Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Side 2
LEbtíÓK MORGUNBLAÐSENS 4u6 skipin á höíninni. Það var sein sje ákaflega auðvelt í náttmyrkri að flytja vörur úr hinum framandi skipum inn um glugga og vind- augu á húsunum. En vegna þess að húsin standa þannig út í sjó, þá skella bárur á þeim þegar stór- streymt er og flæða upp í götuna svo að annar endinn á Commercial Street verður ófær. Nú sem stend- ur setja síldveiðar sinn svip á bæ- inn. Á morgnana fyllist höfnin af gargandi mávum, sem elta bátana í stórhópum. Stórhuga síldarkaup- menn streyma þangað til þess að vera við þegar uppboðið á síldinni hefst. En þrátt fyrir ellilegt útht og miðaldabrag á skipulagi, þá er Leir- vík ekki gömul. Elstu byggingar staðarins eru frá 17. öld.ofanverðri og sum gömlu húsin frá byrjun 18. aldar. Fram yfir 1600 var Scalloway höfuðborgin. Þessi gamli staður, sem nú hefir fengið svo afbakað nafn, að það er trautt þekkjanlegt — norræna nafnið hefir verið Skálavágur — stendur vestan á eynni og er þangað um ltá mílu vegur frá Leirvík. En tvímælalaust hefir Leirvík verið höfn alt frá vikingaöld. í íslenskum fornritum er hennar getið á 13. öld. Þegar Hákon konungur Hákonarson fór leiðangurinn til Suðureya 1263 til þess að berja á Skotum þar, leitaði floti hans lægis milli Bressay og lands, þar sem Leirvík er nú, og lá þar í hálfan mánuð. Mikill hluti þessa glæsilega flota fórst í sjóor- ustunni hja Largs í Skotlandi stinna um sumarið og ltonungur dó á heimleið í Kirkjuvági (nú Kirkwall) i Orkneyum. * * * Hvergi á Hjaltlandi er lengra en fimm kílómetrar til sjávar, ekki einu sinni á aðaleynni þar sem hún er breiðust. Að norðan og sunnan, austan og vestan, skerast víkur og firðir mn og stytta leiðina til sjáv- ar. Á Mavis grind (Mjóeiði) þar sem vegur hggur eftir mjóum granda milli tveggja fjarða, er tæplega meira en steinsnar milli Atlantshafsins og Norðursjávar. Frá alda öðh hefir báturinn því verið helsta samgöngutækið á ey- unum. Á báti haía menn ferðast bæa og bygða á milli, og enn í dag þekkist það að draga Sáta yfir eiði til að stytta sjer leið. Hjer hefir hesturinn ekki verið hafður til ferðalaga eins og á íslandi. Hjalt- landsklárinn er lítill og lubbaleg- ur og honum íækkar nú óðum. Á nyrstu eyunum er þó enn talsvert af honum. En hann er yfirleitt ekki notaður til reiðar. Hann hefir fyrst og fremst verið notaður til áburð- ar, og á honum hefir mórinn verið fluttur heim, eina eldsneytið sem til hefir verið á þessum skóglausu eyum frá upphafi. Hjaltlendingar telja sig fremur norræna en skoska. Sjerstaklega á það við um hina fámæltu bændur og fiskimenn í úteyunum. Og nor- rænn maður, sem kynnist fólkinu frá Yell, Walsey, Foula og öðrum úteyum, finnur einnig svo glögg- lega til skyldleikans með því, að hann á þess helst von að vera á- varpaður á norrænni mállýsku í stað skoskrar mállýsku. í stuttu máli er saga eyanna þannig, að um 800, máske fyr, streymdu þangað landnemar frá vestanverðum Nor- egi. Landið varð norskt og á dög- úm Sverris konungs var það mjög nátengt Noregi. En árið 1469 veð- setti danski kóngurxnn Kristján I. Hjaltlandseyar (ásamt Orkneyum) fyrir heimanmundi Margrjetar dóttur sinnar, er hún giftist Jakob IIL Skotakonungi. Ætlunin var auðvitað að leysa veðið mjög bráð- lega, en þær 60.000 flórínur, sem til þess þurfti, voru ekki auði'engn- ar, og þess vegna helt Skotakon- ungur veðínu og smám saman kom- ugt svo eyarnar undir skosk lög og stjórn. Hin norsku lög voru af- numin og eyarnar voru fengnar skoskum höfðingjum að ljeni. — Lengi stjórnuðu þeir þar með of- beldi og gerðu eyarskeggja að rjett- lausum þrælum sínum. Jafnvel málfarið, hið svonefnda „norn“, sem seinna verður minst á, vesl- aðist upp undir yfirdrotnun hinna nýu herra og skosk mállýska kom í staðinn. Maður verður að hafa þetta í huga til þess að skilja gremju Hjalt- lendinga í garð Skota. Undir stjórn Skota glötuðu þeir ættararfi sín- um, og sinni eigin norrænu tungu, sem hefði getað orðið bókmenta- mál, eigi síður en færeyskan. Og það er söknuður þess ari's, sem gerir þá svo næma fyrir öllu því, sem norrænt er. Þess vegna hefir þar nú á seinustu árum sprottið upp mjög merkilegur þjóðlegur skáldskapur, sem á sjer athvarf hjá tímaritinu „The new Shetlander", þar sem markvist er unnið að þvi að varðveita hið núverandi mál, — blending af skosku og norn — og gera það að bókmáli. Margt bend- ir til þess að þetta muni takast, en með því bjargast mikið af fornum norrænum orðum, sem enn eru í málinu. Einn hður hinnar norrænu endurvakningar á eyunum er og stofnun „The Shetland Folk Soci- ety“ (1945). Það geíur út tímarit og kom fyrsta hefti þess 1947. Það er eingöngu helgað máli eya- skeggja, alþýðukveðskap, þjóð- háttum og þjóðlögum. * * * Ein, sönnunin fyrir dálæti eya- skeggja á norrænni fortíð og hetju- ljóðum, er „Up-Helly-a“ hátíðin, sem haldin er seinasta þriðjudag í janúarmánuði. Þá streyma þús- undir manna til Leirvikur og Bret- ar segja að sú hátíð sje merkileg- asti þátturinn í þjoðlífi Hjaltlend- inga nú á dögum. Þá íer skrúð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.