Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1957, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
52S
væri lesmálið skráð, en það kæmi fram
á mjóum strimlum, líkt og í símaáhaldi.
Þessi strimill var síðan látinn ganga í
gegn um aðrar vélar og þær vinsuðu
úr kenniorðin.
Þegar til Chepstow kom, fór Smed-
ley með mig til „Beaufort Arms“ og
þar kom hann mér í kynni við dr. Or-
ville Owen. Þetta var lágur maður og
gildur, dökkur á brún og brá, hrukk-
óttur á enni og með mikið skegg og
tindrandi blá augu að baki gullspanga-
gleraugum. Þarna í gistihúsinu voru
einnig tveir karlmenn og þrjár konur,
brezk og amerísk, en öll úr félagi
Bacon-sinna.
Að kvöldverði íoknum skýrði dr.
Owen mér frá því, að hann hefði ráðið
margar dulrúnir, en engar jafn þýð-
ingarmiklar og þær sem hann væri nú
með. Með hjálp þeirra véla, er hann
hafði fundið upp, kvaðst hann hafa
fundið þetta dulmál í fágætum formála
fyrir bókinni „Arcadia“ eftir Sir Philip
Sideny.
„Leikrit Bacons, er hann birti undir
nafni Shakespeare, voru svo vinsæl"
mælti dr. Owen, „að gervihöfundurinn
gerðist stór upp á sig og kröfuharður.
Hann heimtaði fé af Francis Bacon og
hafði í hótunum við hann. Þeir mæltu
sér mót á afviknum stað skammt frá
Stratford-on-Avon, til þess að útkljá
málið. En heimtufrekja Shakespeares
var svo mikil að Bacon reiddist, dró
sverð sitt úr slíðrum og rak það Shake-
speare í hjartastað“.
„Hvernig vitið þér allt þetta?“ spurði
eg.
„Það er frá þessu sagt í dulmáli, en
vélarnar minar hafa fundið lykilinn að
því“, svaraði hann.
Og svo helt hann áfram sögunni:
Þegar Shakespeare var fallinn, ákvað
Bacon að tryggja það, að hann hefði
sjalfur heiðurinn af því að hafa ritað
þau skáldverk, sem hann hafði áður
eignað Shakespeare. Hann ákvað að
fela öll handrit sín á öruggum stað, en
nota dulmál sitt til þess að benda
seinni aldar mönnum á hvar þau væri
að finna.
Merkileg viðbót við þessa sögu var
það, að Bacon hefði höggvið höfuðið
af Shakespeare, smurt það og látið það
niður í járnkassa. öll handrit sín og
fimm hundruð beztu bækur úr bóka-
safni sínu, lét hann í samskonar járn-
kassa, og urðu þessir kassar alls 66.
í dulmálinu sem dr. Owen hafði ráðið
var bent til þess með áttavita tilvitn-
unum, hvar þessir kassar hefði verið
faldir. Varð ekki betur séð en felustað-
urinn væri á stalli í miðju bjargi, 100
feta háu, sem er hjá ánni Wye, en á
þessum kletti stóð áður Chepstow-
kastali.
Dr. Owen sýndi okkur afrit af sög-
unni sem hann hafði unnið úr dulmái-
inu, og virtist hún hin skilmerkileg-
asta. Þar var sagt að járnkassarnir
hefði verið fluttir á báti niður Wye að
næturlagi, en þjónar Bacons hefði dreg
-ið þá í bandi upp á stallinn og falið þá
þar í helli. Og þegar allir kassarnir
voru komnir í hellirinn, var byrgt fyr ■
ir munnann. Og þess vegna höfðu þeir
dr. Owen, Mr. Smedley og hitt fólkið
þegar fengið tvo námamenn til þess að
opna hellirinn.
Snemma næsta morguns Jögðum við
á stað til hellisins. Leiðin lá um rústir
Chepstow-kastala, en eigandi hans, her-
toginn af Beaufort, hafði veitt leyfi til
þess að uppgröftur hellisins færi fram.
Ofan af brún bjargsins voru fyrst mis-
jöfn þrep, og var mér sagt að þau
hefði fundizt þegar verkamennirnir
byrjuðu að vinna þarna, en verið al-
gjörlega gróðri hulin áður. Þegar kom
niður undir mitt bjargið, varð að hand-
styrkja sig á festi framan í því, til
þess að komast á stallinn, þar sem
námamennirnir hömuðust með möl-
brjót og járnkarl við að grafa göng inn
í klettinn.
