Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1959, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐ SINS
639
Rannsóknir háloftanna
vegna væntanlegra geimferða
þetta. Fólk, sem alist hefir upp í á-
gætum steinsteypuhúsum, uppljóm
-uðum af rafmagni, með hitaveitu
eða miðstöðvarhitun, þar sem eru
vatnssalerni og frárennsli út í neð-
anjarðar göturæsi, getur að vonum
ekki skilið hvernig umhorfs var í
Reykjavík um aldamótin. Þá voru
langflest íbúðarhúsin úr timbri,
hituð upp með kolaofnum eða mó-
ofnum, og lýsingin var ekki önn-
ur en steinolíulampar. Vatn varð
að sækja langar leiðir í brunna eða
lindir, og þá þótti gott, ef hægt
var að hella skolpi í opin göturæsi.
Byggingarsamþykktin 1903 varð
upphaf nýs tíma í bænum. Að vísu
varð fyrsta tímabilið ekki langt,
því að stórfeldar framfarir voru á
næstu grösum og breyttu viðhorf-
inu. Árið 1909 kemur vatnsveitan
og næsta ár kemur gasstöðin. Með
þeim tveimur fyrirtækjum verður
hér stórkostleg breyting. Gasstöð-
in veitir mönnum margfalt betra
ljós en áður, og einnig gas til suðu.
Við það hurfu víða hinar gömlu
kola og mó-eldavélar, og menn
losnuðu að miklu leyti við það um-
stang að koma frá sér ösku. Með
vatnsveitunni kom eigi aðeins heil-
næmt- neyzluvatn. Þegar hún var
fengin var hægt að hafa vatnssal-
erni í húsum inni, og ennfremur
var þá hægt að losa sig við gömlu
kolaofnana og fá miðstöðvar í stað-
inn.
Það er því rétt að telja að fyrsta
tímabil skipulags og bættra bygg-
ingarhátta hafi ekki verið nema
6—7 ár. En á þessum árum var
grundvöllurinn lagður að framtíð-
arskipulagi Reykjavíkur og þeirri
þróun, sem hér hefir orðið.
Á þessu tímabili má og sjá breyt-
ingu á byggingarháttum, húsin
verða yfirleitt stærri en áður, en
einkum er nú vandað meira til
útlits þeirra og að þau fari vel í
umhverfi sínu. Má þessa enn sjá
í MAÍMÁNUÐI sl. var skotið
Júpíter-eldflaug frá Canaveral-
höfða í Bandaríkjunum. Hún
komst um 500 km. út í geiminn,
en fell síðan aftur til jarðar og
lenti í Atlantshafi. í þessu flug-
tæki var furðulegt samsafn. Þar
voru tveir litlir apakettir, þrjú
glös af ígulkerseggjum, ofurlítið af
jastri, 200 frækorn, knippi af blá-
um og hvítum lauk, 100 ávaxta-
flugupúpur og 25 sentigrömm af
mannsblóði.
Hvers vegna hafði þetta flug-
skeyti svo óvenjulegan farm inn-
anborðs? Það var til þess að rann-
saka hver áhrif það hefir á lifandi
verur að koma út fyrir aðdráttar-
aflsvið jarðar, og eins til þess að
vott, enda þótt sum af stærstu og
glæsilegustu timburhúsunum sé
nú horfin. Klæðaverksmiðjan Ið-
unn var reist 1903, en brann 1906.
Hús Sturlu og Friðriks kaupmanna
Jónssona, sem reist var á Steins-
staðabletti 1903, brann 1912. Og
Hótel Reykjavík, sem reist var
1905, brann 1915. Þá brann og mik-
ill hluti Miðbæarins, og eftir það
áfall var bannað að reisa timbur-
hús í bænum, nema með sérstakri
undanþágu. Þá hófst enn nýtt tíma-
bil í byggingarsögu bæarins, en
það verður ekki rakið. En til þess
að menn geti séð þann svip sem
var á byggingum fyrst eftir að
byggingarsamþykktin kom, eru
birtar hér myndir af nokkrum hús-
um, sem reist voru á árunum
1903—1909.
Á. Ó.
rannsaka áhrif ósýnisgeisla utan
úr geimnum.
Apakettirnir voru auðvitað
merkilegastir. Þeir voru kallaðir
Ablé og Baker. Þeir komust upp í
500 km. hæð og hraðinn var allt
að 16.000 km. á klukkustund. Þeir
voru ekki nema stundarfjórðung á
þessu ferðalagi, en þar af voru
þeir 9 mínútur utan við aðdráttar-
afl jarðar. Broddur flugskeytisins
kom niður í Atlantshaf skammt frá
Antigua, og klukkustund seinna
hafði fjórum köfurum frá flota-
skipinu ,Kiowa“ tekizt að 4 hylk-
inu upp úr sjónum. Aparm. voru
þá við beztu heilsu og bar ekki
á að þeir hefði orðið fyrir neinu
misjöfnu.
Þeir urðu frægir af þessari för.
Þótt rússneska tíkin Laika hefði
komizt hærra og verið lengur á
ferð (hún lifði eina viku úti í
geimnum), þá voru aparnir fyrstu
lifandi verurnar, sem komizt höfðu
út í geiminn og náð aftur lifandi til
jarðar. Og það er ekkert álitamál
hvort heppilegra sé að senda hunda
eða apa út í geiminn í slíkum rann-
sóknaerindum. Hundarnir geta ver-
ið beztu vinir mannanna, en ap-
arnir eru mönnum náskyldastir.
Og apar eru greindir. í samanburði
við þá var Laika heimsk. (Ketti
þýðir ekki að senda í slíkar ferðir,
því að þeir eru enn heimskari en
hundar). Ástæðan til þess að Rúss-
ar völdu hund, er sennilega sú, að
hundar eru uppáhalds rannsókna-
dýr þeirra síðan á dögum Pavlovs.
Able var apynja af rhesus-ætt
og vóg 7 pund. Hún var valin úr
fjölda mörgum öðrum eítir gagn-