Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1956, Qupperneq 13
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
273
Dr. Páll ísólfsson hlaut 1. verðlaun
fyrir tónverk við hátíðarljóð Skálholts-
staðar (26.)
Sýning var í Þjóðminjasafninu á
Ijósmyndum bandarískra atvinnuljós-
myndara (29.)
Frú Greta Björnsson listmálari hafði
sýningu í Reykjavík á myndum eftir
sig og föður sinn.
GJAFIR
Barnaverndarfélag Hafnarfjarðar gaf
15.000 kr. til kaupa á kennslutækjum
handa dagheimilinu á Hörðuvöllum
(9.)
í Danmörk hefir farið fram fjár-
söfnun í því augnamiði að kaupa vand-
að orgel og gefa það inni nýu Skál-
holtskirkju (14.)
Útvegsbankinn gaf V2 milljón króna
á 25 ára afmæli sínu í fyrra til efling-
ar sjávarútvegi. Nú er ákveðið að gjöf
þessi skuli skiftast jafnt milli Fiski-
deildar Háskólans og Rannsóknastofu
Fiskifélags íslands (17.)
AFMÆLI
Karlakórinn Fóstbræður í Reykjavík
(sem upphaflega hét Karlakór K. F.
U. M.) átti 40 ára afmæli (6.)
Kvenfélag Laugarnessóknar átti 15
ára afmæli (6.)
FJÁRMÁL OG VIÐSKIFTI
Viðskiftasamningur var endurnýjað-
ur milli Dana og íslendinga (7.)
Framfærsluvísitalan var 180 stig í
Reykjavík, hafði hækkað um tvö stig
(14.)
Áfengissala fyrsta ársfjórðunginn
nam 21.8 milljónum króna, eða 4.5
millj. meira en á sama tíma í fyrra.
Hækkunin kemur öll á Reykjavík. Þess
ber að geta að verð á áfengi var nú
hærra en í fyrra (21.)
Gjaldeyrisástandið fer versnandi og
nema nú skuldir og skuldbindingar
bankanna erlendis 158 millj. kr. um-
fram inneignir (25.)
Leiðrétting: Sú prentvilla varð í
annál marzmánaðar, að þar var talað
um fjárhagsáætlun Seyðisfjarðar, en
átti að vera fjárhagsáætlun Siglufjarð-
ar. —
FRAMKVÆMDIR
Viðræður fara fram milli hitaveitu-
stjórnar Reykjavíkur og bæarstjórnar
Hafnarfjarðar um sameiginlega hag-
nýtingu jarðhitans í Krýsuvík (6.)
Maxwell
D. Taylor
yfirmaður
herráðs
Bandaríkj-
anna og
Eysteinn
fjármála-
ráðherra.
Gufubaðstofa var opnuð í sundhöll
Keflavíkur. Er þetta 40. gufubaðstofan
á landinu (7.)
Hafnargerð var hafin á Akranesi.
Komu þangað þýzkir verkfræðingar,
sem eiga að standa fyrir verkinu, og
höfðu með sér stórvirkar vinnuvél-
ar (7.).
Nýr 29 lesta vélbátur, smíðaður í
Danmörk, kom til Stokkseyrar. Hann
heitir Hásteinn II. (11.)
Aðalfundur Áburðarverksmiðjunnar
var haldinn. Hafði verksmiðjan þegar
skilað fyllstu afköstum árið sem leið
og þó 10% meira, en ráð hafði verið
fyrir gert. Starfa þar þó færri menn,
en ætlað var. Allir starfsmennirnir eru
nú íslenzkir. Verksmiðjan hefir þegar
sparað þjóðinni tugmilljónir kr. af er-
lendum gjaldeyri (11.)
Dagheimili aldraðra sjómanna hóf
kvikmyndasýningar í salarkynnum
sínum (12.)
Stofnuð var Kjarnfrseðanefnd ís-
lands og standa að henni um 30 stofn-
anir og fyrirtaeki (15.)
Mjólkursamlag Þingeyínga færist í
aukana. Árið sem leið nam innvegin
mjólk hjá því 1,917,127 kg. eða 13%
meira en árið áður. Verðið sem bænd-
ur fá er rúml. 2.21 au. fyrir kg. (15.)
Landhelgisgæzlan hefir unnið að því
að bjarga brezka togaranum St. Crisp-
in, sem strandaði hjá Kúðaósi, og tókst
að lokum að ná honum út (15.)
Sýning var haldin á vetrarvinnu
gamla fólksins á vistheimilinu Grund
í Reykjavík, og var þar margt merki-
legt að sjá (17.)
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík hafa
keypt húsið Valhöll við Suðurgötu og
komið þar upp félagsheimili (19.)
Æíingastöð fyrir fatlaða og lamaða
tók til starfa í Reykjavík (22.)
Eigendur dráttarbrauta á landinu
hafa myndað félag með sér (22.)
Gríska skipið Titika, sem strandaði
í Keflavík í vetur, náðist á flot .en
er mjög brotið (25.)
Undirbúningur er hafinn að þátttöku
íslands í fiskimála og fiskiðnaðarsýn-
ingu mikilli, sem haldin verður í
Kaupmannahöfn í næsta mánuði (27.)
Björgunarskúta Norðlendinga hljóp
af stokkunum hjá Stálsmiðjunni í
Reykjavík. Hlaut nafnið „Albert“. Við-
staddir athöfnina voru fulltrúar á
þingi Slysavamafélagsins (27.)
Ný lyfjabúð, Vesturbæarapótek, var
opnuð í Reykjavík. Eigandi hennar er
Birgir Einarsson lyfsali (28.)