Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1951, Blaðsíða 9
U5SBÖK MORGUNBLAÐSINS
197
Lækurinn hjá Zimsens-húsi. Þá var íallesur blómagarður fyrir framan húsið,
os oftast lítil gönsubrú á læknum.
Stöðlakotslandi nyrst (þar som nú
cr lóðin Bankastræti 2) var dálítill
hólmi í honum, grasi gróinn. Á
austurbakkanum voru grænar ílat-
ir mýrarkendar fyrir neðan túnin
og höfðu bændur þar slægjur.
Upphaflega var Arnarhólstúnið
girt með voldugum grjótgarði alla
lcið utan frá sjó neðan við Klöpp
og náði sá garður upp undir þar
sem nú er verslunin Vísir, en
beygði þar þvert niður að læknum.
Tún Stöðlakots og Skálholtskots
voru einnig afgirt með einum grjót-
garði, frá Arnarhólsgarðinum um
það bil þar sem nú er Bankastræti
7, suður holtið hjer um bil cins og
Ihngholtsstræti er nú og beygði
þar scm það endar niður að Tjörn,
þar sem nú er Fríkirkjuvegur 11.
En þar sem garðarnir mættust,
myndaðist dálítill kriki. Þar slógu
ferðamenn oft tjöldum, því að þar
var gott skjól. Þessi kriki hjet Ei-
lífskrókur. Nú þætti víst ekki gott
að slá tjöldum þarna á vegamótum
Bankastrætis og Ingólfsstrætis.
Tjörnin var upphaflega miklu
littisrri heldur en liún cr nú. JMsð
aukinni bygð hefur verið krcpt að
henni á allar hliðar. Einu sinni náð;
hún alla leið að Alþingishúsinu
Vonarstræti, vestan frá Tjarnar-
götu og austur undir Lækjargötu.
er uppfylling og sum húsin norðsn
við það standa á uppfyllingu. Frí-
kirkjuvegurinn er uppfylling og
vik úr tjörninni náði langt inn á
var um miðja tjörn, því að hún
náði miklu lengra suður i mýrina
heldur en nú gerir hún. Hljóm-
skálagarðurinn er að mestu leyti
uppfylling og uppgróinn tjarnar-
botn.
Þá hjet holtið austan við tjörn
og læk einu nafni Arnarhólsholt.
En í landi Stöðlakots var reist þing-
hús fyrir hreppinn og árið 1764 var
bvgður lítill toríbær rjett hjá þing-
húsinu og kallaður Þingholt. Hann
var rifinn aftur árið 1771. En 1774
er bygður annar bær þar rjett fyrir
ofan (þar sem nú er Þingholts-
stræti 6) og hann var líka nefndur
Þingholt. Af þessum bæum íckk
svo holtið nafn og var kallað Þing-
holt. Bæunum fjölgaði þarna og
árið 1805 eru þeir orðnir 3 eða 4
og var þá farið að kalla þá Þing-
holtin i fleirtölu. Og svo færðist
það nafn á holtið og voru nú kölluð
Þingholt alt svæðið fyrir ofan
Þingholtsstræti upp þangað sem
Klapparstígur kemur nú á Skóla-
vörðustíginn, og alt þar fyrir sunn-
an. En þegar skólapiltar í Hóla-
vallarskóla hlóðu Skólavörðuna á
háholtinu, þar sem áður höfðu stað-
ið beitarhús Arnarhóls, þá va>' cfsti