Lesbók Morgunblaðsins - 06.11.1955, Page 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
627
„Við hittum á leiðinni 32 ríðandi
menn með einn kerruhest í taumi,
en af þeim höfðu 8 lausan hest
bundinn aftan í vagninn, tveir
trússahest, einn tvo lausa hesta,
þrír 1 nautgrip og einn 2 naut-
gripi aftan í. 22 menn hittum við
ríðandi með 2 kerrur í taumi og af
þeim höfðu 5 lausan hest aftan í
og einn tvo hesta. Átta sáum við
með 3 kerrur í lest; hafði einn
þeirra 3 lausa hesta þar aftan í.
Fjórir voru með fjórar kerrur i
lest, einn hafði lausan hest aftan
í og annar 2. Tvisvar rákumst við
á 5 kerrur í lest og 2 lausir hestar
þar aftan í annari vagnarununni.
Á þessu sést að flestir, sem við
mættum, voru ríðandi með kerru-
hest í taumi og varahest hnýttan
í vagninn. Það þarf þá einn mann,
3 hestá og kerru til þess að koma
600—800 pundum á milli Reykja-
víkur og austursveita.“ Ennfremur
segja þeir:
„Við mættum þremur með naut
aftan í kerru, og einn hafði tvö.
Einn var ríðandi með hest í taumi
og naut bundið í taglið á þeim
hesti. Annar rak lausan hest með
naut í taglinu. í einni hersingunni
reið unglingspiltur með naut bund-
ið i taglið a reiðskjótanum. Loks
voru nokkrir samferðamenn, sem
ráku fjögur naut á undan sér.“
Nefndinni leizt ekki á þessa um-
ferðarmenningu og fordæmir har'ð-
lega taglhnýtingarnar. Og svo
segir hún: „Hér heíir farið stórfé
i flutningabrautir og aðra vagn-
færa vegi, og virðist nefndinni sém
^í’i-þingi og stjóm hafi sézt yfir í
því, að ætla sveitarmönnum að
finna upp tilsagnarlaust flutninga-
tæki við sitt hæfi. — Hér hafa
bændur allir luralegar og fjáðra-
lausar tvíhjóla kerrur til flutninga,
ríða sjálfir og téyma kerruhestana.
Óg hér er það leyft, serri hvergi
líðst í öðmm löndum. að hnýta
vagnhestunum í lest e:ns og klyíja-
hestum og þar aftan í lausum hest-
um eða nautum“.
TAFLIÐ SNÝST VIÐ
Nefndin fullyrðir að þessar
kerrulestir valdi langmestum far-
artálma á vegunum, fyrir alla aðra
umferð. Þó fremsti hestur sé látinn
víkja, þá haldi hinir áfram á miðj-
um vegi. „Kerrulestirnar eru sá
siðurinn, sem umfram allt þarf að
afnema, ef unnt er“.
Þeir segja þó að allir hafi reynt
að hliðra til fyrir bílnum umyrða-
laust, nema einn maður í Flóanum
og hann hefði kallað byrstur á eft-
ir þeim; „Burt með bifreiðarnar".
Merkur maður í Ölfusi hefði sagt
að Árnesingum væri mjög illa við
bílana og vildu margir banna þeim
allar leiðir.
En nefndin var ekki’ á því, eins
og sést á framansögðu, og hún
komst einnig að þeirri niðurstöðu
að vagnalestirnar skemmdu vegina
miklu meira heldur en bílarnir.
Þetta ferðalag nefndarinnar og
skýrslan um það reið baggamuninn
í þinginu. Eftir það var enginn,
sem vildi banna bílana. En þing-
maður Árnesinga (Sigurður Sig-
urðsson) vildi þó styðja kröfur
þeirra. Lagði hann til, ,að á tíma-
bilunum 20. júní— 10. júlí og 20.
sept. 20. okt. mættu bifreiðir
ekki vera á veginum frá Reykjavík
austur yfir Hellisheiði, nema á
nóttunni og svo tvo daga í viku,
miðvikudaga og sunnudaga. Sú til-
laga hlaut ekki atkvæði neins þingr
manns, nema hans sjálfs. Þó voru
sumtr mjög vantrúaðir á gagnsemi
bifreiða. Einn af merkustu þlng-
mönnum sagðh „Eg, skal skjóta því
hér inn, að eg álít að bifreiðarnar
geti aldrei orðið nein framtíðar
flutningatæki, sem að almennings
notum yrði hé'r á landi“.
En bílarnir vöru ekki bannaðlr'.
Þeír- fór-u- stgur-för sína um- landið.
Og brátt kora annað hljoð í
strokkinn. Þá var þess krafizt að
vegir yrði lagðir sem allra víðast
um öll héruð, svo að þessi nýu
flutningatæki gæti komið sem
flestum að gagni.
t—'d®®®^»'
Fjarlcsgðir í geimnum
AF öllum þeim milljónum vetrar-
brauta, sem fundizt hafa nú á
seinni árum með bættum sjónaukum,
er Andromeda-vetrarbrautin næst
þeirri vetrarbraut, sem vér erum L
Hún er svo langt í burtu, að menn
sem hafa skarpasta sjón, geta aðeins
greint hana sem örlítinn glætudepil á
himinhvolfinu, og þó því aðeins að þeir
viti hvar hún er.
Fyrir tveimur árum komust vísinda-
menn að þejrri niðurstöðu, að fjar-
lægðin frá jörðu til Andromeda mundi
vera um 1.500.000 ljósár, en ,það er
helmingi lengra heldur en menn höfðu
áður talið.
Nú hafa stjörnufræðingar, sem starfa
við Wilson og Palomar stjörnurann-
sóknarstöðvarnar í Bandaríkjunum,
komizt að nýrri niðurstöðu um hver
fjarlægðin muni vera. Þeir hafa rann-
sakað gaumgæfilega myndir, sem tekn-
ar hafa verið af Andromeda með 200
þumlunga stjörnusjánni á Palomar, og
komizt að þeirri niðurstöðu, að vegar-
lengdin þan^að frá jörðinrji, muni vera
2.300.000 ljósár.
Fins og. allir vita. er eitt ljósár sú
végarlengd, sem ljósið getur farið á
einu ári, en það fer 300.000 km á sek-
úndu. Vilji menn nú vita hve margir
km eru til Andromeda, þá er fyrst að
finna hve margar sekúndur eru j ári,
margfalda þá tóiu með 300.000 og
margfalda síðan útkomuna með
2.300,000.
Haft er eítir fraegum rithófundi, er
hann kom úr heimsókn í dýragarð:
—*- Menmrmr hafa lært eitthvað af
flestum dýrum. Örninn- hefur kennt
þeim að fljúga, krabbinn hefur kennt
þeim að nota brynvarnir, kolkrabbinn
hefur- kennt þerm-að nota reykjarhulu,
höggoTOurinn hafur- kennt þeim að
njcsne AÞdúfunm einni hafa þeir ekk-
ert laart.