu hafði jeg árið áður
unnið fáa daga við losun á saltfiski,
úr togaranum Utopia, sem hann