Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1951, Qupperneq 6
533 £
r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
sjálfur hvernig hann eigi að kom-
ast heim aftur!
-----o----
í líffræðinni hafa ekki orðið jafn
stórkostlegar framfarir og í eðlis-
fræði, en þar bíða jafn merkileg
viðfangsefni. Rússar hafa hafnað
erfðakenningu Mendels, vegna þess
að hún er of seinvirk tii þess að
fullnægja sovjetstjórninni, en þeg-
ar til lengdar lætur, mun koma í
ljós, að lögmál þau, er Mendel
bygði á eríðakenningar sínar, munu
geta valdið stórkostlegum breyt-
ingum. Þau hafa þegar stuðlað að
kynbótum á búpeningi og nytja-
jurtum. Það er sannað að erfðir
stafa frá hinum svokölluðu „gener“,
sem eru óháðir líkamanum að öðru
leyti. En menn vita að hægt er að
hafa áhrif á þá með röntgengeislum
— enda þótt allar slíkar tilraunir
hafi haft neikvæð áhi'if.
Máske kemur sú tíð, að hægt er
að hafa áhrif á þessar erfðafrum-
ur til bóta. Ef vjer gætum ákveð-
ið fyrirfram meðfædda hæfileika,
þá mundi slíkt bera ófyrirsjáanleg-
an árangur. Máske verður þetta
gert á verra veg þegar um erfða-
eiginleika barna er að ræða, vegna
þess að vjer getum gert ráð fyrir
að valdhöfum standi ekki á sama
um það hvers konar mannkyn vex
upp. Þeir munu helst kjósa undir-
lægjuhátt og flokksfylgi og telja
það nauðsynlegustu eiginleika
mannsins.
-----o----
Nýasta rannsóknasviðið er sálar-
líf manna. Þetta hefir setið á hak-
anum, ekki svo mjög vegna þess
að sálarlífið sje margbrotið og
erfitt viðfangs, heldur miklu frem-
ur vegna þess að vjer erum ófúsir
á að viðurkenna að vort eigið sál-
arlíf sje háð vissum lögmálum og
reglurn, enda þótt vjer sjáum að
svo er um náungann!
Það eru tveir menn af næstu
kynslóð á vmdan oss, sem hafa
unnið mest að því að auka skiln-
ing á manneðlinu. Þar á jeg við þá
Pavlov og Freud. Aðferðir þeirra
voru ólíkar og venjulega hafa
lærisveinar annars skömm á fylgj-
endum hins. En sannleikurinn er
sá, að taka verður tillit til beggja.
Pavlov vann að rannsóknum
sínum á meðan rússneska bylting-
in fór fram, og hann vissi varla af
því að nein bylting væri. Hann
fekk síðar sams konar vinnufrið
hjá Sovjetstjórninni og Tolstoj
hafði fengið hjá keisaranum. Pav-
lov vann eingöngu að ytri athug-
unum og gerði rannsóknir sínar á
hundum en ekki mönnum. Hann
komst að því, að ef soltnum hundi
er boðið kjöt, þá byrjar hann að
slefa. En sje hann látinn fá í sig
rafgtraum í hvert skifti sem hann
ætiar að glefsa í kjötið, þá fer svo
eftir nokloirn tíma að hann vill
ekki sjá kjötið og hættir að slefa,
hve girnilegur biti sem honum er
boðinn.
Pavlov kendi hundum sínum að
stilla sig á margan hátt. Hefði
hann verið með tilraunir sínar í
drengjaskóla, má búast við að
drengirnir hans hefðu orðið fyrir-
mynd allra annara um hátt-
prýði.
Freud sýslaði aftur á móti við
tilhneigingar, ástríður og leyndar
hvatir, sem móta framferði manna.
Hann sýndi fram á hverja þýðingu
það hefir er menn byrgja eitthvað
niðri, æskuminningar og tilhneig-
ingar, sem menn blygðuðust sín
fyrir, en hvernig svo fór þegar
þetta fekk útrás, að það var eins
og þeir nytu þess að ljósta Upp
ljótustu hugsunum sínum, og þá
ekki síður að útmála ljótar hugs-
anir vina sinna. Þeim varð það
nokkurs konar sport að leita uppi
ávirðingar annara — líkt og þeg-
ar apakettir eru að leita hver öðr-
um lúsa. Mörgum þóttu þessar upp-
götvanir broslegar, en því verð-
ur ekki neitað að Freud hefir
þarna beint athygli manna að ákaf-
lega mikils verðu atriði, sem sál-
fræðingar höfðu sniðgengið áð-
u,r.
----o----
Rannsókn á kirflastarfsemi og
hormónum hefir brugðið nýu ljósi
yfir innra líf mannsins. Þau áhrif,
sem kirtlarnir hafa á eðlilegan hátt,
er nú hægt að framleiða með inn-
spýtingum. Þetta er svo sem ekki
að öllu leyti nýtt. Það eru mörg
hundruð ár síðan að menn vissu
að hægt var að gera menn að ofur-
hugum, með því að byrla þeim
„stríðsöP*. En það sem er nýtt í
þessu er þekkingin á starfsemi
kirtlanna.
Vjer lítum með fyrirlitningu á
þann mann, sem drekkir sorgum
sínum í áfengi, vegna þess að það
spillir honum andlega og hefir
slæm áhrif á líkamann. En e£
mönnum tækist nú að uppgötva og
framleiða einhvern drykk — og
það tekst áreiðanlega einhvern
tíma — sem hefir þá eiginleika að
menn geta að ósekju drekt sorgum
sínum og áhyggjum, þá mundi það
hafa furðulegar afleiðingar. Stjórn-
irnar mundu auðvitað sölsa undir
sig framleiðslu og sölu þess drykkj-
ar, því að það væri ekki ónýtt fyrir
þær að gefa hinum óánægðu and-
stæðingum bragð til þess að friða
þá. Þá er einveldinu fyrst algjör-
lega borgið, því að þá getur það
með þessu móti þaggað niður alla
óánægju. Máske verður þetta verr.i
en áfengið — enda þótt engir fylgi
því timburmennirnir.
----o----
Hópsálarfræði er ný vísinda-
grein, en getur haft sjerstaklega
mikla hagnýta þýðingu. Allir höf-
um vjer sjálfsagt komið á æsinga-
fundi og espast sjálfir á því að
vera innan um æsta menn. Þessu
væri hægt að beita til góðs með
því að örfa menn íil nytsamlegra