Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1955, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
625
hann 10.000 n. kr. til Skógræktarinn-
ar (28. og 30.)
Kosningar í StúdentaráS fóru þann-
ig að listi Vöku fékk 273 atkv. og 4
menn kosna, sameiginlegur listi
komma, krata og Þjóðvarnar fekk 249
atkv. og 4 menn kosna, listi Fram-
sóknar 84 atkv. og 1 mann kjörinn (30.)
ÝMISLEGT
Hitaleiðsluhólkur sprakk við Snorra-
braut í Reykjavík og kom þar upp
tveggja metra hár goshver (2.)
Fyrsti strætisvagn á Akureyri hóf
ferðir sínar um bæinn (4.)
Sjúkrahúsi Siglufjarðar var gefinn
raflampi, sem kostaði 13.000 krónur
(5.)
Mæðiveiki er í sauðfé í tveimur
hreppum Dalasýslu. Verður líklega
óhjákvæmilegt að skera þar niður, og
verða það 22—23 þús. fjár (8.)
Fjórir menn innan við tvítugt gerðu
árás á Theodór Siemsen kaupmann í
Reykjavík í búð hans, börðu hann til
óbóta og rændu um 3000 krónum. Þeir
voru allir gripnir og bíða dóms (14.,
15. og 18.)
Mjólkurskömmtun var hafin 1
Reykjavík og fær hver maður % lítra.
Ekki nær sú skömmtun til sjúkra-
húsa (19.)
Félag íslenzkra hljóðfæraleikara
hóf verkfall (23.)
Brezkur togari, Patsudi, var tekinn
að veiðum í landhelgi og sektaður um
74.000 kr. og afli og veiðarfæri upp-
tækt. Þetta er 7. enski togarinn sem
sektaður er á þessu ári (29. og 30.)
C_>"T)®®®6^^5
Einkennilegt tólk
Frh. af bls. 619
og þær renna út, því að húsmæður
í borginni vilja helzt vörur frá
Amish-konum.
Sunnudagurinn er hvíldardagur.
Þá eru haldnar guðsþjónustur bæði
morgna og kvölds, annað hvort í
samkomuhúsi, eða á einhverju
heimili. Um kvöldið sezt heimilis-
fólk stundum upp í heima smíðað-
an vagn og ekur heim til kunn-
ingjafólks síns. Er þá venjulega um
væntanlegar mægðir að ræða milli
fjölskyldanna. Strangt eftirlit er
1 . .
Rangæingabragur
VÍSUR þessar komu að Breiðabólstað
í Fljótshlíð til séra Skúla, í bréfi
lokuðu og innsigluðu með hnappi, sum-
arið 1871. (J. S. 398, 4to).
Rangæingar, heyrið hér,
hættur að fer tími.
Góðir hálsar, hrindið þér
honum danska Grími. »
Meðan blauða menn að sér
marar teygir brími,
æ þér sannið, illa fer
eftirlauna Grími.
• t • > ■ ; •
Betra þingi þjóðar er
þar að auíi hími,
en að gjöldum vítis vér
vondrar spéki úr Grími.
Búizt við að blessan hver
byggðir yðar rými,
ættarland ef yðursér
eira lengur Grími.
i ' • > j j 1... •/ f
Eigi er hlutdeild yðar góð
ef í þrauta stími
yður gerið og svo þjóð
enn nú skömm með Grími.
Sé í yður íslenzkt blóð,
ekki freðið hrími,
látið þunga þykkjuglóð
þrútna um höfuð Grími.
Bragnar rosknir, börn og fljóð
bægi leiðum Ými,
allir biðji í einu um hljóð,
allir sveii Grími.
Fjandinn yrki um yður ljóð
Undir dönsku rími,
nema ef mýið bölva bjóð
Bessastaða Grími.
Þetta var síðan kveðið aftan við brag-
inn:
Eru kvæðin ekki fróð
arna þvætt í slími,
langt um betri bera ljóð
Bessastaða Grími.
Skilur glöggt hvað skreytir þjóð,
skarpur í mála stími.
Böl er því að brasa hnjóð
Bessastaða Grími.
(Grímur Thomsen var þingmaður
Rangæinga 1869—73).
haft með kynningu unga fólksins,
og öll lausung er harðlega for-
dæmd. En þó fá piltar og stúlkur
að aka út á sunnudögum, og eru
þá í opnum kerrum. Það er ekki
fyr en eftir giftingu að ungt fólk
má aka í lokuðum kerrum.
Unga fólkið trúlofast gjarna á
vorin, og svo er öllum brúðkaupum
slegið saman á haustin, eftir upp-
skerutímann. Er það ekki sjaldgæft
að þá sé 20—30 hjón gefin saman
í einu. Eftir giftipguna hætta karl-
menn að raka sig,, og það er visst
mark, ef maður sér einhvern með
skegghíung, þá er sá nýgiftur.
Mikið er um dýrðir við .giftingar
og er þá glaumur og gleði allan
daginn og fram á nótt. Það endar
með því að vinir brúðgumans
fleygja honum yfir girðinguna —
og fyr er hjónabandið ekki full-
komnað. Daginn eftir gengur hann
að vinnu sinni eins og vant er, en
unga konan hefur tekið við hús-
móðurstörfum. Um hveitibrauðs-
daga er ekki að ræða.
Brúðargjöfin er venjulega jörð.
Allir bændur keppast við að eign-
ast svo marga jarðarskika, að þeir
geti gefið hverjum syni sínum jörð
til að búa á. í þetta fer gróðinn af
tóbaksekrunum.
Þannig heldur lífið áfram óum-
breytanlegt, kynslóð fram af kyn-
slóð. Ofurlítið hefur þó breytzt, svo
sem að nú fer einstaka maður í
skóla, og heilbrigðismál eru í betra
horfi en áður. En annars halda
Amish-menn fast við lífsreglur
sínar, og hefur tekizt fram að þessu
að einangra sig.