Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1951, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1951, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 147 Rosafrjettir l Dawson Eftir Webb B. Garrison. WHITE KOM til Dawson í Yukon seint á úrinu 1898. Þá munu gull- nemar sennilega hafa lagt undir sig öll lönd í nágrenninu. Eða þá að White hefir haft of mjúkar hendur til þess að moka. Að minsta kosti hugsaði hann ekki um gull- námið, en rjeðist í prentsmiðju. Þá var alt í uppgangi í Dawson, en skortur var á ýmsu því, sem nauðsynlegt þykir í menningar- landi. Þeir settu það samt ekki fyrir sig þarna í Dawson, heldur voru þeir ákaflega stoltir af borg- inni sinni og þótti smátt til ann- ara staða koma. Og allir, sem þang- að komu, smituðust af þessum hugsunarhætti. White var einn af þeim. Og hann fann nú upp á því að prenta brjef hausa fyrir ímyndað hótel, sem hann kallaði Súrdeig, og taldi eiga heima á Icicle-braut 1323. Svo bauð hann þessi brjefsefni til sölu á göt- unum, þrjú fyrir einn dollar, og þau runnu út. Og svo skrifuðu gullnemarnir kunningjum sínum heima á þessi brjefsefni. Og þeim þótti heldur en ekki varið í það þegar þeir fengu brjef að heiman stíluð til þeirra búandi í þessu mikla hóteli, á her'bergi 423, í 5. íbúð, eða í Klondike herberginu. Út af þessu kænskubragði kom það að White fekk starf við blaðið „Klondike Nugget“, eina blaðið í heimi, sem selt hefir verið fyrir einn dollar í lausasölu. Á þessum slóðum koma oft vond- ar stórhríðar, og þá slitnar síminn og engar frjettir berast frá um- heiminum dögum saman. Og þeg- ar svo bar undir þá var lítið um efni í blaðið. Svo var það einu sinni þegar síminn var slitinn og það reyndist ógerningur að fá neinar frjettir í blaðið, þá var White skipað að skrifa eitthvað — alveg sama hvað það væri — til þess að fylla blað- ið. Daginn eftir birti blaðið undir stórri fyrirsögn frjett um það, að í einhverjum stað hefði verið 70 stiga frost, og afleiðingin af þessu mikla frosti hefði orðið sú, að þar hefði kyngt niður ókjörum af blá- um snjó. Menn gleyptu við þess- ari frjett og það ýtti undir White að halda áfram. Síminn komst í lag og nægar frjettir bárust utan úr heimi, en White fanst það ekki nóg. Nú kom hann með frjett um það, að hinir óhemju kuldar hefði orðið þess valdandi að ógrynni af ísormum hefði komið upp úr klak- anum, og það voru svo mikil læti í þeim — sagði White — að gull- nemar á afskektum stöðum gátu ekki sofið fyrir þeim. Einhver frjettastofa náði í þessa sögu og símaði hana út um allan heim. Og gætnir vísindamenn í Washington og London skrifuðu það hjá sjer að nú væri fundnir ormar, sem þyldu hvaða frosthörku sem væri. Og þeir skrifuðu blað- inu og báðu um nánari upplýsing- ar. Frjettaritarar við önnur blöð í Alaska nöguðu sig í handarbök- in í gremju út af því að liafa ekki náð í þessa ágætu frjett, heldur látið White taka hana rjett við nefið á sjer og fá frægð fyrir. Hver maður í Dawson trúði þess- ari sögu eins og nýu neti. Og fram- takssamur veitingamaður þar fann upp á því að auglýsa að hjá sjer fengist „ísorma cocktail“. Þetta varð til þess að aðsókn jókst þar alveg gríðarlega og menn börð- ust um það að fá að bragða þenn- an dýrindisdrykk. Einhverju sinni rakst White inn í veitingahús þetta. Veitingamað- urinn tók þegar eftir honum og kallaði: „Piltar, víkið fyrir White. Það var hann sem færði okkur sög- una um ísormana. Komið þjer hjerna White og fáið yður eitt glas af. hinum ágæta „ísorma-cock- tail“ “. Wlúte þorði ekki að skorast und- an þessu. Með hálfum huga gekk hann að veitingaborðinu, og hon- um leist ekki á þegar hann sá veit- ingamann mylja niður ísmola og draga út úr honum fjögurra þuml- unga langan snjóhvítan orm og fleygja honum niður í drykkinn. White reyndi að láta ekki á neinu bera, þótt hann nötraði af við- bjóði. Hann þreif glasið og tæmdi það í einum svip. Þá brá veitingamaður honum á einmæli og hvíslaði: — Jeg verð að biðja yður afsök- unar, en jeg gat ekki fundið neinn af hinum reglulegu ísormum. Jeg boraði því holur í ísmola og stakk Maccaroni-stöngum þar inn í. En blessaðir segið þjer piltunum ekki frá því að þetta sje gerfiormar. — White lofaði því. Og þess vegna er sagan um ísormana enn talin sönn í Dawson. Jafnvel enn í dag geta ferðamenn, sem koma til Dawson, fengið þar keypt póstkort með myndum af harðneskjulegum gullnemum, sem eru að grafa ís- orma upp úr jökli. ^ ^ % Prestur nokkur sagði í ræðu: — Þegar jeg lit yðir söfnuðinn, þá verður mjer á að spyrja sjálfan mig: Hvar eru hinir fátæku? En þegar jeg lít í guðskistuna, þá verður mjer á að spyrja: Hvar eru hinir ríku?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.