Lesbók Morgunblaðsins - 08.12.1957, Side 7
LESBÓK ívxORGUNBLAÐSINS
651
hvort skip þetta muni borga sig,
en þeir, sem standa að smíði þess.
eru ekki í neinum vafa um að
kjarnorkuskipum muni brátt
fjölga mjög. Þeir segja, að reynsl
an af smíði þessa skips, muni kenna
mönnum svo margt, að áður en
það sé fullsmíðað, muni 3—4 önn-
ur kjarnorkuskip verða í smíðum
Talið er að þar verði aðallega um
miklu stærri skip að ræða, svo sem
stærstu skemmtiferðaskip, olíu-
flutningaskip og skip sem ætluð
eru til þess að flytja málmgrýti. í
slíkum skipum gæti það margborg
að sig að hafa kjarnorkuvélar. Er
þar meðal annars bent á þá stað-
reynd, að olíuskip, sem nú sigla
frá Persaflóa vestur um haf
brenni á leiðinni um 17% af því
olíumagni, sem þau geta flutt.
Það eru fleiri þjóðir en Banda-
ríkjamenn, sem búa sig undir að
smíða kjarnorkuskip. Bretar gera
ráð fyrir því, að seint á árinu 1960
hafi þeir fullsmíðað olíuflutninga-
skip knúið kjarnorku. Og það skip
verður ekkert smásmíði, eða um
80 þús. lestir.
Rússar hafa nú í smíðum kjarn-
orkuknúinn ísbrjót, sem á að heita
„Lenin“. Hefir þegar verið unnið
að honum í rúmlega hálft annað ár
Hann verður 440 fet á lengd og er
gert ráð fyrir að hann geti farið
með 18 mílna hraða á opnu haíi
Kjarnorkuvélin í þessu skipi verð-
ur allmjög frábrugðin þeim vélum.
sem eru í bandarísku kafbátunum
og verða í fyrstu kaupförunum
þar.
Mikill áhugi er meðal manna í
Svíþjóð, Vestur-Þýzkalandi ~>g
Japan um smíði kjarnorkuskipa.
En búizt er við því að þessar þjóð-
ir muni þurfa að kaupa kjarnorku-
vélarnar í skip sín annað hvort af
Bandaríkjamönnum eða Bretum.
Svíar hafa þegar samið um kaup
á 65 þús. lesta olíuskipi, sem á
að verða fullsmíðað um 1963. Og
þar eru uppi ráðagerðir um að
smíða 100 þús. lesta olíuflutninga-
skip knúið kjarnorku, og svo hrað-
skreitt, að það geti farið 30 mílur
á klukkustund.
Sumir tala nú um að smíða
grindaskip, knúin kjarnorku, en
aðrir halda að heppilegra verði að
smíða mjög hraðskreið kafskip.
Gera þeir ráð fyrir gríðarstórum
kafskipum, sem ætluð eru til olíu-
flutninga og geti farið 67—70 mílur
á klukkustund.
Ef þessar áætlanir um hin stóru
skip komast í framkvæmd, er hætt
yið að breyta verði þeim höfnum
er þau nota og dýpka þær að mikl-
um mun.
<8,-----------------------------------------------------------------—#
ÞRÖSTUR / BERJALEIT
Sé ég út í garðinum vorsins vini mína.
Vetrarsetu hefur hér skógarþrösturinn.
Eins og þegar sumarsólir skína
syngur hann í trjánum við gluggann minn.
Rauðu berin, rauðu berin reynir hann að tina
í svanginn sinn.
Von er þó ég finni hugans lindir hlýna
fyrst heyra má í skammdeginu glaða sönginn þinn.
Ég veit að stundum fennir í vetrarskóga þína.
Ó, vinarljúfi þröstur, sem sporar garðinn minn.
Rauðu berin, rauðu berin ráð er þá að tína
í sarpinn sinn.
Því skal ég víst ei berin af trjánum mínum tína
svo tæmist ekki litli matarforðinn þinn,
og feginn vil ég allur þér samúð mina sýna
því söngvabrjóstið má ei þagna yfir veturinn.
Rauðu berin bjargi þér unz birta fer og hlýna
þú bróðir minn.
KJARTAN ÓLAFSSON.
^—-____________________ . ' jk