Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 323 Stofnfélagar Lúðrafélagsins Hörpu, sem enn eru á lífi: Guðmundur Kr. Guð- mundsson, Ágúst Markússon, Einar Þórðarson, Þórhallur Árnason, Stefán Guðnason. andi áhöld sem Lúðrafélag Reykja- víkur hafði átt, en það félag hafði nú hætt störfum vegna ágreinings við bæjárstjórnina útaf styrkveit- ingu og hafði afhent bænum áhöld sín til eignar og umráða. Höfðu ýmsir bæarbúar orð á því að dauft væri yfir bæarlífinu þar sem aldrei heyrðist lúðrablástur. Var nú ákveðið að senda Hall- grím Þorsteinsson á fund borgar- stjóra og spyrjast fyrir um þessa lúðra og það sem þeim fylgdi. Borgarstjóri tók þessu mjög vel og kvað okkur heimilt að fá þetta allt lánað ókeypis f þrjá mánuði til þess að gera tilraun með að nota það. Var þessu boði tekið með fögn- uði og farið að skoða áhöldin. Það voru víst 6 lúðrar, tromma, nótna- stóll úr tré og töluvert af nótum. Var nú þessu skipt milli þeirra sem vildu taka þátt í þessari tii- raun. Tveir af þessum mönnum höfðu áður verið með að blása horn. Þeir kunnu því gripin og þekktu nótur, og urðu þeir að kenna hin- um sem óvanir voru. Gekk tölu- verður tími í að læra þetta, en samt kom að því að hægt var að fara að spila saman létt lög. Að liðnum þessum þrem mánuðum þótti sýnt að hægt væri að halda áfram og mjög mikill áhugi fyrir því. Var nú ákveðið að tala við borgarstjóra aftur og vita hvermg gengi með framlengingu. Hann tók málinu vel sem fyr. Kvað sjálfsagt að við fengjum að hafa áhöldin áfram til frekari æí- inga, en vildi láta flokkinn skuld- binda sig til að spila ókeypis við ýms tækifæ^i þegar til kæmi og bærinn þyrfti á því að halda. Við vildum ekki ganga að þessu, en kváðumst mundu spila ókeypis á góðviðriskvöldum og á hátíðum eftir því sem ástæður leyfðu. Út frá þessu var svo ákveðið að skila áhöldunum aftur en reyna með einhverju móti að eignast áhóld sjálfir. Og tækifærið kom upp í hendur okkar. í Hafnarfirði var lúðrafélag sem var að hætta störf- um og vildi selja áhöld sín, sera voru sem ný. Buðu þeir okkur sína lúðra og það sem þeim fylgdi með vægu verði og goðum skilmálum. Milligöngumaður fyrir Hafn- firðinga var Carl Ólafsson ljós- myndari. Var nú eftir nánari at- hugun ákveðið að kaupa þetta, og skotið saman af þátttakendum fyrir fyrstu útborgun og gerður samningur um afborganir á eftir- stöðvum. Sá samningur er til enn með undirskrift allra þátttakenda. Var nú aftur farið að æfa af kappi og félaginu gefið nafnið Lúðrafé- félagið „Harpa“ kennt við hörpu- mánuðinn 1910. Þetta félag „Harpa“ starfaði af áhuga og fjöri allmörg ár, þrált fyrir mjög erfið starfsskilyrði og varð mjög vinsælt meðal bæar- búa. Það spilaði mjög oft úti á góðviðriskvöldum og á sunnudög- um og einnig á fcgrum frostkvöld- um úti á Tjörninni á vegum Skautafélags Reykjavíkur og að sjálfsögðu við öll hátíðleg tæki- færi sumar og vetur. Ennfremur oft á hlutaveltum og íþróttasýn- ingum. í fyrsta sinn 17. júní 1911. Það þáði aldrei neinn styrk af op- inberu f^. Lúðrafélagið „Hörpu“ má því ótvírætt telja vísirinn að Lúðra- sveit Reykjavíkur sem mjög vin- sæl hefur orðið og að maklegleik- um. Nafninu var breytt þegar „Harpa“ og „Sumargjöfin“ voru sameinaðar og nýr hljómsveitar- stjóri var fenginn. Og nú eftir 50 ár eru enn lifandi fjórir af þeim sem undirrituðu kaupsamninginn við Hafnfirðinga, ' og einn, Ágúst Markússon, sem gerðist virkur félagi skömmu síðar. Hinir eru Stefán Guðnason, Þórh. Árnason, Guðm. Kr. Guðmundsson og Einar Þórðarson. Okkur, þessum fimm finnst vel við eiga að rifja upp þessar minn- ingar nú, á þessum tímamótum, og við erum únægðir með að hafa verið þátttakendur í þessu litla ævintýri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.