Lesbók Morgunblaðsins - 13.11.1955, Page 14
LESBÓK MORGUNBLAÐ SINS
r 642
hraðar en inum innfæddu og svo
hefir verið stöðugur straumur yfir
sundið af innflytjendum. Nú er svo
komið að stjómin á Ceylon hefir
hótað að skjóta á smábáta, sem eru
á ferð á sundinu.
Það er ekkert kynþáttahatur
vegna hörundslitar í Brezku Gui-
ana — nema þá gegn hvítum mönn-
um þar — en inir innfæddu eru
æfir út af því að nú er svo komið
að 40% af íbúunum eru Indverjar,
og vegna þess hvað þeim fjölgar
miklu örar en öðrum, er viðbúið
að innan skamms tíma varði þeir
orðnir þar i meira hluta og taki
við stjórn landsins.
Á Trinidad er svo komið, .að gert
er ráð fyrir að eftir eiim manns-
aldur eða tvo verði svo komið, að
afkomendur índverskra verka-
manna, sem þangað voru fluttir,
eigi þar allt landið.
Árið 1952 voru á Fiji-eyum 135.
877 innfæddir menn, en 148.802
Indverjar. Þar hefir reynzt nauð-
synlegt að takmarka mjög hve mik-
ið land Indverjar megi eignast, til
þess að inir innfæddu verði ekki
landlausir í sínu eigin landi.
Það er ekki af hatri vegna hör-
undslitar að Burma hefir sett
skorður við innflutningi Indverja,
eða að Malaja er í öngum sínum
út af innflutningi Kínverja.
Þannig er ástandið víðar, þótt
ekki komi þar hvítir menn við
sögu og minna sé um það talað.
Alls staðar er um sjálfsvörn að
ræða fyrir eigin menningu og arfi
feðranna.
Hvítir menn, sem hafa numið
Ástralíu, Nýa Sjáland og Suður
Afríku, spyrna á móti þeldökkum
mönnum, ekki vegna litarháttar
þeirra, heldur vegna þess að þeir
vilja búa að sínu og varðveita sína
menningu, því að enn hefir það
ekki biessast að hvítir menn og
þeldökkir renni saman í eina heild.
Margir Kínverjar eru hvítari á
hörund en hvítir menn. Þó er alls
staðar amast við þeim, vegna þess
að þeir eru af öðru sauðahúsi.
Bretar hafa fordæmt mjög kyn-
þáttaskiftingu, en nú er þeim sjálf-
um farinn að standa stuggur af hve
mikið er orðið af þeldökkum mönn-
um í London, Cardiff og hjá Mer-
sey. Það eru lög hjá þeim, að allir
þegnar brezku krúnunnar megi
koma til Englands, hvernig svo
sem hörundslitur þeirra er. En
hætt er við að þeir verði að breyta
þessu innan skamms, ef eskki eiga
vandræði af að hljótast
Verið getur að sumir láti sér fátt
um finnast þótt mikið verði inn-
streymi þeldökkra manna í Év-
rópu. En það er þó athyglisvert,
hvernig þeldökkir menri flæða nú
yfir allt. Það mun hafa sínar í-
skyggilegu afleiðingar áður en
langt um liður.
Yfirráðasvæði hvitra manna á
hnettinum dragast nú óðum sam-
an. Inum þeldökku mönnum fjölg-
ar miklu meira. Nú eru á jörðinni
1000 milljónum fleira af brúnum,
gulum og svörtum mönnum heldur
en hvítum. Og hlutfallið breytist
óðum, vegna þess að viðkoman hjá
inum þeldökku er miklu meiri.
Af 60 þjóðum, sem eiga fulltrúa
á þingi Sameinuðu þjóðanna, eru
tveir af hverjum þremur frá ríkj-
um þeldökkra manna. Og þegar
Bretar hafa gefið öllum þeldökk-
um þjóðum innan brezka samveld-
isins fullkomið frelsi og jafnrétti,
þá verður meiri hluti borgara ins
brezka ríkis þeldökkir menn.
Ef svo fer fram sem nú horfir,
þá mun þess ekki langt að biða,
að yfirráðasvæði hvítra manna
verði ekki annað en Evrópa og
Norður Ameríka og svo nokkur út-
vígi hingað og þangað, umkringd
þeldökkum mönnum.
(Þýtt).
Heilakjarni
ÞETTA orð er notað hér um þann
hluta heilans, sem á læknamáli
nefnist „hypothalamus“. Fæstir hafa
nokkum tíma heyrt um hann getið.
Og í bókinni „It’s not all in your
mind“, eftir dr. Berglund, segir hann
að „starfsemi hans sé svo vafasöm,
að margir læknar vilji ekki hugsa
um það og neiti því að hann sé til“.
jVEÐARLEGA í
hluti, sem nefnist
stórheilanum er
„dience-
phalon“ og er nafnið dregið af
tveimur grískum orðum, „dia“ sem
þýðir í gegnum og „enkephalos“
sém þýðir heili. í þessum hluta
heilans er inn svonefndi „hypo-
thalamus“ og er nafnið einnig
dregið af tveimur grískum orðum,
„hypo“ sem þýðir undir og „thala-
mos“ sem þýðir beður. Harrn er
aðeins 1/300. hlutinn af stærð heil-
ans. Það eru nú eitthvað um 100
ár síðan að læknar veittu honum
fyrst athygli, en það er fyrst nú á
seinustu 10 árunurn að þeir hafa
farið að rannsaka hlutverk hans.
Ýmsar aðferðir hafa verið not-
aðar við rannsókn heilakjarnans,
og hafa tilraunir einkum verið
gerðar á dýrum. Með því að særa
hann, eða einangra hefir mönnum
tekizt að komast að því hvaða þátt
hann á í ýmsum viðbrögðum dýra.
Einnig hefir „kaþóðugeislum" ver-
ið beint að honum og koma þá
fram mismunandi áhrif eftir því
hvar þeir hitta á. Stimdum fer til-
raimadýrið að skjálfa, eins og því
sé kalt, stundum er eins og það
reiðist, og stundum rísa öll hár
á því.
Þau skynfæri, sem stjórna hátta-
lagi voru og viðbrögðum, eru blóð-
kirtlar, taugar, rnæna og heili. En
nú halda menn að yfirstjórn alls
þessa sé í heilakjarnanum. Svo
mikið er víst, að hann hefir stjóm
á öndun og líkamshita, og hefir