Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1953, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
497
Concorde- torgið í París
irnir þar inni eru eingöngu spegl-
ar, nema hvað 17 geysistórir glugg-
ar veita birtu inn í salinn. Að
speglasalnum liggur „herbergi
konungsins11 ásamt fleiri herbergj-
um og ennfremur „herbergi drottn-
ingarinnar", sem er í rokokkostíl.
Hvert herbergi á sína sögu, sem
of langt yrði að rekja hér, en
einnar minnist ég sérstaklega.
Loftin eru skreytt málverkum,
meistaralega gerðum. Listmálari
nokkur hafði unnið að því í 6
ár að skreyta loftið í einu her-
berginu, en hafði að þeim tíma
liðnum fengið nóg af svo góðu,
hann varð brjálaður^og fyrirfór
sér. Vel skiljanlegt. — Túlkurinn
sagði okkur, að 100 milljónir
manna skoðuðu Versalahöllina ár-
lega og á sunnudögum væru svo
mikil þrengsli, að varla yrði þver-
fótað. Við vorum heppin, því við
komumst greiðlega leiðar okkar.
Garðarnir umhverfis höllina, með
gosbrunnum, skuggasælum göng-
um og grasflötum eru í frönskum
stíl og taldir hinir fegurstu í heim-
inum.
Næst eftir að hafa skoðað Ver-
sali, förum við upp í Eiffelturninn,
en hann er 300 m. á hæð, byggður
úr járni árin 1887—1889 og var
hæsta bygging heimsins þar til
Ameríkanar byggðu skýjaklúfana,
en hinn hæsti þeirra er 379 metr-
ar. Við göngum upp á fyrstu hæð
í Eiffelturninum, hvílum okkur og
fáum hressingu. Tökum síðan lyftu
í tveimur áföngum upp í hæstu
hæðir og finnum ekki til loft-
hræðslu, en fallegt er útsýnið. I
Eiffelturninum eru veitingasalir,
leikhús, vísindalegar rannsóknar-
stofnanir og útvarpsstöð.
Næturklúbbar
Dagur er að kveldi kominn og
eigum við íslendingarnir nú æfin-
týri í vændum, en það er að fara
á næturklúbba í París. Við höfum
þegar lagt fram 3.500 franka hvort
okkar og fyrir það fé megum við
ferðast milli fjögurra mismunandi
næturklúbba og fá eitt staup af
kampavíni á hverjum stað. Túlkur-
inn safnar saman útlendingum af
einum þremur veitingahúsum og
ekur með okkur öll í einum bíl