Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1953, Page 31
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
789
Síðan gekk hún upp á loft og fór að
lesa í guðsorðabók og leit aldrei upp
úr henni. En jafnskjótt og hún var
sezt, kom inn í húsið fjöldi álfafólks,
og var það allt búið gulli og skart-
klæðum. Raðaði það um gólfið alls
konar gersemum og bauð bóndadóttur;
fór það og að stíga dans og bauð henni
að koma í dansinn. En hún sinnti því
ekki, og þessu atferli helt huldufólkið
allt til dags. En er dagur rann, leit
bóndadóttir út í gluggann og mælti:
„Guði sé lof, nú er kominn dagur“.
Og er huldufólkið heyrði guð nefnd-
an, þaut það burt og skildi eftir allar
gersemarnar.
ÞJÓÐTRÍJ
í sambandi við jólin.
Ef ljós deyr ú jólanótt, þá er einhver
feigur á bænum.
Sé sólskin fagurt á jóladag, verður
gott ár; sé sólskin annan dag jóla,
verður hart ár.
Þegar jóladagur kemur með vaxandi
tungli, veit á gott ár, og sé hann góður,
veit á því betra.
Þegar hreinviðri er og regnlaust að-
fangadag jóla og jólanótt, ætla menn
það boði frostasamt ár, en viðri öðru
visi, veit á betra.
Blási 4. jólanótt, veit á hart, en blási
5. jólanótt, veit á slæmt sumar. Blási
6. verður grasvöxtur lítill, blási 7. verð-
ur gott ár. Blási 13. jólanótt vestan-
vindur, veit það á frostasumar.
GÁTUR
1. Hvað er það, sem þú hefur alltaf
á hægri hönd, hvort sem þú geng-
ur frá vestri til austurs, eða frá
austri til vesturs?
2. Hver er það, sem átti barnið árs-
gömul og dó áður en hún fæddist?
3. Skrifaðu tólf, taktu tvo af svo
tveir verði eftir.
4. Löngum geng eg liggjandi,
löngum stend eg hangandi,
löngum stend eg liggjandi,
iöngum geng eg hangandi.
5. Nönnu gulls eg nafnið bind
nærri réttu hæfi,
hún heitir það sem hverri kind
hentar bezt um ævi.
6. Sá eg áðan systur tvær,
sérhver að því hyggur,
á því standa þær oftast nær
sem einn og sérhver tyggur.
V erðlaiLnakrossgátcL
103 glöð — 105 bardagi — 106 vinjar
— 108 ábata — 110 úrkoma — 112
stórvaxna niður.
Lóðrétt: — 1 raupsýki — 2 slagur — 3
værðarvoð — 4 herskip — 5 bölva —
6 niði — 7 röð — 8 rótarskapurinn —
12 klófesti — 14 trilltar — 16 flanar
— 18 samhljóðar — 20 komast —
22 róleg — 25 pilsvarga — 26 lokaðar
— 28 burt — 29 samhljóðar — 31 borð
ar skorkvikindi — 33 hrósaðra —
36 keyrðum — 39 haf — 10
hrópar — 41 erl. stjórnmálamaður
— 42 á eftir — 43 spil — 44 óþekktur .
— 51 tónn — 52 tveir eins — 53 dýra-í
beinin — 55 ekki mörg — 56 leiðbein-J
SKÝRINGAR
Lárétt: — 1 brúnin — 9 beinir að —
10 hina — 11 króka — 13 lézt — 15
vitur — 16 fangamai-k — 17 kappsama
— 19 kvenmannsnafn — 21 tónverk
— 23 ferfeður — 24 titill — 25 ham-
ingjusöm — 27 skátar — 28 bílfær —
30 skína í gegn — 32 gras — 34
snemma — 35 óhreinindi — 37 fanga-
mark — 38 hómópatanna — 45 ósam-
stæðir — 46 for — 47 tvíhljóði — 48
skyldmenni — 49 nett — 50 tónverk
— 52 rétthærra — 54 staura — 57
sérstök landspilda — 59 borðar —
61 fáláta — 62 sérhljóðar — 63 öfug
samtenging — 64 sunda — 66 sér um
— 68 dýrs — 70 óglatt — 72 bert —
74 samhljóðar — 75 keyrðu — 76
kveikur — 78 fangamark — 79 kallar
— 81 tvíhljóði — 82 aukastykki — 83
ending — 84 ílát — 85 ósamstæðir —
86 skol — 88 hávaða — 90 karlmanns-
nafn — 92 klukka — 94 peningur —
95 flat — 96 skrift — 98 flana — 99 nýs
— 101 drógu til sín — 102 frumefni —
endurna — 58 óhrein — 59 líktré —
60 handsamirðu — 62 leiði af — 65
ull — 67 skammstöfun — 69 keyri —
70 niðuðu — 71 mál — 73 meiðsla —
75 fæddi — 77 félag — 79 fótaheila
— 80 krefst greiðslu — 87 smáhnoðri
— 89 félag — 91 ákveðinn fjölda —
Frh. á næstu síðu.