Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1952, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 21.09.1952, Page 1
35. tbl. XXVII. árg. JEorgtmfrlatijjins Sunnudagur 21. september 1952 Hinn fjölhæfi snillingur Leonardo da Vinci Sá, sem ekkert kann í stærð- fræði, skyldi ekki líta í mig, stendur framan • á minnisbók Leonardo da Vinci. EINHVER allra merkasti og fjöl- hæfasti listamaður og vísindamað- ur heimsins, var Leonardo da Vinci. En það virðist svo, sem hann hafi ekki haft neina löngun til þess að verða frægur, heldur hafi hann verið yfirlætislaus og hlédrægur, og ekkert hugsað um það heldur að verða ríkur á verkum sínum. Hann var listmálari, myndhöggvari, bygg -ingameistari, tónsnillingur, skáld, vélfræðingur, stærðfræðingur og heimspekingur. En það var ekki fyr en löngu eftir hans daga að menn uppgötvuðu að allir þessir hæfileikar höfðu búið í einum og sama manni, og að afrek hans í hverri listgrein hefði átt að nægja til þess að gera hann frægan. Sam- tíðarmenn hans þekktu hann ekki eða skildu hann ekki. Eftirkomend- ur uppgötvuðu hann. Eftir því sem menn vita bezt lifði hann í nokkurs konar draumheim- um fram til átján ára aldurs og var þá að hugsa um ýmis konar uppgötvanir, sem ekki urðu að virkileika fyr en mörgum öldum síðar. Hann sá þá í anda hvernig mennirnir gæti lært að fljúga, notkun gufuaflsins, vélknúin farar- tæki og alls konar vígvélar. Á þess- um árum hafði hann þó lært eitt- hvað að mála og nú gekk hann í skóla hj á Verrocchio, en f ór þar brátt fram úr meistaranum. Honum full- nægði ekki sú þekking, sem menn höfðu þá á málaralistinni. Þess vegna gerði hann sér far um að þekkja allt betur en þá tíðkaðist og gerði margvíslegar rannsóknir í því skyni. Meðal annars varð hann fyrstur listamanna til þess að kynna sér vöðvabyggingu manns- líkamans til þess að hafa betra vald á viðfangsefnum sínum, hvort sem hann málaði myndir eða hjó mynd- ir. Tvítugur komst hann í lista- mannafélagið, en hann gerðist þó ekki sjálfs sín herra að heldur. Hann vann áfram hjá Verrocchio, en kynnti sér jafnframt stærðfræði og önnur vísindi. Þegar hann var 28 ára gerðist hann vélfræðingur hjá soldáninum í Kaíró, og seinna gekk hann í Leonardo da Vinci (1452—1519) þjónustu Cæsar Borgia sem her- gagna vélfræðingur. Hvort tveggja gerði hann til þess að fá tækifæri til að auka þekkingu sína á þessu sviði. Þegar hann kom heim frá Egypta landi málaði hann myndina „Hin seinasta kvöldmáltíð“ fyrir klaustr- ið í Mílanó. Sú mynd hefur síðar uppgötvazt, og er ein af fáum mál- verkum hans, sem menn vita um.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.