Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1953, Page 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
339
þess að athuguð væri spor þeirra.
Það kom fljótt í ljós, að apinn var
svo léttur, að engin spor hefði sést
eftir hann í harðfenni. Og sporin
eftir björninn voru ekki af þeirri
stærð, er lýst var. Auk þess er
það á allra vitorði að apar halda
sig niðri í dölum en ekki uppi á
jöklum. Apar eru jurtaætur, og
auk þess þekkist enginn svo stór
api í Himalaya, að sporin geti
verið eftir hann. Það er að vísu til
Gorilla-api, sem lifir í fjöllum, en
hann er ekki þar, heldur á hann
heima í Kongo.
//=//
Tveir Norðurálfumenn hafa full-
yrt að þeir hafi séð snjómanninn.
Stanley Snaith, fjallgöngumaður,
segir svo frá: ..Mörgum árum áður
en vér vorum þarna á ferðinni, var
maður nokkur, Hugh Knight að
nafni, að ferðast um Tibet. Segist
hann hafa mætt undarlegri skepnu
hátt í fjöllum. Það var Mongóla-
svipur á andlitinu, fæturnir breiðir,
herðarnar lotnar og kafloðnar eins
og á Gorilla. Þessi skepna hljóp
með ótrúlegri fimi yfir kletta og
klungur, og var með mjög ein-
faldan boga í hendi.“
Annar fjallgöngumaður, Frank
Mclntyre segir svo frá í bók
sinni „Attack on Everest":
„ítalskur maður, sem Tambazi
heitir, segist hafa rekist á villi-
mann, sem hljóp með miklum
hraða í fjallshlíð nokkurri. Tam-
bazi var með góðan sjónauka, og
sá í honum að þetta var maður,
sem gekk uppréttur, nakinn, en
kafloðinn. Hann beygði sig stund-
um niður til þess að slíta upp
rætur“. Sjálfur rakst Tambazi á
slóð í fjöllunum. Hún virtist vera
eftir útskeifan mann.
Eric Shipton átti tal við fjalla-
búa, sem Sen Tensing heitir.
Kvaðst þessi fjallabúi hafa rekizt
á snjómann árið og eklci ver-
ið nema svo sem 25 metrar á milli
þeirra. Snjómaðurinn hefði verið
á að gizka 5% fet á hæð, allur kaf-
loðinn nema andlitið, og rauðjarp-
ur á lit. Shipton segir að hér hafi
hvorki verið um apa né björn að
ræða, því að Tensing þekkti mjög
vel þær skepnur, en lætur ósagt
hvort þetta hafi verið maður.
II-II
Getur það verið að hér sé menn
á sama stigi eins og steinaldar-
menn voru og hafi ekkert brevzt?
Af elztu hauskúpum, sem fundizt
hafa í hellum, þykjast vísindamenn
geta ráðið, að steinaldarmennirnir
hafi verið lotnir í herðum og kaf-
loðnir. En um fótstærð þeirra vita
menn ekkert, því að aldrei hafa
fundizt bein úr fæti steinaldar-
manns.
Það er ekki auðvelt að trúa því
að enn sé til menn, sem mjög líkj-
ast öpum í útliti. En vitað er, að
áður en sögur hófust, bjuggu hinir
frumstæðu menn í hellum, sem
voru líkir hellum þeim, er hvar-
vetna finnast í Himalaya. Hellis-
menn höfðu boga og örvar, það
vita menn vegna þess að örvar-
broddar þeirra hafa fundizt.
Vísindamenn segja að hinir
frumstæðu menn hafi haft skarpa
hugsun og miklu hvassari sjón en
nú tíðkast. Þeim hefði því verið
í lófa lagið að forðast aðra menn.
Hellismenn grófu hina dauðu, og
oft voru þeir grafnir í hellunum
sjálfum. Engar mannleifar hafa
fundizt í hellunum í Himalaya. En
það er ekki að marka. Fjöllin eru
víðáttumikil. Þau eru 1500 enskar
mílur á lengd og 150 mílur á
breidd. Og að mestu leyti eru þau
með öllu órannsökuð. Það hefir
ekki verið gott að korna rannsókn-
um við, því að bæði Nepal og
Tibet hafa verið lokuð lönd.
En þeir fáu vísindamenn sem
kmnizt hafa upp í fjöllin til rann-
sókna, hafa fundið þar hundruð
tegunda af ókunnum skordýrum,
þar á meðal risamölflugur og engi-
sprettur. Þeir hafa fundið þar fiska
með sogskálum, er þeir nota til
þess að halda sér föstum í beljandi
straumi fjallalækjanna. Þeir hafa
fundið þar margar tegundir ó-
kunnra fugla, þeir hafa fundið þar
villihunda, sem ekki kunna að
gelta, kattbjörnu og ótal önnur
furðuleg dýr. Það er ull á hund-
unum, og þar eru síðhærð svín.
En furðulegust þykir þó sagan um
snjómanninn.
Sama árið og fyrstu fréttir af
snjómanninum komu (1921) voru
tveir kanadiskir vísindamenn á
ferð í fjöllunum, dr. Irving Bird
og Jill Crossley-Batt (kona). Rák-
ust þau þar á 800 hellisbúa, sem
ekki höfðu haft neitt samneyti við
aðra menn um margar aldir. Þeir
áttu heima í 17.000 feta hæð en svo
hátt búa ekki neinir menn aðrir.
Þessir villimenn voru listhneigðir,
því að þeir höfðu málað myndir
á geitaskinn.
Það getur vel verið að snjómað-
urinn sé ekki annað en risavax-
inn api. Apar geta orðið stórir. En
sé hér um apa að ræða, þá er hann
allt að 5% fet á hæð og vegur lík-
lega ekki minna en 100 kg.
(Úr „Popular Science").
*--
SKAMMT frá höll Sameinuðu þjóð-
anna i New York er lítil lyfjabúð og
auglýst var í glugganum að þar væri
töluð 9 eða 10 tungumál. Tveir Arabar,
sem sátu á allsherjarþinginu, gengu
þar fram hjá, og er þeir sáu að arab-
iska var meðal þeirra mála, sem þar
voru töluð, gengu þeir inn í lyfjabúð-
ina og annar þeirra ávarpaði afgreiðslu
manninn. Honum hnykkti auðsjáan-
lega við og skildi ekki orð. Arabinn
endurtók það, sem hann hafði sagt, en
það fór á sömu leið. Þá sagði hann á
bjagaðri ensku:
— Hver er það, sem talar öll þessi
tungumál hér?
— Þeir, sem koma i búðina, svaraði
afgreiðslumaður þá. -j . - r