Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Qupperneq 12
160
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
Frá afhcnd-
ingu björg-
unarbátsins,
sem Gísli J.
Johnsen gaf
Slysavarna-
félaginu
smál. vélbáti, sem gerður verður út
frá Sandgerði. Hann heitir Sigurður
Pétursson (18.)
Hlutafélag hefir verið stofnað á Ak-
ureyri til þess að halda þar uppi
strætisvagna ferðum (24.)
MENN OG MÁLEFNI
Frú Auður Auðuns hefir verið kos-
in forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur
(3.)
Kjarnorkusýning var í Reykjavík. Er
þetta umferðarsýning, komin upphaf-
lega frá Bandaríkjunum, en fer land
úr landi, til þess að opna augu manna
fyrir því hve stórkostlega þýðingu
kjarnorkan getur haft fyrir framfarir
mannkynsins, ef henni er beitt i frið-
samlegum tilgangi (5.)
Thorolf Smith var kosinn formaður
Blaðamannafélagsins (8.)
Þjóðleikhúsið efndi til hátíðarsýn-
ingar á íslandsklukkunni til heiðurs við
höfundinn, Nobelsverðlaunaskáldið
(10.) . , *
Deildarstjórar í stjórnarráðinu hafa
verið skipaðir: Baldur Möller í dóms-
málaráðuneyti, Ásgeir Pétursson í
menntamálaráðuneyti og Kristján
Thorlacíus í fjármálaráðuneyti (11.)
Armajip Larusson
giuuukongur
Æskufólk í Mosfellssveit fór blysför
heim til Halldórs Kiljan Laxness að
Gljúfrasteini, til þess að hylla hann
(14.)
Búnaðarþing, ið 28. í röðinni, var sett
og haldið í Reykjavík (15.)
Frú Gunnlaug Briem var á Alþingi
kosin framkvæmdastjóri Söfnunar-
sjóðs íslands (16.)
Landsbankanefnd var kosin á Al-
þingi: Bjarni Snæbjörnsson læknir,
Ingólfur Jónsson ráðherra, Eysteinn
Jónsson ráðherra, Andrés Eyólfsson
alþm. og Gils Guðmundsson alþm. (17.)
Thor Thors hefir verið s kipaður
sendiherra íslands á Kúbu, með búsetu
í Washington (17.)
Dr. Einar Haugen prófessor við há-
skólann í Wisconsin í Bandaríkjunum,
kom hingað og mun flytja hér 10 há-
skólafyrirlestra (19.)
Guðjón Einarsson var endurkosinn
formaður Verslunarmannafél. Reykja-
vikur (21.)
YMISLEGT
Sendiherrar íslands í Sviþjóð og
Rússlandi hafa verið hækkaðir í tign
og gerðir að ambassadörum, og eins
sendiherrar þeirra ríkja hér á landi.
Þjóðvarnarflokkurinn bar fram van-
trauststillögu á ríkisstjórnina, en hún
var íelld með 33:14 atkvæðum, en 5
þingmenn voru fjarverandi (1.)
Mænusóttin geisaði enn, einkum í
tveimur kauptúnum, Paúeksfirði og
Þórshöfn (5.)
Áfengisneyzla varð 107 gr. minni á
hvern mann í landmu 1955 heldur en
árið áður, en þó meiri en 1951 og
1952 (11.)
Sakadómari hefir dæmt í máli pilt-
anna, sem réðust á Theodór Siemsen
kaupmann í vetur, misþyrmdu honum
og rændu hann. Tveir voru dæmdir í
5 ára fangelsi hvor og til ,að greiða
saman um 70 þús. kr. í skaðabætur.
Sá þriðji var dæmdur í 18 mánaða
fangelsi (16.)
Sambandslýðveldið þýzka hefir boð-
ið tveimur íslendingum styrk til há-
skólanáms þar í landi (19.) Þá hefir og
tækniháskólinn í Aachen boðið íslend-
ingi námstyrk næsta háskólaár (23.)
Silungsveiði hefir mikið verið stund-
uð á Mývatni í vetur og veitt upp um
ís. Hefir aflast vel (21.)
Útlendingur nokkur stal um 1000
dollurum á Keflavíkurflugvelli og tók
sér þegar far með flugvélinni Gullfaxa
til London. Þjófnaðurinn komst svo
fljótt upp, að skeyti var sent í veg fyrir
inanninn til London og var hann hand-
tekinn þar um leið og Gullfaxi lenti
og sendur hingað aftur með flugvél-
inni (23.)
Höfundur Skálholts leikritsins, er
fekk 2. verðlaun, hefir nú gefið sig
fram og er það Tryggvi Sveinbjörns-
son sendiráðsfulltrúi í Kaupmanna-
höfn (25.)
Skipastóll landsins er samkvæmt
seinustu skýrslu um 100.000 stórlestir.
Þar eru talin 53 gufuskip og 633 hreyf-
ilsskip.
Tólf prestaköll eru óveitt í landinu
um þessar mundir (29.)