Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.1960, Síða 8
252
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Klettafjöllin skulfu og klofnuðu
Lík þeirra sem fórust, voru fyrst lögð á heysátur þar til hægt var að flytja
þau brott.
Þ A Ð var mánudagskvöldið 17.
ágúst s.l. Hjá Madison-ánni, syðst
í Montanaríki, höfðu um 250 sum-
argestir tekið sér náttstað. Áin
rennur þarna í þröngum dal og er
full af fiski, svo að menn sóttust
eftir að komast þangað, enda var
það auðvelt, þar sem ein af þjóð-
brautum ríkisins lá eftir dalnum.
Ferðamönnum voru ætlaðir tjald-
staðir þarna á árbakkanum og er
einn þeirra nefndur Rock Creek.
Var sá tjaldstaður á grundum milli
árinnar og þjóðvegarins, en til
beggja handa voru háar og brattar
fjallshlíðar. Nokkru lengra inni í
Klettafjöllunum var rafmagns-
stífla og ofan við hana stórt uppi-
stöðulón, sem heitir Hebken-vatn.
Þaðan er örstutt vestur í hinn
fræga Yellowstone-þjóðgarð.
Veðrið var ágætt þetta kvöld og
glatt tunglsljós. En rétt fyrir mið-
nætti, er allir höfðu gengið til
náða, kom ógurlegur jarðskjálfti,
sem umturnaði stóru svæði af
Klettafjöllunum í þremur ríkjum,
Montana, Idaho og Wyoming.
Fjöllin byltust um alla vega og
rifnuðu að endilöngu, svo að þar
urðu gapandi gjár. Botninn í Heb-
ken-vatni reis á rönd og myndað-
ist þar mikil flóðbylgja. sem fyrst
beljaði hátt upp í hlíðar og tók af
þjóðvegfrm, en fell síðan sem hol-
skefla yfir stíflugarðinn. Fjallið
gegnt Rock Creek hrundi. Tók sig
þar upp tveggja km breið skriða
í 1300 feta hæð og svo hljóp öll
fjallshlíðin fram. Talið er að 80
miljónir tonna af grjóti hafi hrun-
ið þar niður og hlóð þessi ógurlega
skriða 430 feta háan garð þvert
yfir dalinn og stíflaði Madison-ána
og fór yfir nokkurn hluta tjald-
búðanna.
Meðal þeirra, sem höfðu tekið
sér náttstað þarna, var Bennett
nokkur frá Idaho og fjölskylda
hans, kona og fjögur börn. Þau
höfðu ekið bíl sínum niður á ár-
bakkann og sváfu hjónin í honum,
en börnin fjögur hvíldu í svefn-
pokum úti fyrir.
Þegar fyrsti kippurinn kom,
heldu margir sem sváfu í tjöldum.
Þessi steinn losnaði í háfjalli, braut skóginn í hlíðinni og staðnæmdist fyrst
niðri á þjúðvegi.