Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1957, Side 14

Lesbók Morgunblaðsins - 28.04.1957, Side 14
250 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS hans. Og nú er segulbandið með þessari frásögn geymt í skjalasafni Bandaríkjaþings. ÞaS voru seinustu forvöð að ná í Iron Hail, því að hann dó nokkrum vikum seinna. Það er nokkuð einkennilegt að hugsa sér, að ekki skuli vera nema mannsaldur síðan að Dimmifjall- garður var ókunnugt land og þar átti enginn maður heima. Svo kem- ur gullæðið, Indíánar rísa upp til að verja réttindi sín gegn hvítum mönnum og blóðugir bardagar eru háðir um þetta eyðiland. Og tveir Indíánar af þeim, sem tóku þátt í orustunum, deya ekki fyrr en í fyrra. Breytingamar, sem orðið hafa á þessum tíma eru ótrúlegar. í fjöll- unum, þar sem enginn maður mátti eiga heima, hafa nú risið upp borg- ir og bæir og ferðamenn streyma þangað hundruðum þúsunda sam- an á hverju ári. Indíánar hafa gleymt boðum feðra sinna og hafa streymt til fjallabyggðanna. Um 3000 þeirra hafa t. d. sezt að í Rapid City og vinna þar daglaunavinnu hjá hvítu mönnunum, sem voru svamir óvinir þeirra fyrir einum mannsaldri. Og vísundarnir, sem vom helztu veiðidýr þeirra áður, ganga nú þama um friðhelgir fyrir augum þeirra. Vísindin heldu þama innreið sína 1935, því að þá hóf sig til flugs þar loftbelgurinn „Explorer 11“ með tveimur mönn- um og komst hærra í loft upp en nokkur annar mannaður flugbelg- ur hefir komizt. Hann komst í 72.395 feta hæð og sveimaði þar í klukkustund og 40 mínútur. Vís- indaiegur árangur af þessari ferð varð meiri heldur en menn geta enn gert sér fyllilega grein fyrir, því að á athugunum þessara tveggja flugmanna hafa að miklu leyti byggst framfarir í háloftsflugi og einnig útreikningar þeir, sem treyst er á um að hægt sé að koma gerfihnetti út fyrir jörðina. Og í staðinn fyrir gullæði er þar komið úraníumæði, því að úraníum fannst þar í fjöllunum 1951, og nú hafa menn keppzt um hver við annan að útvega sér Geiger-mæla og ferðast með þá fram og aftur um fjöllin í fótspor gömlu gullnem- anna, sem ekki höfðu hugmynd um að neitt væri til dýrmætara en gull. — Vísindin Framh. af bls. 243. komin tæki, sem hugvitsmenn í flestum greinum vísinda hafa fundið upp. Og eftir því sem á daginn líður muntu reka þig á fleiri og fleiri ævintýr. Þota flýgur yfir höfuð þér með miklum dyn, og það minn- ir þig á að nú er mikið rætt um fjarstýrð flugskeyti og gerfihnetti, sem sendir verða út fyrir gufu- hvolf jarðar. Þú lest um það, að hópur vís- indamanna hafi farið til Rússlands og rætt við vísindamenn þar um kjamorkuna, og allir hafi orðið sammála um hvernig bezt sé að framleiða hana. Þetta er óbrigðult merki þess, að vísindin eru alþjóð- leg og sannleikur þeirra sigrar. Vér erum ekki sammála um skoðanir Karl Marx, en enginn ágreining- ur er um skoðanir þeirra Newtons og Einsteins. Engin einvaldsstjóm getur bælt niður sannleik vísind- anna. Rússneska stjómin hampaði kenningum Lysenkos og lögfesti þær. En það vom falskenningar og nú em þær dauðar. Stjórnmála- menn geta ekki hamlað framsókn vísindanna. Það var reynt í Banda- ríkjunum. Menn heldu að hægt væri að halda kjarnorkuvísindun- um leyndum. Mann gleymdu því, að vísindamenn í öðrum löndum gátu lagt sömu spumingar fyrir náttúmna og fengið svar við þeim. En ævintýmnum er ekki lokið með þessu. Þú ekur fram hjá berklahæli, sem áður var yfirfullt en nú eru þar ekki nema nokkrir sjúklingar. Þú ekur fram hjá holdsveikrahæli, og þar er sömu söguna að segja. Vísindin hafa unn- ið sigur á mörgum verstu mein- semdum mannkynsins. Og svo ber þig þar að sem verið er að bólu- setja fólk við lömunarveiki — sönnun þess, að vísindin era að sigrast á einum af hinum illu sjúk- dómum. Með hverjum deginum sem líð- ur fjölgar þessum ævintýmm. Og gott er það er slík ævintýr gerast með þjóð vorri. S—^tXWixsxrNj Skáldskapur til huglækninga 1 RÍKISSPÍTALANUM [ Filadelfía í Bandaríkjunum, er nú fariö að hafa ljóðmælalestur til þess að hressa geð- sjúklinga, og hefir þetta reynzt svo vel, að mörgum hefir batnað fyrr en ella mundi verið hafa. Valin eru til lestrar kvæði, sem alls ekki geta minnt sjúkl- inginn á vanlíðan hans. Síðan er talað um kvæðið við hann frá ýmsum sjón- armiðum og talið svo smámsaman leitt að laglegu lífi. Árangurinn af þessu hefir orðið ó- trúlega góður, segir í opinberri til- kynningu 1 „Philadelphia Inquirer". — Þar var meðal annars sagt frá konu, sem hafði ósjálfráðar hreyfingar og talaði ekki nema tóma vitleysu. Eftir að hafa hlustað á kvæði og útskýringar þeirra í nokkra daga, tók hún upp annað háttalag og fór batnandi. Astæðan til þessa er talin sú að geð- veila nái ekki til alls sálarlífs manns- ins. Með ljóðalestrinum og skýringum þeirra er reynt að ná til hinna heil- brigðu stöðva heilans. Það er engin lækning fólgin í þessu, heldur hjálpar þetta sjúklingnum til þess að átta sig.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.