Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Qupperneq 3
sér það og verða bðrn Föður síns, en bræður og systur innbyrðis; muni þá og ásannast, að þeir séu erfingjar allra hluta. Þá muni Guðs ríki verða svo á Jörðu sem •á Himni — og þá muni Himnaríki leggja undir sig Jörðina mannkyn- ið, allt Jarðarinnar líf, komast inn- fyrir þess vébönd. Finnst ykkur, kæru áheyrendur, ég vaða guðfræðilegan trúarvingls- reyk? Tæpast á ég von á því. Ég held þið hljótið að vita það nokk- urn veginn eins vel og ég, að þetta er Kristindómurinn sjálfur í sinni upprunalegu, hreinu mynd. Um ástandið í heiminum og horfurnar vita allir, enda þótt svo virðist sem fæstir kunni við að horfa einart framan í staðreyndirnar þær. En — „Guð hjálpar þeim, sem hjálpar sér sjálfur“, — en sá, sem ekki hefir tilburði til slíks, er hvorki hjálpar verður né heldur myndi hann bera gæfu til að láta hana verða sér að góðu. Ég vænti þess, að ykkur, kæru áheyrendur, sé það ljóst, að það, sem ég hefi verið að flytja ykkur, er sannleikur, — hvort heldur skoð- að sé frá sjónarmiði dagblaðsins eða Nýja Testamentisins. En til hvers hefi ég verið að rif ja upp fyr- ir ykkur þessi sannindi? Til þess að ögra ykkur, kannski, — særa ykkur — koma ykkur í truflunar- ástand, er segja mætti, að hæfði vel dæmdum heimi? Nei, — ég ætla ykkur ekki, að þið' ætlið mér slikt. Ég er í Ðrottins nafni, af minum veika mætti — styrktur þó af helgri vígslu — að skera upp herör meðal ykkar. Drottinn þarf ykkar raeð í her sinn, — því úrslitaorrust- an er hafin milli lífs og dauða á Jörðinni.....Hversu bókstaílega þetta er satt, ætti að liggja hverj- um manni i augum uppi, sem at- hugar hið almenna fylgí, er segja má, að sjálfstortímingarafstaðan njóti nú i verkinu og athafnaleys- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 151 I inu, þó að ekki sé viðurkennt ber- um orðum. En hvað getum við þá gert, sár- fátt, áhrifalaust kirkjufólk á ís- landi? Við þurfum ekki að vera áhrifalaus. „Án Guðs náðar er allt vort traust óstöðugt, veikt og hjálparlaust', — en — með Guðs náð — hvað þá? „Ef Guð er með oss, hver er þá á móti oss?‘‘ — Við erum það, sem við þiggjum að vera. — Auðvitað sýnumst við ekki nema hvítvoðungs ígildi gagnvart heimsdrottnunum og viðhorfum nútímans. „Ekki nema“, sagði ég. Það er nú samt ekkert „ekki nema“, þegar faðir hvítvoðungsins er — sjálfur Guð. Við erum raunar ekki algerir hvítvoðungar heldur. Við höfum fengið málið — og þekkjum föður okkar fyrir tilverknað frels- arans, Jesú Krists. Við getum beðið Hann sem lítil börn Hans. Við vitum, fyrir fagnaðarboðskap Jesú, að börn eru ekki lítils metin fyrir augliti Guðs. Viðhorfið er meira en stórt — það er hnattrænt. Og auðvitað er það ekki á okkar færi að taka það neinum fangbrögðum. En — okkur stendur opið að flytja viðureignina yfir á svið, þar sem veraldlegs stærðarmunar gætir að engu: and- lega sviðið. Og þar er það hreinn ávinningur að vera lítill — barn. Hvað sagði ekki Meistarinn: „Nema þér snúið við og verðið eins og börnin, komist þér alls ekki inn í Himnaríki.“ Ef við, bræður mínir og systur, raunverulega biðjum Guð eins og lítil, ósjálfbjarga börn, með innilegu trausti. þá erum \dð hðtæk á bylgjulengdum þar sem málunum er raunveruiega ráðið til lykta. Við getum, bræður minir og systur, beðið Guð í einrúmi, hvert fyrir sig, og saman: hjón, systkin, foreldri og barn, trúnaðarvinir — fvrir heiminum — mannkyninu. landi okkar og þjóð, byggðarlagi okkar, fjölskyldu okkar, sjálfum okkur. Við skulum reyna að gera þetta daglega — ón þess þó að leyfa því að gleypa hug okkar — því Faðir okkar, sem í leyndum er, vill að við treystum sér og séum, þrátt fyrir allt, glöð og áhyggju- laus — í vitundinni um sig — og Hfum lífinu í hvívetna eftir tilefn- um — og lærum það m. a. s. betur en við höfum yfirleitt kunnað. Því nýr og frjáls og gleðiríkpr lífsskiln- ingur er einmitt ein af helztu af- leiðingum þess að verða barn síns himneska föður — trúa fagnaðar- erindinu raunverulega — — eitt- hvert helzta einkenni síðasta und- irbúnings hins komanda rikis. „Til frelsis frelsaði Kristur oss.“ Við skulum, bræður mínir og systur, taka upp þessa dýrlegu baráttu, — taka hana upp sam- kvæmt allskonar smæð okkar, en taka upp engu að síður — aí okkar allra innilegustu einlægni. Við getum verið þess fullviss, að þeir eru ekki fáir hér í landinu, sem eitthvað svipað gera. Og við meg- um fulltreysta þvd, að út um öll lönd fer mikil bænarbarátta fram í nafni Jesú Krists — sumsstaðar vafalaust meiri en hér, þó að mið- % að væri við mannfjölda! Berum ekki áhyggju fyrir morg- undeginum. Morgundagurinn mun sjálfur leggja til sín — úrræði — sitt íramhald af framlagi okkar — — ef — við aðeins látum ekki standa á fyrstu, einíöldustu byrjun- mni: steypum andlega hleðslu- steina hvert í sinu húsi. Við látum ekki standa á því, bræður og syst- ur! Verum glöð og reif, hugumstór og athafnasöm i nafni Jesú Krists. Honum og eilífum Föður okkar og Heilögum Anda sé lof og dýrð okk- ar á meðal — með þjóð okkar og á gervallri Jörðinni! N'átthúfur og iæpumenm hats æ+ið fjörmenn og framkvæmdamenn — (Bjaxnj Thoraxensen).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.