Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1957, Page 7
Sumar sólir hafa sprungið.
Nokkrar „supemóvur“ eru enn
bjartar eftir mörg ár. En aðrar
hrörna, hafa geislað sér út að hálfu
leyti á tveimur mánuðum, líkt og
sum geislavirk efni. Mestar líkur
em til þess að sprengingin hafi
skapað óhemju af geislavirku efni
— alveg eins og kjarnorkusprengj-
urnar.
Hér bíður stjörnufræðinnar eitt
af stærstu verkefnum hennar, en
þar koma fleiri vísindi til greina,
svo sem litsjárfræðin, kjamorku-
fræðin, rafeindafræðin og fleiri, og
allar verða þær í félagi að hjálp-
ast að því að leysa hina miklu
ráðgátu.
„ÚTVARP“ FRÁ
STJÖRNUNUM
En það er fleira furðulegt í
stjörnuvísindum. Fyrir mörgum
árum var eðlisfræðingur nokkur,
Jansky að nafni, að rannsaka hvað-
an útvarpstruflanir kæmi. Hann
hafði mjög nákvæmt útvarpstæki,
og í því komu fram ýmis hvæsandi
hljóð, sem ekki var hægt að rekja
til venjulegra útvarpstruflana. Og
eftir nokkurn tíma komst hann að
þeirri niðustöðu, að þessar útvarps-
tmflanir kæmi frá stjÖrnunum!
Þá hófust þau vísindi, sem nefnd
em „radio astronomy". En það var
þó ekki fyr en 1946 að menn höfðu
fengið tæki í hendur til þess að
rannsaka þessa geimgeisla.
Nú vitum vér um mörg hundruð
staði á hinmi, sem senda frá sér
slíkar radio-bylgjur. Sumt em
þetta sólir, líkar vorri sól, en sumt
eru vetrarbrautir í mikilli fjarlægð.
Merkilegasti staðurinn er ef til vill
hið mikla vetnisský í vetrarbraut
vorri, en þaðan koma rafbylgjur
með 1420 „megacycles“ tíðni, eða
bylgjulengd um 8 þumlunga.
Hver skyldi hafa trúað því fyrir
noklurum ámm að hingað bærust
rafbylgjur utan úr geimnum? Og
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
hver skyldi hafa trúað því, að tveir
eðlisfræðingar, annar í Hollandi,
hinn í Bandaríkjunum, hefði sam-
tímis komist að þeirri niðurstöðu,
að vetnið í geimnum gæti sent frá
sér rafbylgjur með 21 cm. bylgju-
lengd, farið að leita þeirra og fund-
ið þær?
Nú hefir víða um heim verið
komið upp miklum rannsókna-
stöðvum til þess að athuga þessar
„sendingar" utan úr geimnum.
ÆVINTÝRIN ALLT í
KRINGUM OSS
Það er satt sem sagt hefir verið,
að einhvern tíma kemur að því
að menn geti ferðast út fyrir jörð-
ina. En slík ferðalög hljóta að
verða mjög takmörkuð. Hægt væri
að komast til tunglsins á einum
degi og til Marz á átta mánuðum.
En ef vér ættum að ferðast til
næstu stjörnu utan við sólhverfið.
þá mundi það ferðalag standa í
100.000 ár. Jafnvel þótt vér hefð-
um farartæki, er færi 100 sinnum
hraðara en hljóðið, þá mundum vér
vera 10.000 ár á slíku ferðalagi.
Þess vegna er það, að eina sam-
bandið sem vér getum haft við
fjarlæga himinhnetti, fæst með
ljósbylgjum þeim og rafbylgjum,
er þeir senda frá sér. En þótt slík-
ir geislar sé hraðari í ferðum en
nokkuð annað, þá hafa þó sumir
þeirra verið á leiðinni um miljónir
eða jafnvel biljónir ára. Með nokk-
urri þekkingu á stærðfræði og vís-
indum getum vér skilið þessar
dásamlegu kveðjur. En til þess að
fá nokkurn skilning á því hvað
vísindi eru, er ekki nauðsvnlegt
að vera vel að sér í stjömufræði,
heldur að skilja hvað er að gerast
hér umhverfis oss á jörðinni. Ævin-
týri vísindanna blasa þar hvar-
vetna við oss.
Þú vaknar á morgnana við hring-
ingu í rafma gnsklukku, sem er
243
samstillt öllum öðrum klukkum í
landinu, jafnvel um allan heim. Sú
samstilling fæst með töfrum víxl-
straums í orkuleiðslum vorum.
Töfrar? Já, hugsaðu þér þennan
víxlstraum, sem kemur eftir vír-
um, er hanga í einangrurum á
staurum á götunni. Þangað kemur
hann frá spennistöð, sem breytt
hefir hærri spennu í lægri. Til
spennustöðvarinnar kemur hann
eftir háspennulínum frá raforku-
verinu, en það vinnur strauminn
úr vatni! Ef til vill brennir orku-
verið kolum eða olíu, og þá er það
önnur höfuðskepnan, eldurinn,
sem veitir oss strauminn, þessa ný-
tízku orkulind, sem nefnist raf-
magn. Hugsið um hve marga hug-
vitsmenn, vélfræðinga og vísinda-
menn hefir þurft til þess að koma
slíkri uppgötvun í framkvæmd,
Hugsið um Michael Faraday, sem
vafði vír utan um segul og fann
að straumur leiddist eftir honum.
Þannig hefst ævintýri vísind-
anna um leið og vér vöknum á
morgnana. Svö förum vér á fætur,
klæðum okkur í nærbuxur úr næl-
on, og förum í skyrtu úr dakron
eða orlon-efnum, sem gerð eru úr
lofti og vatni og kolum! Þarna
hefir svo að segja ræzt draumur
gullgerðarmannanna fomu, sem
heldu að hægt væri að breyta blýi
í gull!
Svo snæðir þú morgunverð, og
það er enn eitt ævintýr. Á borð-
um eru fæðutegundir, sem komnar
eru hálfan heiminn kring. Og á
meðan þú snæðir, lestu blaðið með
nýustu heimsfréttum — þar er sagt
frá atburðum er gerðust í gær
víðsvegar um heim og þeim fylgja
ef til vill myndir, sem sendar hafa
verið í loftinu frá fjarlægustu stöð-
um.
Síðan stígur þú upp í bílinn
þinn, og það er ef til vill mesta
ævintýrið. í honum eru saman
Framh. á bls. 250.