Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Page 13
LESBÖK MORGUNBUAÐSINS
ur verið hægt að ljetta erfiði af
hjartanu, og þannig draga úr and-
þrengslum og sársauka, sem fylgir
angina pectoris. Nú eru læknar í
Harvard farnir að nota geislavirkt
joð til þess að draga úr safarensli
skjaldkirtlanna og við það hafa
þrautirnar fyrir hjartanu linað
mjög.
En mestar vonir binda vísinda-
menn þó við hin geislavirku efni
til lækningar á krabbameini. I öll-
um sjúkrahúsum í Bandaríkjun-
um er nú farið að nota „isotopes“
gegn þessum skæða og dularfulla
sjúkdómi. — Og vísindamennirnir
segja hiklaust að ef nokkur lækn-
ing eigi að fást á krabbameini, þá
hljóti hún að fást með hinum geisla
-virku frumefnum.
Ýmislegt hefur þegar komið í
Ijós í þessu efni. f Oak Ridge full-
yrða læknar að geislavirkt cobalt
sje eigi aðeins ódýrast til lækning-
ar á krabbameini, heldur einnig
drjúgum best. Gamma-geislarnir,
sem eyða krabbameini, eru miklu
kröftugri í cobalt heldur en í radí-
um. Og í meðferð er cobalt örugg-
ara. Geislunarkraftur radiums er
frá 400.000 volt, en geislunarkraft-
ur cobalt er stöðugt yfir miljón
volts. Geislavirkt cobalt er held-
ur ekki jafn hættulegt og radi-
um. Beta-geislar þess eru ekki
nema tíundi hluti af magni beta-
geisla í radium. Og vegna þessa er
hægt að beita cobalt geislum þar
sem ekki þykir ráðlegt að beita
radium. Geislavirkt cobalt er miklu
ódýrara en radíum, sem nú kostar
15000—20000 dollara hvert gramm.
En áhrifum cobalts eru takmörk
sett eins og áhrifum radium. Það
getur læknað krabba á byrjunar-
stigi, en þegar krabbinn er orðinn
svæsnari, þá er aðeins hægt að
hefta hann eða tefja fyrir honum.
Einnig getur það mistekist. En
lækning eða hefting útbreiðslu —
hvort tveggja er undir því komið
að sjúklingurinn fái altaf cobalt-
meðferð við og við.
Vegna þessa eru vísindamennirn-
ir hvorki ánægðir með radium nje
geislavirkt cobalt. Allar tilraunir
hníga því nú að því að koma „iso-
topunum“ sjálfum inn í meinið og
láta þá geisla þar út frá sjer. Ef
það tekst, er líklegt að hægt sje að
eyða krabbameini fyrir fult og alt.
En til þess að þetta geti orðið þarf
að hitta á það geislavirkt efni, sem
meinsemdin drekkur í sig, en fer
að öðru leyti lítið út í líkamann.
Þetta hefur hepnast vel þar sem
um krabbamein í skjaldkirtli hefur
verið að ræða. Það drekkur í sig
geislavirkt joð, nægilega stóran
skamt til þess að eyðileggja sjálft
sig. En hvort slík lækning er til
frambúðar, eða hvort þarf að end-
urtaka hana við og víð, er enn á
huldu. Nú hyggja læknar að krabba
mein í maga megi lækna á sama
hátt með geislavirku fosfór. Og þeir
eru að þreifa fyrir sjer um áhrif
annara geislavirkra efna á krabba-
mein í öðrum stöðum líkamans.
-----------------o----
. Jafnhliða þessum rannsóknum
má vera að finnist ástæðan til þess
að menn fá krabbamein. Vísinda-
menn vita að engar frumur geta
vaxið nema með því að draga að
sjer mikið protein. Þegar fram-
leiðsla og eyðsla af því helst í hend-
ur í líkamanum, er alt í lagi, þá er
um heilbrigði að ræða. En svo taka
einhverjar frumur upp á því að
draga í sig meira protein en góðu
hófi gegnir. Við það hlevpur í þær
ofvöxtur og við það mvndast
krabbamein. Hvernig stendur á
þessu?
Alls staðar er nú verið að revna
að leysa úr þeirri spurningu. í há-
skólanum í New York fara fram
rannsóknir á hlutfallinu milli vatns
-efnisins í líkamanum og skorts á
protein, sem veldur vanþrifum. í
Harvard eru vísindamenn að reyna
'497
að komast að því með geislavirkri
pottösku hve mikið protein sje í
heilbrigðum líkama, og hve mikið
af því missist til myndunar krabba-
meins. í Huntington Memorial Ho-
spital í Boston hafa þó einna merki
legustu tilraunirnar farið fram. Þar
hafa læknar notað geislavirkt kol-
efni við krabbamein. Nú er geisla-
virkt kolefni búið til úr „amino
acids“/ en það er aftur aðalefni
proteins. Það fór nú svo, sem vænta
mátti að meinið dró til sín hið
geislavirka kolefni. En læknarnir
fundu líka að þeir gátu stöðvað
sjúkdóminn með því að útiloka
fýri, eða með örlítilli viðbót af
dinitrophenol (sem einu sinni var
notað gegn offitu).
Það er nú eftir að vita hvort
dinitrophenol (eða eitthvað svipað
efni) getur stöðvað vöxt krabba-
meins í mannslíkamanum. Tilraun-
irnar þarna og annars staðar eru
enn á byrjunarstigi og fara því ekki
fram á mönnum heldur á dýrum.
Það er heldur als eigi víst að þelck-
ing á eðli og verkunum proteins
leysi gátuna um það hvernig eigi
að lækna krabbamein. — Vísinda-
menn halda að ýmislegt annað
hjálpi til að hleypa þessum ofvexti
í frumurnar, sem kallað er krabbi.
Og vísindin eru nú að leita að því
hvað þetta geti verið. Þau rann-
saka gaumgæfilega efnabyggingu
hvítu og rauðu blóðkornanna, og
hina sífeldu eyðing og uppbygging
efna í líkamanum og hver áhrif
þetta hefur á frumur hinna ýmsu
hluta innbyrðis.
f sambandi við þessar rannsókn-
ir kemur og til greina eftirlit með
því hvað maðurinn lætur ofan í
sig af mat og drykk.
í Argonne National Laboratorv
skamt frá Chicago ganga kjama
rannsóknirnar út á það að rækta
geislavirka ávexti og jurtir, svo
sem hveiti, alfalfa, sykurreyr, tóbak
o. fl. Með því að gefa skepnum