Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1952, Síða 13
S? LESEÓK MORGUNBLAÐSINS
r
137
44 íslendingar hlutu styrk úr Sátt-
málsjóði, samt. 26.900 d. kr.
TOGARAR SELDIR
Tveir gamlir togarar, Haukanes og
Baldur, voru seldir til Belgíu, sem
brotajárn. Þýzkur dráttarbátur Harle
var sendur hingað til að sækja togar-
ana. Djúpt af Vestmannaeyum bilaði
stýri hans, en varðskipið Ægir kom
honum til hjálpar og dró hann til hafn-
ar þar sem hann fékk viðgerð. Lagði
hann svo á stað með togarana í éftir-
dragi hinn 28. og voru þeir báðir hlaðn-
ir brotajárni.
Hallgrímur Benediktsson stórkaup-
maður var kosinn forseti bæarstjórn-
ar Reykjavíkur í stað Guðmundar heit.
Ásbjörnssonar.
Fjársöfnun Rauða krossins handa
fólki á flóðasvæðinu í Pódalnum á
Ítalíu var nú lokið. Höfðu safnast
260.000 kr. í peningum og mikið af
fatnaði. '
Almennings þvottahús tók til starfa
í Reykjavík. Eru þar 18 þvottavélar,
tvær stórvirkar vindur og þurkvél, sem
konur geta fengið til afnota.
Þjóðminjasafnið nýa var formlega
afhent ríkisstjórninni hinn 22. Húsið
hefir kostað 7.2 milljónir króna og
verið 6 ár í smíðum. Þessa atburðar
minntist háskólaráð og heimspekideild
háskólans með því að kjósa heiðurs-
doktora þá Matthías Þórðarson fyrv.
þjóðminjavörð og Haakon Shetelig pró-
fessor í Bergen í viðurkenningarskyni
fyrir ómetanleg störf þeirra í þágu
íslenzkra þjóðfræða.
Skógræktarfélag Eyfirðinga hélt að-
alfund sinn 17. Það starfar í 9 deild-
um. Árið sem leið hafði það látið gróð-
ursetja 44.000 plöntur.
Nýr barnaskóli var vígður í Kefla-
vik. Er það mikið hús og hefir verið
rúm 3 ár í smíðum og kostað 7 millj.
króna.
Nýyrði. Menntamálaráð fól stjórn
íslenzku orðabókarinnar (þeim há-
skólaprófessorunum Alexander Jó-
hannessyni, Þorkeli Jóhannessyni
og Einari Ól. Sveinssyni) að
hafa umsjón með skráningu og út-
gáfu nýyrða, og skulu þau gefin út
í bók á sumri komanda.
Eyólfur Jóhannsson var skipaður
forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins.
Vélstjóraskólanum barst að gjöf
vönduð diesel-kennsluvél frá verk-
smiðju þeirri, sem smíðaði diesel-vél-
arnar í nýu togarana.
Heimdallur, Félag ungra Sjálfstæð-
ismanna, hélt hátíðlegt 25 ára afmæli
sitt hinn 16. Var þá gefið út veglegt
minningarrit og samsæti haldið í Sjálf-
stæðishúsinu.
Framfærslukostnaður í Reykjavík
reyndist 155 stig, miðað við 100 st.
reyndist 155 st. Kaupgjaldsvísitala fyrir
Nýung í símamálum. Hinn ll. varð
sú nýung í símamálum að talsímanot-
endur í Reykjávík geta hringt - beint
á miðstöðina í Borgarnesi og fengið ^
samband við menn þar, án þess að
• langlínumiðstöðin komi til skjalanpa.
Gefist þetta vel, er ráðgert að koma
á beinu talsímásambandi Vvið fleiri
staði, svo sem Akranes, Selfoss og
Keflavík.
Bæarútgerðin. Kaupgreiðslur henn-
ar til sjómanna á árinu sem leið, urðu
9% milljónir króna.
Viffskiftasamningur var gerður við
Finnland til jafnlengdar næsta ár.
Gert er ráð fyrir að íslendingar selji
Finnum síld, síldar- og fiskimjöi, lýsi
o. fl. fyrir 750 þús. sterlingspunda, en
kaupi af Finnum trjávið, byggingar-
efni, pappír o. fl. fyrir 830 þús. sterlings
punda.
Samsýning á höggmyndum, vatnslita
myndum og málverkum norrænna á-
•hugamanna var opnuð í Reykjavik 23.
febr. Voru þar 128 verk til sýnis.
Nýr söngvari, Ketill Jensson, hélt
fyrstu söngskemmtun sína í Reykja-
vík 5. febr. og fékk ágætar viðtökur.
Fyrir 3 árum var hann sjómaður á
togara, en hefir að undanförnu stund-
að söngnám í Milano á ftalíu.
Kemur að skuldadögum. íslending-
ur nokkur, er kom með skipi frá Sví-
þjóð 16. febr. var handtekinn af lög-
reglunni í Reykjavík við heimkom-
una og játaði á sig að hafa gert ofbeld-
isárás á mann hér í bænum í maí
1950. Síðan hefir hann verið erlendis.
Hollensk bóndahjón voru á leið vest-
ur um haf með flugvél. Á meðan flug-
vélin stóð við á Keflavíkurflugvelli
i/ió J'OóAÍnn
I faðmi vors blómskrýdda fagra lands,
hjá fossinum tigna við sátum.
Seiðandi þrá var í söngvunum hans,
og sólargeislarnir stigu dans
í kristalsbylgjunum kátum.
Ef til vill stendur álfabær
inn undir fossinum háa,
og hrífandi fögur huldumær
hörpustrengina gullnu slær,
bak við straumfallið bláa.
Ótal sagnir og ævintýr,
innst í hug mínum vakna.
Álfamey yfir angri býr,
ást hennar mennski sveinninn flýr,
ein má hún syngja og sakna.
ODDFRÍÐUR SÆMUNDSDÓTTIR.
varð konan léttari og ól stúlkubarn. v
Frestaðist því för þeirra. Litla stúlkan
var látin heita María Fransisca ísa-
fold Meeks, svo að hún er kennd bæði
við landið og flugvöllinn. Henni bár-
ust miklar gjafir frá starfsfólki flug-
vallarins.
Atvinnuleysisskráning. Samkvæmt
skráningu atvinnulausra í byrjun mán-
aðarins, voru tölurnar þessar í fjöl-
mennustu kaupstöðunum: Hafnarfirði
72 (þar af 40 einhleypir), á Akureyri
131 og í Reykjavík 718 (þar af 49
konur).
Hraðfrystistöð og beinamjölsverk-
smiðja tóku til starfa í Höfn í Horna-
firði í byrjun mánaðarins.
Lánadeild fyrir smáíbúðarhús í kaup
stöðum og kauptúnum tók til starfa í
þessum mánuði samkvæmt lögum frá
seinasta Alþingi. Ganga fyrir um lán
barnafjölskyldur, ung hjón er stofna
heimili og fólk sem býr í heilsuspill-
andi íbúðum. Lánstími er 15 ár, vextir
5 ¥2%. Lán eru veitt gegn 2. veðrétti í
húsunum og mega ekki vera hærri en
30 þús. á hverja íbúð.
Bílar töldust samtals 10.634 á öllu
landinu, fólksbílar 6420, vörubílar
4214. Auk þess voru 294 bifhjöl.
Viðskiftajöfnuður við útlönd var
óhagstæður um 5,9 millj. kr. í jjessum ,
mánuði. ^ '~‘"i 1 —