Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1953, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1953, Blaðsíða 8
r 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS liUiai ai i viii- verskri borg í Silchester á Kng- landi. Þótt þarna sé nú akrar má enn sjá úr lofti hinar þráðbeinu götur, sem verið hafa í borginni. hvar undirstöður allra veggja og það mótar svo óljóst fyrir þeim í jarðlaginu að menn sjá það ekki, en ljósmyndin er það næmari en augað, að hún nemur það. Ef gróið er yfir rústirnar, og þótt sléttað hafi verið yfir þær, koma þær samt íram á myndunum, vegna þess að gróðurinn hefur mismunandi svip eftir því hvort grjóthleðsla er undir cða ekki. Verður því að velja viss- an árstíma til þess að taka slikar myndir og er það bezt seinni hluta sumars. Sézt þá glöggt, ef um akra er að ræða, hvar mannvirki eru undir yfirborði. Á þennan hátt hafa fundizt ýmsar bækistöðvar hinna fornu Rómverja í Englandi, scm menn höfðu ckki hugmynd um áður. % Ljósmyndir úr lofti hafa einnig sýnt hvar forn mannvirki eru á kafi í eyðimörkum, enda þótt engin • inerki þess sjáist þar á yfirborði. Verður þetta mjög til þess að létta störf fornfræðinganna, þvi að nú þurfa þeir ekki að leita fornmmj- k arnia með ærnum kostnaði. Oft er rætt um það að breyting- ar muni hafa orðið á tíðarfari í hinum ýmsu löndum síðan i íorn- öld. Greinir visindamenn þar a eins L og í svo morgu oðru, en þo er varla nokkur vafi á því, að snemma á steinöld hafi eyðimörkin í Sýrlandi verið gróið og byggilegt land. Og sagnir herma að fyrir 4000 árum hafi verið tvöhundruðföld upp- skera í Mesopotamíu, þar sem nú eru sandauðnir. Þar er sagt að ald- ingarðurinn Eden hafi verið, þar sem nú heitir Kurna. í nágrenni Babylons og Kish hafa fundizt geisimiklir áveitu- skurðir, sem benda til þess að Efrat hafi þá runnið á allt öðrum stað en nú. Arbela eða Erbil, sem er suðaustur af Ninive, stóð einu sinni á fljótsbakkanum, en er nú langt frá því inni í eyðimörk. Sá hét Uruash Zikum, sem reisti hið mikla mánahof í Ur, turn í mörgum hæðum, sem kallaður var „Ziggurat". Hann heíur nú nýlega verið grafinn upp og hefur haldið sér furðu vel. En þetta er ekki hinn eini „Ziggurat" því að í flest- um borgum frá þeim tíma var slík- ur „himnastigi“. Var þeim valinn staður þar sem hæst bar. Nafn- kunnastur er „Ziggurat“ í Babylon, sem á Gyðingamáli fekk nafnið Babelsturn, en hann er nú svo gjörsamlega hcjrfinn að ekki sést annað af honum en undirstöðurnar. Nýlega var verið að grafa upp borgina Tel Harmel skammt frá Bagdad. Þar fundust 2400 leirtöflur með áletrunum og er talið að þær sé um 4600 ára gamlar. Þær sýna að þekking hefur þá verið þar á háu stigi. Menn hafa verið vel að sér í landafræði, grasafræði, sagn- fræði, læknisfræði, stærðfræði og stjörnufræði. Borgin Jeríkó fannst fyrir 8 ár- um. Þar hefur fundizt margt mjög merkilegt. — Borgin hefur verið byggð upp hvað eftir annað. Þrjár borgir hafa að minnsta kosti staðið á þessum stað á undan þeirri, sem Jósúa lagði í rústir. Og í rústum elztu borgarinnar, niður undir fastri klöpp, hafa fundizt örvar- oddar og ýmis áhöld úr steini, sem Frh. á bls. 10. M.vnd þcssi var tckin i suinar scm leid og sýnir viggirtan Ziggurat á cyði- mörk i írak Saga þcssa vígis cr að mcslu okuiia.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.