Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1951, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1951, Blaðsíða 10
150 LESBOK MORGUNBLAÐSINS eins og eya meðfram landinu, en tengd við það með akvegum. Þarna á þessari paradísarströnd ætlaði jeg að dvelja í svo sem tvo daga og hvíla mig eftir erilinn í New York og hydramátiska vjel- virkja námskeiðið í Lansing. Síð- an ætlaði jeg að ieggja upp í hið langa ferðalag til Venezuela En þangað var úlíka langt eftir að fara eins og til baka til Reykjavíkur. Skilningstrjeð. nýir ávextir og kæst skata. Það kom nú í ljós að Rooney Plaza gistihúsið, sem mjer hafði verið ráðlagt að gista í, var ekki opið um þetta leyti árs. Annatím- inn í Flórída er sem sje janúar, febrúar og mars. Um það leyti fer efnafólkið í norðurríkjunum, sem er orðíð þreytt á snjónum og kuld- anum, að hugsa sjer til hreyi'ings. Gamlir, gugnir og gagnsæir mil- jónarar taka saman veiðitækin, svo sem fimm veiðistengur og álíka mörg hjól — gerfifiska og þúsund önnur tól. Og verða sem strákling- ar á ný. Jói og Fred og Bill ákveða að hittast í Stuart-veiðiklúbbnum, hafa Kadiljálkinn með — en iáta konurnar leika sjer í Miami. Kadil- jálkurinn er ekki verra veiðiskip en hvað annað! Stelpurnar finna sjer einhverjar tælandi sundskýlur sem reynast sjerlega hættulegar stöndugum ungkörlum. Og „úlfarnir" látl ekki heldur á sjer standa að kynnast efnuðum heimasætum. Þarna er sannkallaður veiðistað- ur bæði á sjó og landi. Túnfiskur, sverðfiskur, ilugfiskur og hákarl liggur þarna skamt undan strönd- inni. Og sólin skín og bakar fólkið uns það verður kaffibrúnt. Og sjór- inn angar. Það er hressandi brim- selta í hlýjum andvaranum. En þetta var sem sje september, frekar dauður tími og Rooney Plaza lokað Bílstjórinn rjeði mjcr að reyna Vanderbilt hótelið. Og enda þótt mjer hnykti við að heyra nafnið, ákvað jeg að láta slag standa. Jeg gæti kynt mig sem Rockefeller ef á þyrfti að halda. En það kom í ljós sem betur fer, að það fínasta við þetta hótel var nal'nið. Að ógleymdri sundiauginni og baðströndinni framan við það! Þegar jeg sá sundlaugina varð jeg svo yfir mig hrifinn, að mjer kom strax til hugar að Vanderbilt hlyti að hafa stolið hugmyndinni að henni frá baðstaðnum við Skerja- fjörð. Eða skyldi enginn hafa orð- ið var við Vanderbilt karlinn, þar sem hann var að snuðra kring um f lugvallarhótelið ? Annars sá jeg ekki alla þessa dýrð fyr en um morguninn, því að jeg var dauðþreyttur og steypti mjer á hausinn í kojuna. Klukkan átta næsta morgun vaknaði jeg við sólskin og fugla- kvak, brá mjer í skyndingu í bræk- urnar, og hljóp síðan út til að fá mjer hressingu og kaupa mjer sundskýlu. Jeg.var ekki aldeilis á að sofa frá mjer alla dýrðina. Það fyrsta sem jeg tók eftir, þegar jeg kom út á sólbakað stræt- ið, var hvað fólkið var lítið klætt. Jafnvel berfætt og berlærað! ís- lenskar konur gætu margt lært af þeirri sparsemi í klæðaburði, sem fegurðardísirnar í Miami hafa til- einkað sjer! En ekki er hann þó hættulaus hjartveikum mönnum eða ístöðulitlum, sem kynnu að vera milli vonar og ótta um að hnútur eða smella losnaði! Þegar þessar dísir brosa til inanns, snýst all í hring — mann snarsundlar og spyr sjálfan sig, hvort ekki muni vera um sólstungu að ræða. Þarna voru þær flestar í baðfötum einum saman og engin hætta á að neinni yrði kalt! Jeg er á því að þetta fólk sje eitthvert besta fólk í heimi. Þegar jeg hafði jafnað mig, kom jeg auga á skála nokkurn þar sem seldir voru ýmiskonar ávextir. — Þótti mjer þeir girnilegir til fróð- leiks. Og þar sem jeg sá hvergi skilningstrjeð góðs og ills, fjekk jeg mjer blandað ávaxtamauk í eplis stað. Eftir að hafa smakkað á mauk- inu skildist mjer þó, hvílíkur firna gæðamunur er á nýum ávöxtum og niðursoðnum. Þessir ávextir voru sem sje nýtíndir og ferskir. Höfðu aldrei í blikkkrús komið. Hvað þá heldur verið soðnir. Já, þessir ávextir voru með því allra gómsætasta, sem jeg hef bragðað. Og ekki spilti að þeir voru framreiddir undir blaktandi pálma- viðargreinum, er bærðust með kvenlegum yndisþokka í andvar- anum frá blánandi Atlantshafinu. Þeir sem aldrei hafa smakkað slíkt loslæti nema upp úr dósum, vita ekki hvílíka gastrónómiska og kulínaríska lystisemd hjer er um að ræða. — En meðal annara orða: hvernig væri að láta Vatna- jökul sækja einn farm af þessum dýrindis ávöxtum og koma með hann hraðfrystan? Það mætti láta þá hafa hraðfrystan þorsk og kæsta skötu í staðinn! Jeg labba nú niður að strand- lauginni, sem er eins og skínandi smaragð í gullumgjörð. Vatnið leiftrandi grænt, en steinflísarnar umhverfis logandi rauðar. Sólhlífar og hvílustólar í sterkum rauðum, gulum og bláum litum. Pálmatrje á alla vegu og blaktandi búnings- tjöld og liressingarskálar. Stima- mjúkt þjónustufólk á ferli. í laug- inni sporðlausar, fótnettar haf- meyjar — en aldeilis ekki mál- lausar eins og í Andersens-ævin- týrinu. — Ef jeg væri Tómas myndi jeg yrkja um litlu fiskana í þessari laug, sem geta aldrei orðið annað og meira en fiskar! Mönnum kann að þykja það und- arlegt að nokkur skuli byggja sund

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.