Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Qupperneq 10
494
LESBÓK M0RGUNBIAÐSIN3
Hraðfrysting mun gjörbreyta
meðferð matvæla
iíIiAL'FR *'ST-Í>JG matvæla r>rður
sjer til rúms hvarvetna, og þó eink-
um í Bandaríkjunum. Þar eru nú
rúmlega 400 fyrirtæki, sem vinna
eingöngu að því að hraðfrysta mat-
væli í stórum stíl, og þar hafa risið
upp 130 verksmiðjur, sem aðeins
smíða hraðfrystitæki af öllum gerð
-um. Því er jafnvel spáð, að hrað-
frystitækin muni bráðlega útrýma
kæliskápum á heimilum.
Tilraunir hafa verið gerðar að
hraðfrysta 1200 tegundir matvæla,
og þar af eru nú um 400 þegar til
sölu í búðum. Sumt af þessu eru
kræsingar, eins og t. d. humar í
karry og appelsínuflísar í hunangi.
að borgarstjóri var gerður að for-
manni brunamálanefndar.
Þegar hjer er komið má segja að
fast og örugt skipulag sje komið á
slökkvilið bæarins. En síðan hefir
það fengið margskonar slökkviá-
höld svo miklu fullkomnari en
áður þektust, að menn hafði ekki
dreymt um það um aldamótin að
Reykjavík mundi nokkuru sinni
eignast slík tæki, enda voru sum
þeirra þá ekki til. Og síðan slökkvi-
liðið fekk þessi tæki, hefir það oft
unnið sannkölluð kraftaverk í bar-
áttu við eldsvoða. En það verður
ekki rakið hjer. Tilgangur þessarar
greinar var að fylgja þróunarferli
slökkviliðsins í Reykjavík frá því
að það var aðeins einn maður (næt-
urvörður) og þangað til það hafði
fengið eigin varðstöð, með launuð-
um slökkviliðsstjórum og bruna-
vörðum.
En þar er einnig margt annað, svo
sem hvalkjöt og kokosmjólk, svo
ólíkustu vörur sjeu nefndar.
Sjerfræðingar telja að árið 1957
muni helmingurinn af öllum mat-
vælum Bandaríkjamanna vera
seldur hraðfrystur. Það gefur dá-
litla hugmynd um hvers menn
vænta af þessari nýu aðferð um
meðferð matvæla.
Munurinn á hraðfrystingu og
venjulegri frystingu er sá, að við
hraðfrystingu skemmast matvæl-
in ekki. Venjuleg frysting fer fram
við 1—4 stiga frost og er því svo
seinvirk að meðan á henni stend-
ur myndast stærri og stærri ís-
krystallar í því sem fryst er og
eyðileggja það. En hraðfrystingin
er svo ör, að ískrystallar hafa ekki
tíma til að myndast. Maturinn er
því óskemdur og heldur sínu eðh-
lega bragði.
En hvernig fer þá um geymslu
á hraðfrystum matvælum? mun
margur spyrja. Sjerfræðingar
segja, að hann geti geymst óskemd-
ur endalaust ef loft komist ekki
að honum. Þeir benda á það, að
í Síberíu hafi fundist í jörð harð-
frosnir skrokkar af mammútdýr-
um, sem legið hafi þar þúsundir
ára, en kjötið sje þó enn sem nýtt.
Sjerfræðingarnir hafa og gert til-
raun í þessa átt. Fyrir tíu árum
hraðfrystu þeir nokkuð af mais-
kleggjum, og þeir hafa síðan athug-
að þá árlega og enn eru þeir eins
og nýir af akrinum.
Víðs vegar um Bandaríkin eru
nú um 12.000 svokallaðar frysti-
geymslur, þar sem menn geta leigt
sjer frystihólf til að geyma mat í,
og 13 milljónir manna njóta góðs
af þessu. Þykja þessar frysti-
geymslur nú svo nauðsynlegar í
sveitum, að menn skilja ekkert í
því hvernig þeir hafi komist af
áður en þær komu. Nú geta þeir
haft nýtt kjöt, nýtt grænmeti og
nýa ávexti allan ársins hring. Nú
þurfa þeir ekki að hugsa neitt um
það að salta, reykja nje sjóða nið-
ur. Þarna geta og bændur geymt
vörur sínar þangað til þeir koma
þeim á markað. Þeir geta nú t. d.
slátrað fje sínu hvenær sem er, og
þurfa ekki að bíða eftir því að
kólni í veðri, eins og áður hefir
verið.
Matreiðsla hraðfrystra vara er
miklu auðveldari heldur en áð-
ur var. Og svo hafa Bandaríkja-
menn fundið upp sjerstakt suðu-
áhald fyrir þessar vörur. Er það
kallað radioofn, og í honum þiðnar
kjö4 á fáum sekúndum og steikist
á 40 sekúndum. Hitinn í ofninum
er framleiddur með stuttbylgjum,
og sjálfur ofninn eða ílátið hitnar
ekki meðan á suðu stendur. Þessi
ofn er töfragripur, og kemur sjer
sjerstaklega vel í járnbrautarlest-
um og í veitingahúsum og annars
staðar þar sem þarf í skyndi að
framreiða allskonar rjetti fyrir
marga. Veitingahúsin geta fengið
tilbúinn og hraðfrystan mat í
plastikskálum, sem þau geyma síð-
an í kælirúmi. Og þegar gestur
biður um einhvern sjerstakan rjett,
þá er ekki annað en fara í skáp-
inn, taka skál með þessum rjetti og
stinga henni inn í ofninn. Og eftir
tvær mínútur er svo hægt að bera
rjettinn rjúkandi á borð fyrir gest-
inn. Maturinn er borinn fram í
skálinni og engum kemur til hug-
ar að eyða tíma í að þvo skálina á
eftir. Hún er svo ódýr að henni er
fleygt.
' 'm] pm’
i í I l
Á. Ó.