Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Qupperneq 4
328
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Einar Þórðarson;
Háífrar aldar minning
LÚÐRAFÉLAGIÐ HARPA
Lúðrafélagið Harpa 1915. Sitjandi: Einar Þórðarson, Stefán Guðnason, Sigurður Hjörleifsson, Kristján S. Sigurðsson og
Guðmundur Kr. Guðmundsson. — Standandi: Axel Andrésson, Eggert Kr. Jóhannesson, Jónas Magnússon, Þorsteinn
Xhorlacíus, Þórhallur Árnason, Elías Eiríksson, Ágúst Markússon og Vilhelm Stefánsson.
UM þessar mundir eru 50 ár síðan
Lúðrafélagið „Harpa“ í Reykjavík
varð til. Tildrögin að stofnun þess
eru í fáum dráttum þessi:
Það var veturinn 1909—1910 að
nokkrir ungir menn höfðu stofnað
með sér söngfélag. Ekki hafði því
verið nafn gefið en félagarnir voru
víst 10 eða 12, og ekki hafði það
fastar æfingar eða æfingastað, en
kom sapian til æfinga þegar bezt-
ur tími var til, og á þeim stað sem
tiltækilegastur var í það og það
skiptið.
Oftast var það annað hvort
heima hjá einum félaganna, sem
hafði hljóðfæri, eða heima hjá
söngstjóranum, sem var hinn ötuli
og áhugasami söngkennari Hall-
grímur Þorsteinsson.
Mörg ágæt lög voru æfð og sung-
in og eigum við sem tókum þátt
í þessu margar ógleymanlegar
minningar frá þeim tíma.
Þegar leið á veturinn varð okk-
ur ljóst að við gætum ekki haldið
áfram þessum æfingum, mest
vegna þess að nokkrir af félögun-
um þurftu að hverfa úr bænum
vegna atvinnu sinnar, en þó voru
nokkrir sem endilega vildu halda
áfram með eitthvað af líku tagi.
Þá var það einhver sem sagði: „Því
ekki að reyna að blása horn“.
Við vissum að í vörzlu bæarins
voru nokkrir lúðrar og tilheyr-