Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
331
Þetta gerðist í maimánudi
SJÁLFKJÖRINN forseti
Framboðsfrestur til forsetakjörs
rann úr 22. maí. Hafði þá aðeins
borizt framboð núverandi forseta,
Asgeirs Ásgeirssonar, og er hann
því sjálfkjörinn (26.)
INNFLUTNINGS OG
GJALDEYRISMÁL
Alþingi samþykkti nýtt frum-
varp um gjaldeyris- og innflutn-
ingsmál. Er með lögunum veitt
mjög aukið frelsi til viðskipta og
framkvæmda. (21.)
TOLLVÖRUGEYMSLUR
Ríkisstjórnin leggur fram á al-
þingi frumvarp um tollvörugeymsl-
ur, þ. e. a. s. geymslur þar sem
heimilt er að hafa vörur, án þess
að greiða þurfi af þeim aðflutn-
ingsgjöld fyrr en jafnóðum og vör-
urnar eru seldar eða teknar í notk-
un (18.)
VEÐRIÐ
Fyrstu daga mánaðarins var af-
bragðsgott veður hér á landi, en svo
kólnaði tvo til þrjá daga og var hiti
undir frostmarki nyrðra. Eftir það
hlýnaði aftur og veðurblíða var hér
slík um allt land að menn muna vart
annað eins í maí-mánuði. Hiti komst
upp í 20 stig á Egilsstöðum og hér í
Reykjavík komst hitinn upp í 19,3 stig,
sem er methiti í þessum mánuði frá
því að menn fóru að fylgjast með hita-
stiginu. Upp úr 20. maí hólnaði og
snjóaði fyrir vestan og norðan. A
norðanverðum Vestfjörðum kom á-
hlaupaveður og mun eitthvað af kind-
um hafa farizt. Spillti kuldinn mjög
gróðri, sem var vel á veg kominn, þó
ekki að ráði sunnanlands. Síðast í
mánuðinum hlýnaði aftur og rigndi þá
nokkuð víða um land.
UTGERÐIN
Togarafnir voru dreifðir á heima-
miðum, við Austur-Grænland og á Ný-
fundnalandsmiðum. Afli var sæmileg-
ur, en þó heldur tregur á Nýfundna-
landsmiðum. ísrek hefir verið þar
>
Asgeir
Ásgeirsson
forseti
íslands. —
Höggmynd
eftir Nínu
Sæmundsson.
nokkuð svo og við Austur-Grænland.
Nokkuð fór að draga úr afla bát-
anna í maí og fækkaði þeim stöðugt
þar til flestir eða allir voru hættir um
miðjan mánuðinn. Þetta var með beztu
vertíðum Faxaflóa-, Snæfellsness- og
Vestfjarðabáta, en í Vestmannaeyjum
var hún ekki jafngóð. Aflahæsti bátur
vertíðarinnar var Stapafell frá Ólafs-
vík með 1227 lestir og Arnfirðingur
í Grindavík næstur með rúmar 1200
lestir. —
Undirbúningur fyrir síldarvertíðina
hófst síðari hluta mánaðarins.
Samkomulag náðist milli LÍÚ og SH
um fiskverð (7. og 8.)
Hinum árlegu síldarmerkingum við