Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1952, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1952, Page 12
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS { 136 60.441 smál. — 1949: heildarafli 337.322 smál. þar af síld 71.407 smál.) Af þorskafla síðasta árs höfðu togarar fengið 185 þús. smál., en bátar 100 þús. smál. Allur fyrra árs afli hafði verið seldur í þessum mánuði, og voru söluhorfur góðar á þessa árs fram- leiðálu. Vcrkfait á togurum hófst 22. febr. eftir árangtrrslausar samningaumleit- anir. Náði það til togara í Reykjavík, Hafnarfirði, Keflavík, Patreksfirði, ísa- firði, Siglufirði og Akureyri. í Nes- kaupstað og Eskifirði höfðu sjómenn ekki sagt upp samningum. 1 Vest- mannaeyjum höfðu þeir sagt upp samn- ingum, en ekki viljað verkfall. — Sátta- umleitan hófst 27. febr. en ekki hafði gengið saman um mánaðamót. En þá höfðu tveir togarar stöðvast. BRUNAR í öndverðum mánuðinum kom upp eldur í nýu íbúðarhúsi í Botni í Mjóa- firði vestra. Brann efri hæð og loft al- veg, en neðri hæðinni bjargaði stein- steypt loft. _ Óviti kveikti í gluggatjöldum í Höfða > borg 103 í Reykjavík, meðan móðirin brá sér frá. Þegar hún kom aftur var eldur orðinn allmagnaður en henni tókst með aðstoð aðkomufólks að slökkva og þótti það rösklega af sér vikið. Aðfaranótt 13. kom eldur upp i hrað- frystihúsi í Þorkötlustaðahverfi í Grindavík og urðu á því nokkrar skemdir. Menn gátu haldið eldinum í skefjum með snjó þangað til náðist í vatn. fc Aðfaranótt 19. kom eldur upp í íbúð- * arskála í Laugarneshverfi og brann í hann allur að innan og varð engu \ bjargað. Tvær konur og tvö börn, sem ? í skálanum voru, björguðust nauðu- í SLYSFARIR Skipverji á Brúarfossi lenti í um- 1 ferðarslysi í Rotterdam í Hollandi og missti annan fótinn. ^ 6. varð það slys í viðgerðarstöð Oliu- I félagsins á flugvellinum í Reykjavík, ^ að maður brendist til bana og annar ^ hlaut mikil brunasár. ? Sama dag fórst vélskipið Eyfirðing- r ur frá Akureyri hjá Æðey í Orkneyum og fórust allir mennirnir, sjö að tölu. , ™ ru/g^.od r íjí £fc Þennan dag fell drengur á 2. ári út um glugga á annari hæð á húsi í Reykjavík, en kom niður í snjóskafl og sakaði ekki. í stórhríðinni hinn 7. varð Stefán bóndi Benediktsson á Þorvaldsstöðum í Vopnafirði úti í túninu heima hjá sér. 13. fannst lík í höfninnni í Hafnar- firði og reyndist vera af manni, sem hvarf þar 12. nóv. og hafði verið skip- verji á s.s. Fagrakletti. Aðfaranótt 21. varð verkamaður hjá Sogsstöðinni undir grjótskriðu og var skriðan 8 metra þykk ofan á honum. Eftir mikið erfiði náðist hann og var þá lítt skemmdur og þótti það ganga kraftaverki næst. Það slys varð 20. á togaranum Agli rauða, er þá var að veiðum, að maður lenti með höfuðið milli vírkeflis og járnslár og beið bana. 27. beið maður bana í grjótnámi Reykjavíkur hjá Elliðaárvogi. 25. féll fullorðin kona í Reykjavík niður stiga og beið bana. 29. brendist starfsmaður hjá Mjólk- ursamlaginu á Sauðárkróki allmikið á gufu. S. d. Maður, sem var að smíða í nýu húsi í Reykjavík féll niður stiga og beið bana. ÍÞRÓTTIR 1. febr. tóku 4 íslendingar þátt í Holmenkollenmótinu í Osló. Kepp- endur voru 50 og urðu íslendingarnir 14., 21., 28. og 34. í röðinni. Skjaldarglíma Ármanns var þreytt 10. febr. Sigurvegari varð Rúnar Guð- mundsson. Skautamót íslands fór fram í Reykja vík og lauk 12. Kristján Árnason varð íslandsmeistari. Stórhríðarmótið (hið árlega skíða- mót á Akureyri) fór fram í annari viku febr. Þar vann K. A. Morgunblaðsbik- arinn í 5. sinn og nú til eignar. Vetrarkeppni Olympíuleikanna lauk í Ósló 25. Nokkrir íslenzkir skíðamenn höfðu keppt, en sóttu engan sigur þgngað. HEILBRIGBISMÁL Stúdentafélag Akureyrar hóf bar- áttu fyrir því að fullgera fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Á fundi 7. febr. gaf það 5000 kr. í þessu skyni og fóru þá margir að dæmi þess og næstu daga streymdu að gjafir, er námu um 50.000 króna. Seinna í man- uðinum undirbjó félagið allsherjar fjársofnun. 10. afhenti Kvenfélag Keflavíkur sjúkrahúsinu þar v.önduð röntgentæki og 44.000 kr. í peningum. Þetta sjúkra- hús er eigi tekið til starfa enn. 13. var bannað að flytja inn erlent verkafólk á þessu ári vegna ótta við að með því mundi geta borizt gin- og klaufaveiki til landsins. Búnaðarfélagi var falið að ógilda gerðar vistráðning- ar. 14. afhenti Krabbameinsfélagið Röntgendeild Landspítalans að gjöf fullkomin gcislalækningatæki, er kost- að höfðu 250.000 króna. FLUGMÁL I byrjun febrúar var flugleiðum inn- an lands skift milli flugfélaganna tveggja, er haldið hafa uppi samgöng- um í lofti. Loftleiðir töldu sig bera skarðan hlut frá borði og tilkynnti að það gæti ekki haldið uppi áætlunar- ferðum. Ráðuneytið fól þá Flugfélagi íslands að halda uppi áætlunarferðum á þeim flugleiðum, er Loftleiðum voru ætlaðar. Seinna í mánuðinum seldu Loftleiðir flugvélina Helgafell til Spánar. Hafði hún áður aðallega verið í forum milli Reykjavíkur og Vest- mannaeya. , ► ... * TRYGGINGAR Brunabótafélag íslands bauð Akur- eyrarbæ að lækka vátryggingariðgjöld húsa þar um allt að 20% ef bærinn kæmi á hjá sér fullkomnum bruna- vörnum. Auk þess bauðst félagið til að lána bænum Vt milljón króna í þessu skyni. Rafha í Hafnarfirði stofnaði vá- tryggingu fyrir öll rafmagnsáhöld frá sér. Seinna stofnuðu svo rafvirkja- meistarar i Reykjavík aðra vátrygg- ingu fyrir alls konar rafmagnsáhöld. ÚTHLUTUN STYRKJA Úthlutað var fjárstyrk listamanna kr. 609.200, sem skiftist í 101 stað. Alls höfðu borizt 180 umsóknir um styrk. Menntamálaráð úthlutaði 720.000 kr. í námsstyrki. Voru það framhalds- styrkir til 88 námsmanna og nýir styrk- ir til 56 námsmanna. Auk þess gerði Menntamálaráð tillögur um að veita 45 námsmönnum námslán, samtals 192.500 kr.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.