Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1952, Blaðsíða 11
r
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
%
135
Hvað gerðist í febrúar?
MINNING ÞJÓÐHÖFÐINGJA
Útför forseta fslands, herra Sveins
Björnssonar, fór fram 2. febr. með
mikilli viðhöfn. Húskveðja var fyrst
að Bessastöðum og: talaði þar Bjarni
Jónsson vígslubiskup. Síðan var
kveðjuathöfn í Alþingishúsinu og töl-
uðu þeir þar forsætisráðherrann og for-
seti sameinaðs Alþingis. Þá var haldið
í dómkirkjuna og var þar mikill söng-
ur og biskupinn yfir íslandi las ritn-
ingarkafla. Síðasti þátturinn fór fram
í kapellunni í Fossvogi, þar sem Bjarni
Jónsson vígslubiksup kastaði rekum á
kistuna áður en hún var á bál borin.
Líkfylgdin var afar fjöimenn og gekk
á undan henni fjölmeijnt fánalið og
lögreglusveit. Fleira stórmenni var við
þessa jarðarför en nokkra aðra, full-
truar erlendra þjóðhöfðingja, sendi-
herrar, ræðismenn, ráðherrar, alþing-
ismenn og embættismenn, svo og full-
trúar hinna ýmsu stétta þjóðfélagsins.
Minningarguðsþjónusta um Georg
VI. Bretakonung, er lézt hinn 6. febrú-
ar, fór fram í dómkirkjunni í Reykja-
vík á útfarardegi hans 15. febrúar. Voru
þar viðstaddir ráðherrar, sendiherrar
erlendra ríkja og sendifulltrúar og
helztu embættismenn íslenzkir.
MANNALÁX
Á bæarstjórnaríundi hinn 7. febr. var
Guðmundur Ásbjörnsson kosinn forseti
Guðmundur Ásbjörnsson.
bæarstjórnar í 27. sinn. En viku seinna
andaðist hann af heilablóðfalli, 72 ára
að aldri. Hann hafði setið í bæarstjórn
óslitið síðan 1918 og hafði haft heilla-
drjúg áhrif á öll bæarmál um 34 ára
skeið og kunnugri þeim en flestir aðr-
ir. Bæarstjórn hélt sérstakan fund til
þess að minnast hans hinn 21. febr.
Daginn eftir var svo útför hans gerð
með mikilli viðhöfn.
Sigurjón Helgason bóndi að Geld-
ingaholti í Skagafirði, d. 16. febr.
75 ára.
Alexander Valentínusson smiður frá
Ólafsvík, d. 19. febr. áttræður.
Ingunn Stefánsdóttir, ekkja Einars
Jónssonar alþingismanns að Geldinga-
læk, d. 20. febr.
María Salome Kjartansdóttir, kona
Páls Sigurðssonar tryggingalæknis, d.
20. fébr. 'í . • .
Þórður Ólafsson útgerðarmaðub í
Reykjavík, d. 22. febr. sextugur.
VEÐRÁTTA
í byrjun mánaðarins teptust allir
vegir hér sunnanlands vegna snjóa og
gekk erfiðlega að opna þá aftur. Mjólk-
urflutningar til Reykjavíkur trufluðust
mjög og varð að taka upp skömmtun
á mjólk. Hér í bænum var færð afar
ill fyrstu daga mánaðarins og lentu
50 bílar í árekstrum fyrstu vikuna.
Ilundruð manna stóðu í snjómokstri
og þurfti að ryðja snjódyngjum af þök-
um margra húsa, vegna þess að mann-
hætta var af snjóhruni. Hinn 4. febr.
féll snjóskriða af þaki Landsbankans
niður á útbyggingu, fór þar í gegn um
glugga og kom með miklu kasti yfir
reiknivél, sem stúlka vann við, en
stúlkuna sakaði þó ekki. Margar fleiri
snjóskriður féllu af þökum, en ollu þó
ekki tjóni. Þessa daga tafðist sorp-
hreinsun mjög í bænum, vegna þess
að ekki var hægt að komast að sorp-
ílátunum.
Aðfaranótt 1. febr. gekk hríð og
stórviðri yfir norðurland og olli miklu
tjóni í Siglufirði. Reif veðrið þök af
húsum, þar á meðal hluta af þaki
tunnuverksmiðjunnar. Rafleiðslur og
símalínuf slitnuðu svo að rafmagns-
laust varð í bænum og símasamband
rofna,fei. Þessa sömu nótt braut ofviðr-
ið 70 símastaura á 4 km leið í Axar-
firði.
3. febr. ætluðu nokkrir starfsmenn
Sogsvirkjunar austur yfir Hellisheiði
í snjóbíl. Var þá versta veður og bilaði
bíllinn á heiðinni svo að senda varð
leiðangur frá Reykjavík fólkinu til
hjálpar.
Viku af mánuðinum mátti svo heita
að vegir væri orðnir slarkfærir hér
syðra.
6.—7. febr. gekk stórviðri yfir aust-
urland og norðurland. Urðu þá tals-
verðar skemmdir í Austfjörðum, reif
veðrið þök af húsum, sleit rafmagns-
línur og gerði ýmsan annan óskunda.
I Skagafirði var svo mikil fannkoma
að hesta fenti.
Asahláku og stórrigningu gerði hinn
17. víða um land og hélzt það veður í 3
daga. Snjór var víðast mikill fyrir og
urðu því miklir vatnavextir víða, svo
sem í Þykkvabæ, Borgarfirði, Kiósinni,
Króksfirði, Svínadal í Húnavatnssýslu,
Eyafirði og víðar. Varð af nokkurt
tjón.
Svo mjög tók upp snjó í þessum
leysjngum að hinn 21. komust lang-
ferðabílár frá Reykjavík til Akureyrar
í fyrsta skiftí á bessu ári og höfðu ekki
verið nema tvo daga á leiðinni.
Hellisheiðarvegur hafði verið ófær
vegna snjóa síðan 22. des., en hinn 26.
var byrjað að ryðia snjónum af hon-
um. Voru skaflarnir þá enn tveggja
metra djúpir sums staðar. Skíðaskálinn
í Hveradölum hafði þá verið lokaður
frá áramótum vegna snjóþyngsla, því
að allan þann tíma var bílum ófært
þangað. Hellisheiðarvegurinn var opn-
aður 28. febr.
AFLABRÖGÐ
Fyrra hluta mánaðarins voru slæm-
ar gæftir og afli tregur. Markaður var
þá lélegur í Englandi, en hækkaði
heldur þegar á leið mánuðinn. Fyrstu
vikuna í febr. seldu 14 togarar þar
fyrir 4.7 millj. króna, en seinustu vik-
una seldu 10 togarar fyrir 3,9 milij.
kr. AUs voru farnar 34 söluferðir til
Englands í mánuðinum og nam
salan samtals 15.6 millj. króna. —
Seinna hluta mánaðarins glæddist
afli á dúpmiðum og bátar, sem þang-
að gátu sótt, fengu góðan afla.
Birt var skýrsla um fiskaflann árið
sem leið og var hann alls 370.655 smá-
lestir, þar af síld 84.617 smál. (1950:
heildarafli 323.027 smál., þar af sild