Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.1957, Qupperneq 5
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
473
UMFERÐARHÆTTA I LOFTINU
Vegir loftsins eru að verða of Jbröng/r fyrir hinn mikla fjölda farartækja
í LOFTINU er „vegur á alla vegu“
og menn hefði sízt grunað fyrir
nokkrum árum, að sá vegur mundi
nokkuru sinni bregðast eða verða
of þröngur. Þó er nú svo komið,
vegna hins sívaxandi fjölda flug-
véla, og er þetta orðið mönnum
mikið áhyggjuefni bæði í Banda-
ríkjunum og Englandi. Segja Bret-
ar að umferðarþrengsli í loftinu sé
orðin nærri því jafn mikil og á
götum Lundúnaborgar.
Loftsiglingar eru skipulagðar
þannig, að ákveðnar eru vissar
flugleiðir og reglur settar um hve
langt megi vera milli flugvéla. En
vegna þess hve stórkostlega flug-
vélum hefir fjölgað, er ekki orðið
nægilegt svigrúm fyrir þær á hin-
um ákveðnu flugleiðum. Á þetta
einkum við um flugleiðirnar yfir
norðanvert Atlantshaf. Þar er sí-
felldur straumur flugvéla bæði úr
austri og vestri. Allar flugvélar
kjósa að fara skemmstu leið og
fljúga í þeirri hæð, sem heppileg-
ust er veðurs vegna. Afleiðingín af
þessu varð sú árið sem leið, að
helmingur allra flugvéla á þessum
leiðum, varð fyrir töfum vegna
þrengsla í loftinu.
Og nú koma þrýstiloftsflugvél-
arnar og valda nýum erfiðleikum.
Þær fljúga bæði hraðar og hærra
en aðrar flugvélar. Vegna hraðans
verður að hafa lengra á milli
þeirra en annarra flugvéla. Sam-
kvæmt núgildandi reglum verður
að hafa 250 sjómílna bil á milli
þeirra, og tvær flugleiðir mega
ekki liggja nær hvor annarri en
120 sjómílur. Þetta verður til þess
að auka mjög vandræðin á flug-
leiðum yfir Atlantshaf.
Litlu betra er ástandið á flug-
leiðum innan Evrópu, enda þótt
þar sé um fleiri flugleiðir að ræða
og skemmra megi vera á milli flug-
vélanna. Er nú svo komið, að í
mestu loftsiglingaborgum, eins og
t. d. Lundúnum og Brússel, tefjast
flugvélar oft tímunum saman
vegna þrengsla á loftleiðunum.
Þessi mikla umferð í loftinu
veldur og sívaxandi erfiðleikum
fyrir flugstjórnina á jörðu niðri.
Það er þýðingarlaust að fjölga
starfsmönnum þar, því að þá fer
eins mikill tími í það fyrir þá að
bera sig saman, eins og að leið-
beina flugvélunum.
Til dæmis um hina sívaxandi um
-ferð í lofti má geta þess, að árið
sem leið komu og fóru 123.000 flug-
vélar á flugvellinum í Lundúnum.
Búizt er við því að þessi tala hækki
upp í 130.000 á þessu ári. Árið sem
leið fóru 46.000 flugvélar yfir
Atlantshaf, en búizt er við að þær
verði 70.000 árið 1960.
Til þess að bæta samgöngur í
lofti heima hjá sér, hafa Bretar nú
ákveðið nýar flugleiðir, og gengur
sú ákvörðun í gildi árið 1958. Þar
er meðal annars gert ráð fyrir því,
að láta Gatwick flugvöllinn taka
Þannig veröa hinar nju ílugleiðir yfir Bretlandi.