Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Page 4
48U
LESBÓK MORGONBLAÐSlNa
allar öskuhrúgur og jjanga um-
hverfis hvert hús og athuqa hvort
eldur leynist í ösku eöa skorsteini,
og verði hann nokkurs slíks var,
skal hann tilkvnna það. Skvldi
hann verða elds var, á hann að
vekja fólk í hveriu húsi, hrópa upp:
Eldur! og jafnvel í sífellu hringja
með stærstu kirkiuklukkunni".
Á þessu má siá, að honum var
aðallega ætlað að vera brunavörð-
ur, enda þótt honum bæri einnig
að gæta reglu á götu og reka heim
þá, sem seint voru á ferli. Nætur-
vörðurinn er því fvrsti slökkviliðs-
maðurinn hjer í bæ.
Sá, sem fyrstur hlaut þessa stöðu,
var Magnús Guðlaugsson tómthús-
maður í Sjóbúð. Honum var feng-
inn einkennisbúningur: síðhemna,
gaddakvlfa (morgunstjarna),
stundaglas og ljósker, og var hann
þvi hinn vígmannlegasti, er hann
gekk milli húsa og söng danska
sálma með vissu millibili fvrir utan
hús helstu manna. Hann átti að fá
í kaup 8 mörk á viku og tvo skild-
inga fyrir ljósmeti hverja nótt. Til
þess að standast straum af þessu
var lagður skattur á öll timbur-
hús í bænum og miðað við lengd
þeirra, 12 skildingar fvrir hverja
alin. Og til að gæta þess að nætur-
vörðurinn stæði vel í stöðu sinni,
var skipaður sjerstakur „vaktara-
eftirlitsmaður“, og hlaut Runólfur
Klemensson þá stöðu, sennilega
vegna þess að hann var þá forst jóri
innrjettinganna.
Varúðarráðstafanir gerðar
Prydensberg varð land- og bæar-
fógeti 1803. Mun honum ekki hafa
litist glæsilega á brunavarnir hjer.
I>á var aðeins til þessi gamla dæla,
sem send var hingað og aðeins einn
brunnur í bænum, Ingólfsbrunnur
í Aðalstræti og stundum vatnslaus.
Frydenberg liet gera við brunn-
inn og setja í hann nýa dælu, sem
kostaði 50 rdl. Annan brunn Ijet
hann grafa rjett fvrir austan
„Smiðshúsið“ (þar sem bensínstöð-
in í Lækargötu er nú) og kostaði
hann 100 rdl. Kostnaði þessum við
báða brunnana, var jafnað niður á
borgarbúa. í október 1806 gaf bæ-
arfógeti svo út auglýsingu um „að
öllum sje hjer eftir bannað, að bera
ösku, mókögla eða önnur óhrein-
indi í kirkjugarðinn, þann svo-
kallaða Austurvöll eða nokkurt
kaupstaðarins pláss, heldur annað
hvort út í sjó eða á afskektan stað“,
og voru sektir lagðar við, ef út af
var brugðið.
Til árjettingar þessu gaf stipt-
amtmaður út auglýsingu 1. apríl
1807 um varnir vegna brunahættu
og segir þar m. a.: — Tjörusuða,
lýsis og lifrarbræðsla má ekki fara
fram innan bæjar. Eld, glæður eða
ljós má ekki bera undir opnum
himni nema í luktu ljóskeri. Trje-
smiðum er fyrirskipuð sjerstök var-
kámi. Ekki má spinna hamp við
Ijós. Ekki má bera Ijós upp á loft
eða í útihús, nema í lokuðu Ijós-
keri. Ösku má ekki fleygja fvr en
hún er orðin köld. Tóbaksreyking-
ar eru bannaðar þar sem eldfimt
efni er og úti, nema hetta sje yfir
pípunni. (Þá þektust ekki vindl-
ingar). Kertasteypa og tólgar-
bræðsla var bönnuð að næturlagi.
Harðbannað var að hleypa af
byssu innan bæjar.
Þessi auglýsing var fest upp víða
í bænum og lesin af prjedikunar-
stóli, svo að örugt væri að allir
kyntust henni. Þó er talið að hún
hafi gert fremur h'tið gagn.
Slökkvistöð hjá dómkirkjunni
Þessi skipan helst svo fram til
1827. En einhverntíma á því tíma-
bili hafði verið fengin sjerstök
dæla handa dómkirkjunni vegna
þess að turninn var hærri en önnur
hús. Þessi dæla og sú er Rentu-
kammerið sendi 1789 eru orðnar
svo ljelegar 1826 að þær teljast ekki
nothæfar sendir Hoppe stift-
amtmaður þær þá út til viðgerðar.
Rentukammerið ljet gera við þær
og sendi þær aftur vorið eftir-með
tilmælum um, að nú yrði þeirra
nákvæmlega gætt. Segir það, að í
þetta skifti muni fjárhirsla kon-
ungs greiða viðgerðina, en ef slíkt
komi fyrir aftur, að dælurnar
þarfnist viðgerðar, þá verði Revkja
víkurbær sjálfur að bera kostnað-
inn. Þá segist það og senda með
dælunum 12 vatnsfötur, sem það
hafi útvegað.
Þegar þessi slökkviáhöld konm
hingað var bygt fyrir þau skýli
vestan undir skrúðhúsi dómkirkj-
unnar. Kostaði það 20 rdl í seðlum
og felst Rentukammer á þá tilhög-
un og ákvað að kostnaðurinn
skyldi greiddur úr Jarðabókar-
sjóði. Seinna um sumarið sendi
það hingað eftir beiðni stiftamt-
manns 2 vatnskeröld, er tóku 4
tunnur hvort, og skyldi annað
standa hjá dómkirkjunni, en hitt
hjá stiftamtmannshúsinu. Þá voru
og send hingað 2 Ijósker með gler-
rúðum og tvö Ijósker með horn-
rúðum, er gevmast skvldu með
öðrum slökkviáhöldum.
Þrír bunumeistarar
Þegar það kom fyrst til tals
1833 að Reykjavík gengi í bruna-
bótafjelag dönsku kaupstaðanna,
mun mönnum hafa litist það væn-
legra til árangurs að slökkvitæki
bæarins væri aukin. Þess vegna
var samþykkt á borgarfundi á önd-
verðum vetri (11. des. 1833) að
kaupa nýa og stóra dælu og „brand
kar“ (vatnskerald) í sambandi við
hana. Átti bærinn þá þrjár dæl-
ur og voru þær allar geymdar á
sama stað. Voru þá valdir sjerstak-
ir bunumeistarar til þess að fara
með þær, ef eldsvoða bæri að hönd-
um, og var P. Tærgesen kaupmað-
ur við eina, Leigh faktor við aðra
og Thomsen faktor (faðir L. E.