Um hálfs mánaðar skeið var þessum
greftri haldið áfram, og enda þótt
Bacons-sinnar hefði enn óbifanlega trú
á að árangur yrði góður, þá símaði eg
nú til Kennedy Jones og kvaðst ætla
að þetta væri tóm vitleysa, enda þótt
eg fengi ekki séð hvað dr. Orvil’.e
Owen ætlaði að græða á þessu. En þá
um kvöldið fór málið að skýrast.
Sögulegar heimildir herma að Franc-
is Bacon hafi dáið 1626, havði fengið
lungnabólgu eftir sleðaferð í Highgate.
En Orville Owen hafði uppgötvað aðra
heimild um þetta í dulrúnum sínum.
Þær sögðu að Francis Bacon hefði ekki
dáið fyrr en 1642, en hann hefði látisl
deya 1626 og látið jarða sig. En hann
hefði aðeins verið svæfður með opíum
og síðan grafinn upp og vakinn til lífs
með meðali, sem dr. Owen fullvissaði
mig um að læknavísindin hefði endur-
uppgötvað nú fyrir skemmstu.
Ástæðuna fyrir þessu uppátæki kvað
dr. Owen hafa verið þá, að Bacon hefði
fundið upp flugvél og flogið í henni
Þvi miður komust pólitískir andstæð-
ingar hans að þessu, og þeir flýttu sér
að kæra hann fyrir galdur, sem þá var
dauðasök........
Enda þótt ekki gengi neitt um hand-
ritafundinn, þá hafði dr. Owen meiri
fróðleik í pokahorninu, og helt hinum
við efnið.
•„Fundur handritanna er ekki það
eina, sem mun setja heiminn á annan
endann", sagði hann. „Langt frá því.
Bacon var aðdáanlegur maður. í dul-
mál' sínu hefir hann gefið nákvæma
lýsingu á flugvélinni. Já, hvorki
meira né minna. Uppgötvunin var
byggð á nýu náttúrulögmáli, sem hann
hafði fundið, en enginn annar hefir upp
-götvað. Það getur verið að þessir
Wrigth-bræður hafi getað iyft sér frá
jö-ð nrr komizt nokkra metra í loftinu,
en Bacon — hann flaug! Hann gat
. nvaða næð sem hann vildi
og hann gat flogið eins hratt og hann
vildi.
Hvernig eg veit þetta? spyrjið þið.
Þetta stendur allt í dulmálinu. Flugvél
hans var gerð af sjö skálum eða malm-
klukRum. Upp úr hverri þeirra var
áhald líkt og „gyroscope11 er nú, og þau
snerust. Þegar snúningshraðinn jókst,
hvein innan í klukkunum og kallaði
Bacon það hljóð „suðu“. Þegar snún-
ingshraðinn jókst enn meira, hvarf
þessi suða, en þá kom fram nýtt hljóð,
sem hann kallaði „brýnslu". Þetta
hljóð kom á stað bylgjugangi í loftinu,
sem vóg upp á móti aðdráttaraflinu,
og þá hófst flugvélin á loft“.
„Hvaða afl hafði hann til þess að
snúa snældunum svo hratt?“ spurði eg.
Það kom einhver glampi í augun á
Owen bak við gleraugun.
„Það stendur allt í lýsingu Bacons
á flugvélinni", svaraði hann. „Og þeg-
ar er rannsókninni er lokið, munum
vér smíða slíka flugvél. Vér höfum
þegar fengið einkaleyfi á henni, og
lítið líkan, sem gert hefir verið af
henni, var reynt, en þótt það væri
lítið, gat það lyft 22 smálestum.
í slíkri flugvél get eg farið yfir
Atlantshafið með þeim hraða, er ekk-
ert takmarkar nema viðnám gufuhvolfs
-ins. Flugvélin mun fljúga svo hratt,
að það verður að þekja hana með
asbest, svo að hún blátt áfram bráðni
ekki eins og loftsteinn".
Nú varð þögn og dr. Owen virtist
athuga hver áhrif orð hans hefði haft.
Honum hefir víst litizt vel á það, því
að nú helt hann áfram.
„Eg þarf vist ekki að útlista fyrir
(
I