Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1953, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1953, Page 8
766 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Ressastaðakirkja að innan eins og hún var þegar íslenzka ríkið eignaðist hana. Hér sést tiglagólfið milli bekkjanna, milligerðin með súlunum og ljósakrónan. Beggja megin við altarið voru súlur og sín mvndin hvorum megin, svo gaflinn hafði á sér svip. turninn, þrír fuglar og fjaðra- brúskur yfir. Er það skjaldarmerki Moltke, sem var stiftamtmaður þegar kirkjan var fullger. Þá var inni í kirkjunni að norðanverðu „stór mynd af Páli Stígssyni hirð- stjóra (d.1566), höggvin úr gulleit- um marmara norskum, og er hann myndaður þar í herklæðum .... en á miðju kórgólfinu legsteinn Magnúsar Gíslasonar amtmanns og hlerar yfir“. „Kirkjan sjálf er stór og rúm- góð innan, gólfið var lagt með múr- steinum, gulum og rauðum, reist- um á rönd og settum í rauða og gula tígla á víxl. Beggja megin í framkirkjunni voru stólar til beggja hliða. Prédikunarstóllinn að sunnanverðu nær kórnum. Milli kórs og framkirkju voru tvær súl- ur málaðar eins og marmari, og bogi uppyfir á milli, en stórar gylt- ar kúlur sín á hvorri súlu. — Á prédikunarstólinn voru málaðar olíumyndir guðspjallamannanna. Gagnvart prédikunarstólnum var „salurinn", sem svo var kallaður. Það var einskonar lofthús, með súlum undir og gluggar á allt í kring ,en stólar inni. Þarna sátu höfuðsmennirnir og þeirra hyski. — Kórinn með timburgólfi og bekkjum umhverfis, og sátu þar allir heldri menn og skólinn. Alt- arið var blátt áfram og fyrir fram- an gráturnar skírnarfontur úr tré, stór skál flatvaxin, á fæti, illa gerð- ur og tinfat í. Altaristaflan var mynd kvöldmáltíðarinnar, allstór, en lítið vönduð. Beggja megin við altarið hengu stórar töflur með grafletri. (Sú að sunnan var yfir Pál Beyer). — Á suðurhlið kórs- ins voru dyr, sem aldrei voru opn- aðar, þar hefir höfuðsmannsfólk- ið og stiftamtsmanns gengið um. — í kórnum hékk ljósahjálmur, all- snotur, og var hann gefinn kirkj- unni í minni tíð af Kristínu Ög- mundsdóttur, ráðskonu á Bessa- stöðum. — Fremst í framkirkjunni var loft nokkuð um þvera kirkj- una og grindur fyrir framan, en stigi lélegur við annan enda upp að ganga. Þar var dimmt, en þó fór fólk þangað upp“. BÆNDAKIRKJA Þannig var þá hin seinasta kon- ungskirkja á Bessastöðum. Árið 1867 hafði Grímur Thom- sen makaskifti við konung á Belgsholti í Borgarfirði og Bessa- stöðum, og fór að búa þar árið eftir. Bessastaðir voru elzt kon- ungseign hér á landi, því að Hákon konungur gamli hafði sölsað þá undir sig ásamt öðrum eignum Snorra Sturlusonar. Höfðu Bessa- staðir þá verið í konungseign um 600 ára skeið, en urðu nú bónda- eign, og fylgdi kirkjan. Grímur andaðist að Bessastöðum 1896 og eignaðist þá Landsbankinn jörðina. Síðan urðu ýmsir eigend- ur að henni, séra Jens Pálsson 1897, Skúli alþingismaður Thoroddsen 1898, Bessastaðahreppur 1916, Jén H. Þorbergsson 1917, Björgúlfur Ólafsson læknir 1927 og Sigurður Jónasson forstjóri 1940. — Búast mætti við, að viðhald kirkjunnar hefði stundum lent í undandrætti vegna eigendaskifta, en samt er það glæsilegasta tímabil hennar meðan hún er bændakirkja, því að henni var skilað með sínum upp- runalega svip að því tímabili loknu. Að vísu er sagt að Grímur hafi ekki skeytt mikið um hana, en Skúli Thoroddsen mun hafa sýnt henni fullan sóma. í tíð Jóns Þorbergs- sonar gekkst þjóðminjavörður fyrir samskotum til kirkjunnar og lögðu þá ýmsir mætir menn nokkuð af mörkum og fór þá fram viðgerð á kirkjunni eftir því sem fé entist. Og bæði Björgúlfur Ólafsson og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.