Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Side 10
158
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Æskufólk í
Mosfellssveit fer
blysför heim til
skáldsins Halldórs
Kiljans Lasness
Brunnu þar inni tveir aldraðir menn,
Eiríkur Stefánsson op Jónas Sig-
mundsson (21.)
landhelgiSbrot
Belgiskur togari var tekinn að veið-
um í landhelgi og farið með hann til
Vestmanneya (16.) Hafði hann áður
gerzt sekur um landhelgisbrot og verið
dæmdur, og fekk nú 90.000 kr. sekt
(18.)
Flugbátur landhelgisgæslunnar stóð
brezkan togara að veiðum í landhelgi
og neyddi hann til að sigla til Norð-
fjarðar. Er þetta í fyrsta skifti að flug-
v’él tekur landhelgisbrjót og kemur
honum til hafnar (17.) Skipstjóri var
dæmdur í 90.000 kr. sekt. (19.)
LISTIB
Eugen Istomin, amerískur píanósnill-
ingur, kom hingað og helt hljómleika
á vegum Tónlistarfélagsins (1.)
Menntaskólanemendur sýndu leikinn
„Uppskafningurinn" eftir Moliére (2.)
Yfirlitssýning á málverkum Asgrlms
Jónssonar var í sölum Málverkasafns
ríkisins. Gekkst ríkisstjómin fyrír
þessu til heíðurs við listamanninn, sem
verður brátt áttræður. (18.) Mikil að-
sókn var að sýningunni allan mánuð-
öm.
Frú Kirsten Kj«r, kunnur danskur
málari, hafði málverkasýningu í húsi
Þjóðminjasafnsins (24.)
ÍÞRÓTTIR
Bent Larsen sigraði í skákeinvíginu
við Friðrik Ólafsson og varð þvi Norð-
urlandameistari (2.)
Símskák fór fram milli Hafnfirðinga
og Akurevringa og unnu Hafnfirðing-
ar (8.)
Meistaramóti Reykjavíkur í bridge
lauk þannig, að sveit Harðar Þórðar-
sonar sigraði í 5. sinn (16.)
Skjaldarglíma Ármanns var háð i
44. sinn. Keppendur voru 11. Ármann
Lárusson bar þar sigur af hólmi (18.)
Skákmeistaramól Norðurlands var
háð á Akureyri. Júlíus Bogason varð
skákmeistari.
Sundknattleiksmót Reykjavikur fór
fram í Sundhöllinni og kepptu þar
tvö lið frá Ármanni og eitt frá Ægi.
A-lið Ármanns sigraði (15.)
GJAFIR
Óskar Einarsson læknir hefir gefið
Hellu-læknishéraði fullkomin Röntgen-
tæki (14.)
Gís'í .T. Johnsen stórkaupmaður hefir
látið smíða £ Sviþjóð forkunnar vand-
aðan björgunarbát úr aluminium og
gefið hann Slysavamafélagi íslands
með öllum útbúnaði. Báturinn ber nafn
gefandans og var afhentur Slysavama-
félaginu ytra. Hann er 13 metra lang-
ur og í honum eru 11 vatnsheld hólf.
Báturinn hefur 70 hestafla June Munk-
tell vél. — Hann mun hafa bækistöð
sína við Faxaflóa (29.)’
Oddfellowstúkan Hallveig hefir gefið
Styrktarfél. lamaðra á Sjafnarg. 14
Eugen Istonmin
píanóuiillingur