Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1955, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
017
væru mikil, fekk hann að reyna á
meðan á bardögunum stóð og síðar
í Evrópu, að til voru menn, sem
fúslega lögðu líf sitt í hættu, til
þess að rétta hjálparhönd á degi
neyðarinnar. Meðal þeirra standa
menn Rauða krossins frá ýmsum
löndum í fremstu röð. Fyrsti hjálp-
arleiðangurinn, sem náði Eþíópíu
var sænski leiðangurinn undir for-
ustu læknisins og kristniboðans
Hylander. Auk hans tóku tveir
kristniboðar þátt í leiðangrinum,
en annars voru þar menn af ýms-
um stéttum. Þessi flokkur gat sér
gott orð fyrir vaska frammistöðu
á syðri vígstöðvunum. í norður-
hluta landsins var enski Rauði
krossinn að verki. Forustumaður-
inn fórnaði lífinu, er hann var að
bogra yfir særðum manni á götu í
höfuðborginni. Nafn hans var
Melly. En til þess, að vér skiljum
betur starf þessara leiðangurs-
manna, skulum vér beina athygli
Vórri suður á við, þangað sem
Svíarnir höfðu haldið.
GRÖF SÆNSKA
KRISTNIBOÐAN S
Um það bil 600 km. fyrir sunnan
Addis Abeba liggur höfuðstaður
Borannafylkis. Bærinn, sem Neg-
helli heitir, liggur á miðri Boranna-
sléttunni. Þessi bær hefur nokkr-
um sinnum verið í leið íslenzku
kristniboðanna, þegar þeir hafa
verið á ferð milli Addis Abeba og
Konsó. í miðju þorpinu við aðal-
götuna er einmana gröf. Þessi gröf
vekur strax athygli ferðamannsins,
svo mjög stingur hún í stúf við
umhverfið. Nafn ins látna er grafið
á látlausan stein, sem reistur hefur
verið á gröfinni. Það er sænskt
nafn, Gunnar Lundström. Það er
svo einkennilegt að staldra við ina
einmana sænsku gröf. Ekki vegna
þess að þetta er kristinn reitur í
hjarta bæar, þar sem íbúarnir eru
flestir múhammeðstrúar. Ekld
vegna þess að gröfin er sænsk, en
bærinn langt inni í Afríkul Nei, en
þegar maður stendur við þessa
gröf getur maður ekki kpmizt hjá
því að heyra steininn tala. Hann
talar um að kærleikurinn leitar
ekki síns eigin. Kærleikurinn er
fórn.
Það var aðfangadagur jóla Í935.
Leiðangursmenn höfðu slegið upp
tjöldum við Ganale-fljótið skammt
frá suður landamærunum. Þar
reyndu þeir nú að halda jól eftir
beztu getu. Einhverjir urðu samt
að fara út á vígvöllinn og leita uppi
hina særðu. Tveir gáfu sig sjálf-
viljuga fram. Annar hafði áður
verið hermaður, hinn var ungur
kristniboði, Gunnar Lundström. Á
meðan jólasálmar voru sungnir í
tjöldum leiðangursmanna og víða
um hinn kristna heim, gerðu ítalir
árás, og þegar félagarnir tveir
komu aftur, var bíilinn fullur aí