Lesbók Morgunblaðsins - 13.04.1958, Blaðsíða 2
186
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ur tré, sem eru miklu eldri. Það
er sérstök tegund af greni, sem
nefnist „pinus aristata". Þau vaxa
í Hvítufjöllum í Kaliforníu í 10
þús. feta hæð, eða fyrir ofan það
sem venjulega er talin trjálína,
eða efstu mörk þar sem tré geta
þrifizt. Þar hafa þau barizt harðri
baráttu við ómilt loftslag, þurk og
lelegan jarðveg. En það er eins og
þessir erfiðleikar og hörð lífsbar-
átta hafi sett í þau ótrúlega seiglu.
Sum árin hefir þau kalið til muna,
en lífsorkan hefir alltaf borið sig-
ur af hólmi. Og þótt mörg þeirra
sé nú líkari beinagrindum en gró-
andi trjám, þá hefir börkurinn
haldizt óskaddaður á sumum stöð-
um og þar skjóta þau nýum grein-
um, sem hafa lífssamband við jarð-
veginn.
Það er sagt að hjón nokkur voru
að skoða mynd af einu þessara af-
gömlu trjáa, og varð manninum þá
að orði:
„Heldurðu að það væri ekki gam-
an að geta lifað svona lengi?“
En kveneðlið sagði til sín í svari
konunnar: „Hver heldurðu að
kæri sig um að verða 4000 ára og
verða þannig útlits“. Henni þóttu
ellimörkin á trénu ekki eftirsókn-
arverð.
Það er allöng saga að segja frá
því hvernig þessi tré fundust.
Um 20 ár eru síðan að háskól-
inn í Arizona gerði út af örkinni
mann, sem heitir W. Robert Moore,
og er sérfræðingur í því að dæma
og er sérfræðingur í því að dæma
um aldur trjáa. Hann átti að leita
að gömlum trjám, og halda áfram
því starfi er dr. A. E. Douglas hóf
árið 1920. Slík leit er ekki gerð til
þess eins að komast að því hver
elzt tré sé nú uppistandandi, held-
ur getur fræðslan, sem slík gömul
tré veita, verið alveg ómetanleg til
þess að átta sig á hvernig tíðarfar
hefir verið fyr á öldum og fram á
þennan dag. Árshringarnir sýna
það. Þegar gott er í ári og hagstæð
tíð, vaxa tré mikið og verður sá
árshringur þykkur. En þegar hart
er í ári, þá verða árshringarnir
næfurþunnir. Þetta er svipað og
um hornahlaup á kindum. Og með
því að athuga árshringana ræki-
lega, geta menn úr stofnum þess-
ara gömlu trjáa, rakið sögu tíðar-
farsins á þeim stað allt aftúr að
þeim tíma, er þau voru litlir tein-
ungar.
Moore ferðaðist víða og athug-
aði mörg gömul tré. Og hann komst
að þeirri niðurstöðu, að tré, sem
áttu við erfið lífsskilyrði að búa,
urðu eldri en þau tré, sem höfðu
nógan og góðan jarðveg og nóga
vætu. Að vísu voru mörg þessi tré
lág í loftinu. En þau höfðu þó
þraukað um margar aldir. í furu-
skógi nokkrum í Sun Valley í
Idaho, fann hann til dæmis tvær
svokallaðar Douglasfurur og var
önnur þeirra um 1400 ára gömul,
en hin 1650 ára.
En meðan hann vann að þessum
rannsóknum, fekk hann frétt um,
að í Hvítufjöllum í Kaliforníu
mundu vera ævagömul tré. Hafði
bóndi nokkur fundið þar tré, sem
hann nefndi Patriarch og taldi að
vera mundi eldra en flest önnur
tré. Var nú fa'rið þangað til rann-
sóknar og kom þá í ljós að þetta
tré var ekki nema 1500 ára gamalt,
og er það þó nokkur aldur, því að
það hefir verið orðið rúmlega 400
ára þegar Ingólfur Arnarson kom
til íslands.
Þarna voru ótal mörg önnur
gömul tré og komust menn að raun